Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lögfræðingur ráðleggur strandaglópum á vegum Farvel að leita réttar síns

Lögmaður segir ferða­menn sem eru stranda­glópar erlendis eftir skyndi­lega lokun lúx­us­ferða­þjón­ust­unnar Farvel ehf. eiga kröfu­rétt um að fá útlagðan kostnað vegna heim­ferðar og gist­ingar end­ur­greiddan. Langan tíma geti þó tekið að fá kröf­una end­ur­greidda.

Lögfræðingur ráðleggur strandaglópum á vegum Farvel að leita réttar síns

„Farþegar sem lenda í aðstæðum líkt og þeim sem far­þegar Farvel ehf. eiga í núna, eiga alltaf rétt á að gera kröfu til Ferða­mála­stofu,“ segir Ómar R. Valdi­mars­son hér­aðs­dóms­lög­maður.

Ómar R. Valdi­mars­son hér­aðs­dóms­lög­maður

„Ferða­skrif­stofum ber að skila af sér ferða­mála­trygg­ingu og því er hægt að gera kröfu til Ferða­mála­stofu.“

Líkt og fram kom í frétt Mannlíf fyrr í dag var ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf. fellt niður. Samkvæmt upp­lýs­ingum Ferða­mála­stofu er ástæðan sú að þrátt fyrir margar ítrek­anir hefur Farvel ehf. ekki skilað hækk­aðri trygg­ingu til Ferða­mála­stofu eins og þeim bar skylda til lögum sam­kvæmt. Að end­ingu var Ferða­mála­stofu nauð­ugur kostur að grípa til þess úrræðis að fella ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf. niður.

Um 100—200 manns verða fyrir óþæg­indum og kostn­aði vegna máls­ins sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Ferða­mála­stofu.

Ómar bendir einnig á að far­þegar kanni rétt sinn hjá kredit­korta­fyr­ir­tækjum og sam­kvæmt heim­il­is­trygg­ingu. „Flestir greiða fyrir utan­lands­ferðir með kredit­kortum og sam­kvæmt korta­skil­málum er tekið fram að ein­stak­lingur eigi rétt á að fá þjón­ustu bak­færða ef þjón­ustan er ekki afhent.“

Ómar segir að í mörgum til­vikum sé þó gerð krafa um að full­reyna fyrst á kröf­una hjá Ferða­mála­stofu, sá fer­ill geti hins­vegar tekið þó nokkurn tíma. „Ég myndi því alltaf senda strax kröfu til beggja aðila, til Ferða­mála­stofu og síðan til korta­fyr­ir­tæk­is­ins og taka fram í þeirri kröfu að einnig sé búið að senda kröfu til Ferða­mála­stofu,“ segir Ómar.

Líkt og fram kemur í til­kynn­ingu Ferða­mála­stofu þá mun trygg­ingafé Farvel ekki duga til að end­ur­greiða áætl­aðar kröfur við­skipta­vina Farvel, sem hafa greitt fyrir eða inn á pakka­ferðir á þeirra vegum, þar sem Farvel skil­aði ekki inn hækk­aðri trygg­ingu.

Hér er ákvæði skil­mála kredit­korta sem útgefin eru af Íslands­banka, en sam­bæri­legir skil­málar eru yfir önnur kredit­kort:

11.3 Í þeim til­vikum er selj­andi hefur ekki innt af hendi eða vill ekki inna af hendi þá vöru eða þjón­ustu er kort­hafi greiddi fyrir með kort­inu, atburði hefur verið aflýst eða sölu­að­ili hefur hætt rekstri, getur kort­hafi skilað skrif­legri kvörtun til útgef­anda allt að 30 dögum eftir að afhend­ing átti sann­an­lega að eiga sér stað. Telji útgef­andi að afhend­ing hafi sann­an­lega ekki átt sér stað vegna ofan­greindra ástæðna, end­ur­greiðir útgef­andi kort­hafa and­virði hins selda. Útgef­andi end­ur­greiðir þó aldrei úttektir hafi ytri aðstæður, sem falla undir venju­legar reglur kaupa­réttar um óvið­ráð­an­leg atvik (force major) og eru selj­anda óvið­kom­andi, hamlað afhend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ