Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslenskir farþegar strandaglópar erlendis – Ferðaskrifstofan Farvel ehf. hætt starfsemi

Íslenskir farþegar strandaglópar erlendis – Ferðaskrifstofan Farvel ehf. hætt starfsemi

20 ferða­langar á vegum ferða­skrif­stof­unnar Farvel ehf. eru nú stranda­glópar í Thailandi eftir að ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf. var fellt niður.  Samkvæmt upp­lýs­ingum Ferða­mála­stofu er ástæðan sú að þrátt fyrir margar ítrek­anir hefur Farvel ehf. ekki skilað hækk­aðri trygg­ingu til Ferða­mála­stofu eins og þeim bar skylda til lögum sam­kvæmt. Að end­ingu var Ferða­mála­stofu nauð­ugur kostur að grípa til þess úrræðis að fella ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf. niður.

Fólkið er nú á eigin vegum erlendis og þarf að koma sér á eigin kostnað heim, og lík­legt er að hót­el­kostn­aður sem ferða­menn­irnir voru búnir að greiða til Farvel ehf. muni lenda aftur á þeim, það er að fólkið þarf að greiða hót­el­kostn­að­inn tvisvar.

„Þetta er svaka­legt rugl,“ segir fjöl­skyldu­faðir sem staddur er í Thailandi í sam­tali við Mannlíf. Hann og fjöl­skylda hans, fjögur sam­talas, greiddu 1.340.000 krónur fyrir ferð­ina með flugi og hót­eli í þrjár vikur.

„Fólk situr nú uppi með sárt ennið og þarf að kaupa sér flug á 128 þús­und á mann og lík­legt er að stór hluti hót­el­kostn­aðar lendi á fólki aftur,“ segir hann, en sam­tals eru 20 manns í ferð­inni á vegum Farvel ehf.

Hér má lesa til­kynn­ingu á vef Ferða­mála­stofu.

Fengu upplýsingar fyrir hálftíma síðan

Ferða­menn­irnir fengu tölvu­póst klukkan 14:00 í dag að íslenskum tíma frá Ferða­mála­skrif­stofu þar sem þeim var til­kynnt um málið. Tölvu­póst­ur­inn var sendur á tengilið hóps­ins, sem kom upp­lýs­ingum áfram til far­þega. Lesa má hann í heilu lagi hér fyrir neðan.

Þegar heima­síða Farvel er opnuð eru engar upp­lýs­ingar þar að finna, síðan liggur niðri eða hefur verið lokað. Facebook-síða Farvel er enn þá opin, og sam­kvæmt henni eru áfanga­staðir fleiri en Thailand.

Hér fyrir neðan má sjá tölvu­póst­inn í heilu lagi:

Tölvu­póstur þessi er sendur á tengiliði hópa sem eru erlendis á vegum ferða­skrif­stof­unnar Farvel ehf. Tengilið­irnir eru vin­sam­leg­ast beðnir um að koma eft­ir­far­andi upp­lýs­ingum til sinna ferða­fé­laga.

Ferða­mála­stofu þykir leitt að til­kynna að ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf., hefur verið fellt niður þar sem fyr­ir­tækið upp­fyllir ekki lengur laga­skil­yrði fyrir starf­semi sinni og er starf­semi því hætt. Þeir sem nú þegar eru erlendis á vegum ferða­skrif­stof­unnar eru því á eigin ábyrgð.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Farvel ehf. hefur ferða­skrif­stofan ekki greitt flug­fé­lög­unum fyrir heim­ferð þína/ykkar. Því miður reyn­ist Ferða­mála­stofu ekki unnt að koma fólki heim og verða far­þeg­arnir því sjálfir að sjá um að kaupa sér heim­flug. Fyrir þeim kostn­aði geta far­þeg­arnir gert kröfu til Ferða­mála­stofu í trygg­ing­arfé Farvel ehf. þegar heim er komið.

Það er búið er að taka frá fyrir þig/ykkur sæti í gegnum ferða­skrif­stof­una Vita fyrir þá sem vilja nýta sér þeirra þjón­ustu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Vita mun far­gjaldið kosta kr. 128.000 per far­þega. Þeir sem vilja geta bókað og greitt flug í gegnum Soffíu Helga­dóttur hjá ferða­skrif­stof­unni Vita að öðrum kosti verða þeir að sjá sjálfir um að koma sér heim. Hægt er að bóka flugið í gegnum net­fangið [email protected] eða í síma 570-4461. Svarað er í síma dag­ana 23., 27., 30. des­em­ber og 2. og 3. jan­úar.

Einnig kann að vera að ein­hverjir far­þegar verði rukk­aðir um greiðslu vegna hót­eldvalar þar sem Farvel ehf. hefur ekki greitt fyrir hót­elgist­ingar að fullu. Fyrir þeim kostn­aði geta far­þeg­arnir gert kröfu til Ferða­mála­stofu í trygg­ing­arfé Farvel ehf. þegar heim er komið.

Ástæða nið­ur­fell­ing­ar­innar er að þrátt fyrir margar ítrek­anir hefur Farvel ehf. ekki skilað hækk­aðri trygg­ingu til Ferða­mála­stofu eins og þeim bar skylda til lögum sam­kvæmt. Að end­ingu var Ferða­mála­stofu nauð­ugur kostur að grípa til þess úrræðis að fella ferða­skrif­stofu­leyfi Farvel ehf. niður. Þar sem Farvel ehf. hefur ekki skilað inn hækk­aðri trygg­ingu, í sam­ræmi við vax­andi umsvif fyr­ir­tæk­is­ins, liggur ljóst fyrir að ein­ungis mun vera hægt að greiða lítið hlut­fall af þeim kröfum sem áætl­aðar eru að muni ber­ast í trygg­ingu þá sem Farvel ehf. hefur hjá Ferða­mála­stofu. Farþegar eru því hvattir til að kanna sam­hliða rétt sinn hjá trygg­inga­fé­lögum og korta­fyr­ir­tækjum.

Frestur til að setja fram kröfu er 8. mars n.k.

Krafa í trygg­ing­arfé er send inn í gegnum þjón­ustu­gátt á vef Ferða­mála­stofu www.ferdamalastofa.is. Skráning fer fram með íslykli eða raf­rænum skil­ríkjum. Með kröf­unni þarf að senda gögn sem sýna fram á kaup pakka­ferðar þ.e.a.s. kvitt­anir fyrir greiðslu, far­seðla, pakka­ferða­samn­ing­inn eða hvers kyns ferða­gögn. Kröfur sem ekki eru studdar fylgi­gögnum verða ekki teknar til greina. Kröfur sem ber­ast eftir að kröfu­lýs­inga­fresti lýkur eru ekki teknar til greina.

Fyrst þegar kröfu­lýs­ing­ar­frest­ur­inn er lið­inn er hægt að taka afstöðu til allra krafna. Öllum kröfu­höfum er svarað form­lega. Ákvarð­anir Ferða­mála­stofu lúta ákvæðum stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993.

Að öðru leyti en að ofan greinir er far­þegum bent á að kanna trygg­ingar sínar hjá trygg­inga­fé­lögum og korta­fyr­ir­tækjum.

Frekari upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Við­bót­ar­upp­lýs­ingar verða sendar í tölvu­pósti á tengiliði og einnig birtar á vef stofn­un­ar­innar www.ferdamalastofa.is þegar og ef þær liggja fyrir.

Með kveðju

Starfs­fólk Ferða­mála­stofu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ