Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Frá vöggu til grafar“

Ráð­stefnan Slysa­varnir er haldin nú um helg­ina í þriðja sinn á Grand Hótel Reykja­vík. Á ráð­stefn­una mætir fag­fólk úr ýmsum stéttum sem vinna að slysa­vörnum og örygg­is­málum á Íslandi.

„Frá vöggu til grafar“
Guðni Th. Jóhann­es­son

„Við búumst við um 200 manns í heild­ina,“ segir Svan­fríður Anna Lár­us­dóttir, verk­efna­stjóri slysa­varna hjá Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björg. „Allir sem hafa áhuga geta mætt og skráð sig á staðnum á föstu­dag.“

Svan­fríður Anna Lár­us­dóttir

Yfir 20 fyr­ir­lestrar verða haldnir, ýmist á íslensku eða ensku. „Umræðu­efnin spanna allt frá vöggu til grafar, en fyrst og fremst er verið að fjalla um umferð­ina og slys í umferð bæði á ferða­mönnum og öðrum. Slysa­skrán­ing verður tekin fyrir en kannski gerir fólk sér ekki grein fyrir að það eru yfir 30 þús­und ein­stak­lingar skráðir með slys árið 2018 og þar af eru um 12 þús­und yngri en 19 ára. Þessar tölur hafa lítið breyst á milli ára.“

„Umræðu­efnin spanna allt frá vöggu til grafar“

Slysavarnir snerta alla

„Slysa­varnir eru eitt­hvað sem allir vilja tala um. Við vorum að koma núna í vik­unni frá Evr­ópu­ráð­stefnu um slysa­varnir. Þar var meðal ann­ars talað um síma­notkun, og ekki bara undir stýri, því núna eru lönd farin að „kepp­ast“ um hvar flest „sel­fie“-slysin eigi sér stað. Indland, Rússland og Pakistan eru efst á list­anum, en sem dæmi má nefna að síð­asta sunnu­dag lét­ust fjórir ein­stak­lingar í Indlandi þar sem við­kom­andi voru að taka sjálfu eftir brúð­kaup. Einn datt út í vatn, dró fjóra með sér og allir drukkn­uðu nema einn, sem brúð­gum­anum tókst að bjarga,“ segir Svan­hildur. „Ísland er ekki komið á list­ann, þar sem við erum ekki farin að skrá „sel­fie“-slys en við erum að tala um alls konar ný slys sem eru komin í mæl­ingar og mörg þeirra fylgja tækn­inni. Það er margt sem kom á óvart á Evr­ópu­ráð­stefn­unni.“

Veggspjaldasýning með fróðleik um slysavarnir

Samhliða ráð­stefn­unni er haldin vegg­spjalda­sýn­ing þar sem ráð­stefnu­gestir geta kynnt sér fróð­leik um slysa­varnir, bæði unnin verk­efni og nið­ur­stöður rann­sókna. Yfir 12 fyr­ir­tæki og stofn­anir, auk slysa­varna­deilda kynna vörur sínar og verk­efni, og nið­ur­stöður kann­ana og rann­sókna. „Sam­göngu­stofa verður með og Örygg­is­mið­stöðin kynnir nýja snjall­hnapp­inn fyrir eldri borg­ara, svo aðeins nokkrir séu nefndir.“

Skemmtidagskrá í Sæbjörgu

Ráð­stefnur eru ekki bara til að læra nýjan fróð­leik, heldur einnig vett­vangur til að kynn­ast öðrum félögum, spjalla saman á óform­legum nótum og deila reynslu sín á milli. Á föstu­dags­kvöld­inu munu ráð­stefnu­gestir hitt­ast í mót­töku um borð í skóla­skip­inu Sæbjörgu, þar sem Hera Björk Þór­hall­ds­dóttir mun syngja lög á ljúfum nótum við und­ir­leik Björns Thorodd­sen.

Nánari upp­lýs­ingar um ráð­stefn­una má finna á heima­síðu hennar: www.slysavarnir.is.

Í mynd­band­inu hér að neðan má sjá svip­myndir frá ráð­stefn­un­inni sem haldin var 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ