Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Raddir allra verða að fá að heyrast“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi fór ung að verða fyrir kyn­þátta­for­dómum sem hún segir að hafi aðal­lega verið í formi for­vitni en hún hafi ekki séð það þá, en hafi áttað sig á því þegar hún líti til baka.

„Raddir allra verða að fá að heyrast“
Mynd / Hallur Karlsson

„Ég er fædd hér á Íslandi en mamma fór með mig til Englands, þar sem pabbi minn sem er ætt­aður frá Tanzaníu býr, þegar ég var bara nokk­urra vikna gömul. Þar bjuggum við þangað til ég var sjö ára og þar sem ég tal­aði ekki íslensku var ég sett í nýbúa­deild­ina í skól­anum. Ég var mjög fljót að læra íslensk­una, en kunni eðli­lega ekki öll orðin.

Ég man eftir atviki þegar við vorum í lita­stund í skól­anum og einn krakk­inn bað mig um að rétta sér húð­lit­aða lit­inn. Ég vissi ekk­ert hvaða litur það var, en átt­aði mig fljót­lega á því að hann var að meina lit­inn sem ég hugs­aði um sem ferskju­lit­aðan. Ég hafði ekki áttað mig á því að í augum hvíta fólks­ins væri sá litur húð­lit­aður og það væri normið. Þetta hefur senni­lega verið í árs­byrjun 2000, þegar ég var sjö ára, og þetta hefur fylgt mér síðan.“

Sanna seg­ist hafa verið svo „heppin“ að hafa ekki orðið fyrir mjög grófum kyn­þátta­for­dómum, en það sé auð­vitað fárán­legt að líta á það sem heppni.

„Ég hef ekki orðið fyrir mjög ljótum eða ofbeld­is­fullum for­dómum,“ útskýrir hún. „Það var kallað á eftir mér „hey, negri, ég skeit á þig áðan,“ og svona komment, en aðal­lega er þetta for­vitni, fólk spyr hvaðan ég sé, hvort ég sé ætt­leidd, furðar sig á því hvað ég tali góða íslensku og alls konar svona spurn­ingar, jafn­vel frá ókunn­ugu fólki. Ég hef alltaf litið svo á að ég hafi verið heppin, en ég er auð­vitað farin að sjá það núna að það segir mikið um ástandið í þessum málum að líta á það sem heppni að verða ekki fyrir ofbeldi vegna lit­ar­hafts míns.“

Áreitið minnkað eftir framboðið

Spurð hvort að hún hafi ekki orðið fyrir meiri for­dómum eftir að hún leiddi Sós­í­alista­flokk­inn í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og var kosin í borg­ar­stjórn svarar Sanna, að merki­legt nokk þá hafi hún ekki orðið vör við það.

„Eitt sem ég hef alltaf tekið eftir er að fólk á mjög erfitt með að ná nafn­inu mínu,“ segir hún. „Ég hef meðal ann­ars verið spurð að því hvort Sanna sé afríska nafnið mitt en svo er ekki. En núna þegar fólk kann­ast meira við mann finnst því greini­lega ekk­ert mál að ná nafn­inu mínu, þannig að áreitið varð­andi upp­runa hefur minnkað eftir að ég fór í fram­boð og varð meira áber­andi. Ég átti alveg von á því að fá yfir mig ein­hverjar for­dóma­fullar athuga­semdir í kosn­inga­bar­átt­unni, þar sem fólk með dökkt lit­ar­haft í opin­berum stöðum hefur upp­lifað slíkt en ég man ekki eftir neinu slíku til­viki.“

Sanna segir þessa reynslu hafa vakið hana til umhugs­unar um það hvaða ein­stak­lingar fái að til­heyra þjóð­inni.

„Ég hef talað mjög opin­skátt um reynslu okkar mæðgna af fátækt hér og það er eins og fólki finn­ist þá að maður hafi öðl­ast rétt til að vera Íslend­ingur. Ég veit það ekki, er enn að reyna að kom­ast til botns í því hvernig fólk hugsar þetta. Kannski það að ég er Mörtu­dóttir hjálpi líka til, fólk sér þá að ég er íslensk í aðra ætt­ina.“

Fordómar ekki bundnir við aldur

Sanna seg­ist ekki treysta sér til að full­yrða að ras­ismi sé í sókn á Íslandi, kannski sé hann bara orð­inn meira áber­andi. Það sé erfitt að átta sig á því.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir fór ung að verða fyrir kyn­þátta­for­dómum sem hún segir að hafi aðal­lega verið í formi for­vitni.

„Maður heldur alltaf að for­dóm­arnir séu að minnka og vill vona það,“ segir hún. „Umræðan er að aukast og margir að tala gegn kyn­þátta­for­dómum og margir orðnir með­vit­aðir um að kyn­þátta­flokkun gengur ekki upp á líf­fræði­legum grunni, en svo kemur eitt­hvað upp og manni líður eins og við séum komin aftur til baka og að á ýmsum stöðum sé ras­ism­inn að aukast. Maður hélt að þetta væri aðal­lega eldra fólk sem hefði gam­al­dags hug­myndir en svo hef ég heyrt frá fólki á mínum aldri að ég og annað brúnt fólk séum ekki Íslend­ingar. Þannig að þetta virð­ist ekki vera bundið við eldri kyn­slóðir eða ákveðna þjóð­fé­lags­hópa.“

Sanna er með masters-próf í mann­fræði og masters-rit­gerðin fjallar um reynslu fólks af blönd­uðum upp­runa af því að til­heyra íslensku sam­fé­lagi, kom eitt­hvað í þeirri vinnu henni á óvart?

„Konurnar upp­lifðu meira áreiti en karl­menn­irnir, bæði til dæmis að fólk væri að snerta á þeim hárið án þess að biðja um leyfi og óvið­eig­andi kyn­ferð­is­legar athuga­semdir“

„Við­mæl­endur mínir upp­lifðu mjög sterkt að þeir væru taldir öðru­vísi,“ segir hún. „Og það var almenn skoðun þeirra að þótt þeir væru að hluta til með annan upp­runa en íslenskan gerði það þá ekki að minni Íslend­ingum en aðra. Konurnar upp­lifðu meira áreiti en karl­menn­irnir, bæði til dæmis að fólk væri að snerta á þeim hárið án þess að biðja um leyfi og óvið­eig­andi kyn­ferð­is­legar athuga­semdir. Bæði kyn upp­lifðu það að vera oft ávörpuð á ensku, spurð hvaðan þau væru „í alvör­unni“ og svo fram­vegis og allt hefur þetta auð­vitað áhrif á sjálfs­mynd­ina og hvernig fólk skil­greinir sjálft sig.“

Konurnar í kjallaranum sópa upp glerbrotin

Spurð hvaða ráð Sönnu detti í hug til að vinna á móti þessum for­dómum og vax­andi áróðri gegn inn­flytj­endum og þeim með erlendan bak­grunn segir hún að fyrst og fremst þurfi að auka umræðu og fræðslu.

„Við þurfum að tala mjög reglu­lega um þetta,“ segir hún. „Mér finnst til dæmis mik­il­vægt að tala nógu mikið um að hug­takið kyn­þáttur gengur ekki upp líf­fræði­lega. Það er búið að afsanna að það sé líf­fræði­legur munur á fólki eftir upp­runa og lit­ar­hætti. Þetta er menn­ing­ar­leg sköpun sem ber í sér félags­legan veru­leika og mótar líf fólks mjög mikið. Það gengur auð­vitað heldur ekki að þykj­ast vera lit­blindur og halda því fram að allt fólk sé eins og allir séu jafnir vegna þess að staðan er bara alls ekki þannig. Það eru ekki allir jafnir og það er komið fram við fólk á mis­mun­andi hátt eftir því hvort það er talið til­heyra ákveðnum „kyn­þætti“ eða ekki.

„Það er búið að afsanna að það sé líf­fræði­legur munur á fólki eftir upp­runa og lit­ar­hætti.“

Við viljum auð­vitað ekki við­halda því en við verðum samt að tala um hvaða afleið­ingar þessi skipt­ing hefur fyrir fólk og horfast í augu við það. Femín­ism­inn, bæði hér og erlendis, gengur líka út frá stöðu hvítra mið­stétt­ar­kvenna sem fæddar eru í land­inu og tala tungu­málið og það gengur alls ekki. Við þurfum að taka upp­runa, lit­ar­haft, stétt, efna­hags­lega stöðu og aðrar félags­legar stöður inn í umræð­una. Á meðan konur í góðum stöðum eru upp­teknar af því að brjóta gler­þök þurfa kon­urnar í kjall­ar­anum að sópa upp gler­brotin. Og það eru mjög oft konur með erlendan bak­grunn; konur í lág­launa­störfum. Mér finnst mjög mik­il­vægt að hleypa þeim að borð­inu og að raddir kvenna, af öllum upp­runa, með ólíkan bak­grunn, komi saman og vinni að lausn. Það breyt­ist aldrei neitt ef það eru bara raddir eins þjóð­fé­lags­hóps sem fá að heyr­ast.“

Sjá einnig: Kyn­þátta­for­dómar eru að aukast

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð