Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Úr kjólum í kokkagalla

Leik­konan Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir varð að þjóð­ar­eign í fyrsta hlut­verki hennar sem söng­konan ást­sæla Henný Eldey Vil­hjálms­dóttir eða eins og hún var best þekkt, Elly Vil­hjálms. Fyrsta hlut­verk Katrínar eftir Elly er gjör­ó­líkt verk­efni, hlut­verk í far­s­anum Sex í sveit.

Úr kjólum í kokkagalla
Farsinn Sex í sveit

„Ég var reyndar í verk­inu Sýningin sem klikkar, með fram Elly, en Sex í sveit er fyrsta sýn­ingin mín eftir að Elly lauk,“ segir Katrín Halldóra sem er fast­ráð­inn leik­ari hjá Borg­ar­leik­hús­inu.

„Það verður nóg að gera, ég verð á þremur sýn­ingum á Stóra svið­inu í vetur,“ segir Katrín Halldóra. Sex í sveit verður frum­sýnt 5. októ­ber, Vanja frændi, í jan­ú­ar­byrjun og síðan söng­leik­ur­inn Níu líf, í mars en hann fjallar um ævi og tón­list hins eins sanna Bubba.

Í hlut­verki Ellyjar stóð Katrín Halldóra á sviði í hverjum gala­kjólnum á fætur öðrum. Í Sex í sveit klæð­ist hún hins vegar kokkagalla og tekst á við hlut­verk sem ein fyndn­asta kona lands­ins lék fyrir tveimur ára­tugum.

„Ég leik kokk frá veislu­þjón­ustu Sex­baut­ans á Akureyri, þetta er hlut­verk sem Edda Björg­vins lék og gerði frægt fyrir 20 árum þegar leik­ritið var sett upp síð­ast. Og ég lendi svo­lítið inni í þess­ari lyga­flækju sem verður til þarna á svið­inu. Þetta er rosa­lega gaman, þetta er ekk­ert smá­skemmti­leg rulla og ég reyni bara að gera hana að minni. Það er gaman að fá að grín­ast og hlæja með fólki á svið­inu, það er mjög erfitt að halda and­liti, þetta er oft ótrú­lega fyndið. Það gengur á ýmsu og lygarnar verða alltaf fleiri og fleiri og maður flæk­ist alltaf meira og meira inn í lyga­vef­inn.“

En á 20 ára gam­all farsi við enn þann dag í dag? „Húmor hefur breyst rosa­lega mikið síð­ustu 20 árin þannig að það verða lík­lega ein­hverjar breyt­ingar á hvernig horft verður á farsa í dag. Þannig að það verður spenn­andi að sjá, en ég held að þetta sé ekta kvöld­stund fyrir fólk til að skella sér út og hafa gaman og gleyma sér og skemmta sér saman,“ segir Katrín Halldóra.

Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir. Mynd / Hákon Davíð

„Markmið leiksýninga að búa til skemmtilegar samverustundir“

Katrín Halldóra segir að nú sé kom­inn tími til að skella sér í leik­hús, hlæja og hafa gaman. „Það er aðal­mark­miðið að búa til móment og sam­veru­stundir sem eru skemmti­legar. Það verður gaman að sjá hvernig verður tekið í þennan farsa.“

Katrín Halldóra kemur frá Nes­kaup­stað og býr í Mos­fellsbæ. Kokk­ur­inn sem hún leikur kemur hins vegar, eins og áður sagði, að norðan. „Ég er að leika Akur­eyr­ing með norð­lenskan hreim þannig að það verður gaman að glíma við það. Það er eig­in­lega stærsta verk­efni mitt að glíma við norð­lenska hreim­inn,“ segir Katrín Halldóra í gríni.

„Aðal­verk­efnið núna er að halda and­liti á svið­inu.“

Með­leik­arar hennar í sýn­ing­unni eru Haraldur Ari Stef­áns­son, Jörundur Ragn­ars­son, Sigurður Þór Ósk­ars­son, Sólveig Guð­munds­dóttir og Vala Kristín Eiríks­dóttir. Gísli Rúnar Jónsson sá um að íslenska verk hins franska Marc Camoletti og Bergur Þór Ing­ólfs­son leik­stýrir.

„Við verðum með rennsli á sýn­ing­unni fyrir áhorf­endur alla vik­una fram að frum­sýn­ingu og það mun pott­þétt eitt­hvað skemmti­legt koma upp á. Það er aðal­verk­efnið núna að halda and­liti á svið­inu, hin eru svo fyndin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ