Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Halldóra Baldursdóttir: „Ég vonaðist til að tími Haraldar Johannessen væri liðinn“

Halldóra Bald­urs­dóttir lýsir yfir von­brigðum með að Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, skuli fá ráð­gjafa­starf hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Halldóra hefur sem kunn­ugt er gagn­rýnt emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra harð­lega fyrir að hafa ekki leyst lög­reglu­mann, sem dóttir hennar kærði fyrir að hafa brotið gegn sér á barns­aldri, undan vinnu­skyldu á meðan málið var rann­sakað.

Halldóra Baldursdóttir: „Ég vonaðist til að tími Haraldar Johannessen væri liðinn“

„Mín fyrstu við­brögð eru von­brigði. Ég von­að­ist til að tími Haraldar Johann­es­sen, hvað við­kæmi lög­reglu­málum, væri lið­inn.“

Þetta segir Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, sem kærði lög­reglu­mann fyrir að hafa brotið gegn sér á barns­aldri. Halldóra hefur gagn­rýnt emb­ættið harð­lega á meðan Haraldur gegnir stöðu rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir þá sök að mað­ur­inn sem var kærður fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn dóttur hennar skuli ekki hafa verið leystur undan vinnu­skyldu á meðan málið var rann­sakað. Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um málið allt frá árinu 2018, en umræddur maður starfar enn innan lög­regl­unnar.

„Hann hefur gegnt starfi sem æðsti yfir­maður lög­reglu­mála í 22 ár og ber þ.a.l. ábyrgð á innra eft­ir­liti lög­reglu­mála í land­inu,“ segir Halldóra um Harald Johann­es­sen. „Það er á hans vakt og á hans ábyrgð, að mínu mati, að lög­reglu­maður sem í þrí­gang hefur verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum starfar enn innan lög­regl­unnar. Lög­reglu­maður sem almenn­ingi er enn þann dag í dag sagt að segja börn­unum sínum að treysta.“

„Haraldur hafði ekki kjark og þor til að standa með þessum þremur litlu stúlkum og gefa þannig tón­inn til sinna manna að það væri ólíð­andi að starf­andi lög­reglu­menn fengju á sig kyn­ferð­is­brota­kærur í þrí­gang.“

Í við­tali í Mannlíf í júní árið 2017 greindi Halldóra frá því að árið 2007 hafi dóttur hennar, Helgu Elínu sem þá var tíu ára gömul, verið boðið í sum­ar­bú­staða­ferð með skóla­systur sinni, Kiönu Sif Limehouse, móður hennar og stjúp­föður. Í kjöl­far þess­arar ferðar urðu breyt­ingar á hegðun Helgu Elínar,  en Halldóra tengdi þær ekki við ferð­ina. Fjórum árum eftir umrædda sum­ar­bú­staða­ferð, þann 5. októ­ber 2011 var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar. Þar kom í ljós að dóttir hennar hafði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður.

Málið var strax sett í far­veg, það kært til lög­reglu og rann­sókn hófst, en um það bil einu ári eftir að málið var kært var það fellt niður og gerir Halldóra ýmsar athuga­semdir við rann­sókn máls­ins. Meðal ann­ars að sak­born­ingur, sem var starf­andi lög­reglu­maður, hafi ekki verið leystur frá störfum meðan á rann­sókn máls­ins stóð eins og áður segir. Þá hafi hann á þessum tíma verið kærður fyrir brot gegn annarri stúlku og nokkru síðar gegn þriðju stúlkunni. Málin þrjú hafi ekki verið rann­sökuð saman og mað­ur­inn starfað áfram sem lög­reglu­maður meðan á öllum þessum rann­sóknum stóð.

Þegar málið kom upp á sínum tíma seg­ist Halldóra hafa sent póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vís­aði erind­inu á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra. „Sem alger­lega brást okkur að mínu mati og vildi ekk­ert fyrir okkur gera,“ sagði Halldóra í fyrr­nefndu við­tali í Mannlíf frá því í fyrra. „Mér datt nú stundum í hug lagið góða „Ekki benda á mig“ þegar ég var í sam­skiptum við þá. Það þarf virki­lega að skoða hvernig lög­reglan tekur á kyn­ferð­is­brota­málum ef sak­born­ing­ur­inn er lög­reglu­maður.“

Haraldur hefur hafnað full­yrð­ingu Halldóru um að hann hafi brugð­ist dóttur hennar Helgu Elínu og í fram­hald­inu birti rík­is­lög­reglu­stjóri yfir­lýs­ingar á heima­síðu emb­ætt­is­ins, hér og hér, þar sem hann hafn­aði þessum „ásök­unum“ sem fram komu í við­tal­inu. Sendi Halldóra bréf á Umboðs­mann Alþingis  vegna fram­göngu rík­is­lög­reglu­stjóra í mál­inu og óskaði eftir að rík­is­lög­reglu­stjóra yrði gert að fjar­lægja þessar til­kynn­ingar á vef emb­ætt­is­ins, þar sem alla jöfnu eru til­kynnt váleg tíð­indi sem eiga erindi við almenn­ing og varað er við brotum eða brota­mönnum. Enn­fremur að honum yrði gert að biðja þær mæðgurnar afsök­unar á ummælum sínum.

Í svari þáver­andi Inn­an­rík­is­ráðu­neytis við bréfi frá Halldóru Bald­urs­dóttur, sem rit­stjórn Mannlífs hefur undir höndum og er dag­sett 8. júní 2012, kemur hins vegar fram að það hafi verið á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita umræddum lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu komst að svip­aðri nið­ur­stöðu en það var mat hennar að rík­is­lög­reglu­stjóri hefði getað vikið lög­reglu­mann­inum tíma­bundið frá störfum.

„Hafði ekki kjark og þor til að standa með þessum þremur litlu stúlkum“

„Hann ber ábyrgð á að hafa ekki aðhafst neitt í máli dóttur minnar sem m.a. varð til þess að dóttir mín gat aldrei hringt eftir aðstoð lög­reglu hafi til­efni verið til, þegar hún var barn. Mörgum árum síðar mætir lög­reglu­mað­ur­inn á heim­ilið okkar til að rann­saka mál,“ segir Halldóra nú, í ljósi nýj­ustu tíð­inda og vísar þar til atviks sem kom upp árið 2018 á heim­ili hennar en það varð til þess að hún þurfti að óska eftir aðstoð lög­reglu. Kallaður var út rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á bak­vakt til að taka skýrslu og mætti þá lög­reglu­mað­ur­inn sem Helga Elín, dóttir Halldóru hafði áður kært.

„Í stað þess að hann sé lát­inn hætta afskiptum af lög­reglu­málum í land­inu sökum van­trausts þá fær hann sjálf­krafa ráð­gjafa­starf hjá dóms­mála­ráð­herra.“

„Haraldur hafði ekki kjark og þor til að standa með þessum þremur litlu stúlkum og gefa þannig tón­inn til sinna manna að það væri ólíð­andi að starf­andi lög­reglu­menn fengju á sig kyn­ferð­is­brota­kærur í þrí­gang. Í stað þess að hann sé lát­inn hætta afskiptum af lög­reglu­málum í land­inu sökum van­trausts þá fær hann sjálf­krafa ráð­gjafa­starf hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti