Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Neil Armstrong dýrkaði Ísland

Vænt­an­leg íslensk heim­ilda­mynd varpar nýju ljósi á líf geim­far­anna sem æfðu tungl­göngur á Íslandi. Fram­leið­andi mynd­ar­innar, Örlygur Hnefill Örlygs­son, seg­ist hafa viljað ein­blína á mann­lega þátt ferð­anna.

Neil Armstrong dýrkaði Ísland
Örlygur Hnefill Örlygs­son. |Æfingar Apollo-tungl­fara í Þing­eyj­ar­sýslum fóru fram á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þá sendi NASA tvo hópa Apollo-tungl­fara til lands­ins. Mark­miðið var að auka skiln­ing tungl­far­anna á jarð­fræði

„Það er þannig að ég er búinn að horfa á ótrú­lega margar myndir um tungl­ferð­irnar og hef áttað á mig á því að þær ein­blína meira og minna allar á tækni­legu hlið­ina. Mannlega þátt­inn hefur vantað. Þannig að mig lang­aði til að gera mynd sem kaf­aði ofan í þann hluta,“ segir Örlygur þegar hann er spurður hvað hafi vakið fyrir honum með gerð heim­ilda­mynd­ar­innar Cosmic Birth og hvernig hún sé frá­brugðin öðrum myndum um tungl­ferð­irnar. Með þessa nálgun að leið­ar­ljósi seg­ist hann hafa orðið margs vís­ari við gerð mynd­ar­innar.

„Geim­far­arnir sem ég ræddi við segj­ast til dæmis allir hafa hugsað mikið til fjöl­skyldna sinna enda óvíst að menn snéru aftur heim. Þeir segja líka allir að það merki­leg­asta við að kom­ast til tungls­ins hafi verið að sjá jörð­ina úr fjarska. Með öðrum orðum fóru þeir til tungls­ins og upp­götv­uðu jörð­ina. Það var sterkasta upp­lifun þeirra. Mér fannst grá­magnað að kom­ast að því. Og hvernig líf þess­ara manna sem voru algjör hörku­tól í upp­hafi tók stakka­skiptum. Einn, sem var mennt­aður verk­fræð­ingur úr flug­hernum, gerð­ist til að mynda ljóð­skáld. Annar mál­ari. Þessar ferðir gjör­breyttu þeim. Það hefur ekk­ert verið fjallað um það. Þar til nú.“

„Ég tal­aði meðal ann­ars við son Neils Arm­strong. Hann sagði mér að eftir tungl­ferð­ina árið 1969 hafi pabba hans eig­in­lega hvergi liðið betur en á Íslandi.“

Þegar Örlygur og félagar öfl­uðu efnis fyrir mynd­ina létu þeir sér þó ekki nægja að taka ein­göngu við­töl við geim­far­ana því í henni er einnig rætt við fjöl­skyldu­með­limi manna sem eru fallnir frá. „Ég tal­aði meðal ann­ars við son Neils Arm­strong,“ nefnir hann. „Hann sagði mér að eftir tungl­ferð­ina árið 1969 hafi pabba hans eig­in­lega hvergi liðið betur en á Íslandi. Það var eini stað­ur­inn sem hann fékk algjöran frið. Hann bast land­inu því sterkum böndum. Í því sam­hengi rifj­aði son­ur­inn upp ferð með pabba sínum til Íslands árið 1980 og segir að það haf verið einn besti tími sem þeir feðgar áttu saman. Það er margt svona sem kemur fram í þess­ari heim­ilda­mynd. Alls konar hlutir sem ekki hafa komið fram áður.“

Skemmti­legt ferli
En hvernig fékk Örlygur eig­in­lega allt þetta fólk, þar á meðal þjóð­þekkta Banda­ríkja­menn, til að koma fram í mynd­inni og ræða þetta? „Í stuttu máli má rekja það til Könn­un­ar­sögu­safns­ins sem ég stofn­aði á Húsavík 2009. Það ár heyrði ég fyrst af æfingum Apollo-geim­far­anna á Íslandi. Að þær hefðu farið fram nán­ast í bak­garð­inum okkar. Mér fannst það ótrú­lega merki­legt og fór að safna ýmsu sem því tengd­ist. Þannig varð safnið til. Í kjöl­farið setti ég mig í sam­band við nokkra geim­far­ana sem voru hér við æfingar og bauð þeim að heim­sækja safnið. Við höfum verð í góðu og reglu­legu bandi síðan þá og á ein­hverjum tíma­punkti rann allt í einu upp fyrir mér að ég var með óvenju gott aðgengi að mönnum sem tóku þátt í einum merki­leg­asta við­burði mann­kyns­sög­unnar.

Æfingar Apollo-tungl­fara í Þing­eyj­ar­sýslum fóru fram á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þá sendi NASA tvo hópa Apollo-tungl­fara til lands­ins. Mark­miðið var að auka skiln­ing tungl­far­anna á jarð­fræði, svo þeir gætu valið betur þau sýni sem þeir fluttu heim frá tungl­inu. Í mynd­inni Cosmic Birth segja nokkrir þeirra sögu sína. Leik­stjóri mynd­ar­innar er Rafnar Orri Gunn­ars­son. Tónlist er í höndum Óskars Andra Ólafs­sonar og Andra Freys Arn­ars­sonar. Color Waves og Könn­un­ar­sögu­safnið fram­leiða.

Og ljósi nálægðar við þessa menn og í ljósi alls þess sem þeir hafa sagt mér, sem er meira en ég hef nokkurn tím­ann heyrt þá segja opin­ber­lega, ákvað ég spyrja hvort þeir væru til í að ræða þetta í mynd, sem þeir og sam­þykktu, lík­ast til vegna góðs kunn­ings­skapar.“
Ljóst er að mikil vinna liggur baki gerð mynd­ar­innar og Örlygur neitar ekki að stundum hafi hún tekið á. „Já, enda við höfum verið að viða að okkur miklu efni í gegnum árin. Bara á fyrri hluta þessa árs flökk­uðum við til dæmis á milli sex fylkja í Banda­ríkj­unum til að taka við­töl við geim­far­ana. Svo hefur mikil vinna farið í eft­ir­vinnsl­una og við að láta semja tón­list fyrir mynd­ina en þetta hefur skemmti­legt ferli.“

Heim­ilda­myndin Cosmic Birth verður frum­sýnd sam­tímis í Bíó Paradís og á RÚV 20. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ