Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vesturbærinn fyrsta réttindahverfi landsins á Alþjóðadegi barna

Í til­efni af alþjóða­degi barna og 30 ára afmæli Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna veitti UNICEF á Íslandi grunn­skól­unum í vest­urbæ Reykja­víkur, Granda­skóla, Mela­skóla, Haga­skóla og Vest­ur­bæj­ar­skóla, frí­stunda­heim­il­unum Undra­land, Selið, Frost­heimar og Skýja­borgir auk félags­mið­stöðv­ar­innar Frosti við­ur­kenn­ingu í dag sem Rétt­inda­skólar og Rétt­inda­frí­stund UNICEF.

Vesturbærinn fyrsta réttindahverfi landsins á Alþjóðadegi barna
Réttinda­ráð Granda­skóla fagnar við­ur­kenn­ing­unni|Rétt­inda­skólar Vest­ur­bæjar||

Með þessu er Vest­ur­bær Reykja­víkur nú orðið fyrsta rétt­inda­hverfi lands­ins þar sem allir skólar þess hafa nú hlotið þessar við­ur­kenn­ingar.

Í til­kynn­ingu frá UNICEF segir að óhætt sé að full­yrða að um merk­is­at­burð í mennta­málum Reykja­vík­ur­borgar sé að ræða en í ofan­greindum skólum hafa öll börn, kenn­arar, starfs­fólk og for­eldrar unnið mark­visst og af miklum eld­móð við að inn­leiða Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna í sitt starf. Réttinda­ráð skól­anna hafa hlotið mikið lof fyrir vinnu sína í þágu rétt­inda barna. Réttinda­ráð Haga­skóla braut til að mynda blað í sögu íslensks skóla­starfs þegar þau stóðu öll sem eitt og mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri brott­vísun skóla­systur sinnar úr landi. Þau mót­mæli urðu til þess að brott­vís­un­inni var frestað.

Við­ur­kenn­ingin er nú veitt í annað sinn, á 30 ára afmæli Barna­sátt­mál­ans. Fyrir höfðu Laug­ar­nes­skóli, Frí­stunda­heim­ilin Laugasel og Dal­heimar, Lauga­lækj­ar­skóli og félags­mið­stöðin Laugó, Flata­skóli og frí­stunda­heim­ilið Krakka­kot inn­leitt Barna­sátt­mál­ann í allt starf sitt og verið við­ur­kennd sem Rétt­inda­skólar og Rétt­inda­frí­stund UNICEF.

Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, fagnar með réttinda­ráði Haga­skóla.

Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, segir gleði­efni að geta veitt við­ur­kenn­ing­arnar á afmæl­is­degi sátt­mál­ans og að baki liggi þrot­laus vinna allra sem komi að.

„Þessi útbreidd­asti mann­rétt­inda­sátt­máli heims hefur breytt lífum ótal barna til hins betra. Nú eru for­sendur hans orðnar útgangs­punktur allra ákvarð­ana í metn­að­ar­fullu skóla- og frí­stunda­starfi þess­ara skóla, frí­stunda­heim­ila og félags­mið­stöðvar. Rétt­inda­skólar og Rétt­inda­frí­stund UNICEF hjálpa okkur við að tryggja skuld­bind­ingu okkar og kom­andi kyn­slóða fyrir áfram­hald­andi bar­áttu fyrir rétt­indum barna. Nærum­hverfi barna eins og hér um ræðir er frjóasti svörð­ur­inn fyrir þeirri rétt­inda­bar­áttu.“

Dagur B. Egg­erts­son flytur ávarp í Granda­skóla

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri var við­staddur allar afhend­ing­arnar  í morgun og kvaðst stoltur borg­ar­stjóri á þessum tíma­mótum.

„Ég er ótrú­lega stoltur af því að skól­arrnir og frí­stunda­starf­semin í Vest­ur­bænum séu að verða rétt­inda­skólar og rétt­inda­frí­stund UNICEF. Því það er ekki bara mik­il­vægt að krakk­arnir átti sig á því að þeir hafi rétt­indi heldur að þau eru svo virkir þátt­tak­endur í verk­efn­unum. Þannig styður þetta við áherslur á spenn­andi, lýð­ræð­is­legt skóla­starf þar sem að ein­stak­ling­ur­inn er í for­grunni en þar sem líka er lögð áhersla á að taka til­lit til skoð­ana ann­arra og við séum öll sam­fé­lag. Barna­sátt­mál­inn rammar þetta mjög vel inn og Rétt­inda­skóla­verk­efnið í heild sinni. Ég er bara mjög þakk­látur og stoltur borg­ar­stjóri í dag.“

Rétt­inda­skólar Vest­ur­bæjar

Hvað eru réttindaskólar?

Rétt­inda­skóli og Rétt­inda­frí­stund er hug­mynda­fræði fyrir skóla- og frí­stunda­starf sem byggir á Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu Þjóðanna og miðar að því að auka virð­ingu, vernd og inn­leið­ingu mann­rétt­inda. Skólar, frí­stunda­heim­ili og félags­mið­stöðvar sem vinna eftir lík­an­inu leggja sátt­mál­ann til grund­vallar í öllu starfi sínu; skipu­lagn­ingu, stefnu­mótun og starfs­háttum.

Markmið Rétt­inda­skóla er að byggja upp lýð­ræð­is­legt umhverfi með því að rækta með mark­vissum hætti þekk­ingu, leikni og við­horf sem hjálpa börnum að verða gagn­rýnir, virkir og hæfir þátt­tak­endur í nútíma­sam­fé­lagi. Meira um Rétt­inda­skóla og Rétt­inda­frí­stund í mynd­band­inu hér fyrir neðan.

Þeirra eigin orð: Þetta segja börnin

Alþjóða­dagur barna snýst ekki síst um að gefa börnum orðið. UNICEF á Íslandi fékk send nokkur svör barna eins Rétt­inda­skól­anna við spurn­ingin­unni hvort það skipti máli að læra um rétt­indi sín og af hverju. Það stóð ekki á svörum hjá börn­unum og hér fyrir neðan má lesa nokkur vel valin. Við gefum börnum orðið:

„Það er í einum rétt­ind­unum að börn eigi að vita um rétt­indi sín. Mér finnst bara gott að vita um rétt­indi mín. Allir eiga skilið að vita um rétt­indi sín.“ – Barn í 6. bekk

„Ég myndi segja það. Auðvitað er mik­il­vægt fyrir alla að læra um rétt­indi. Það er ósann­gjarnt ef maður fær ekki rétt­indi sín því það eru lög og þetta eru ein af mik­il­væg­ustu lög­unum að fylgja því hvað ger­ist í fram­tíð­inni ef þú ert ekki ham­ingju­samur sem barn og það er passað upp á þig.“ – Barn í 6. bekk.

„Af því að það er gott að vita hvaða rétt­indi maður hefur og ef maður þekkir ekki rétt­indi sín getur maður ekki virt rétt­indi ann­arra!“ – Barn í 6. bekk.

„Ég vil vita hvaða rétt­indi ég á svo að ég geti sagt frá ef ein­hver brýtur á rétt­indum mínum.“ – Barn í 6. bekk.

„Það er mik­il­vægt að gefa börnum að drekka og borða.“ – Barn í 1. bekk.

„Þegar það er rign­ing þá eiga börn að fá hlý föt og pollagalla.“ – Barn í 1. bekk.

„Það er mik­il­vægt að eiga hús og for­eldra.“ – Barn í 1. bekk.

„Þá veit maður að maður á að eiga þak yfir höf­uðið.“ – Barn í 2. bekk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ