Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Zainab og fjölskyldu vísað úr landi í næstu viku

Shahnaz Safari og börn hennar tvö, Zainab og Amir, verður vísað úr landi í næstu viku standi ákvörðun íslenskra stjórn­valda. Ómar Örn Magn­ús­son, kenn­ari við Haga­skóla þar sem Zainab stundað nám, segir frá því í Facebook-fræslu að fjöl­skyld­unni hafi fyrir um tveimur vikum verið kunn­gjört að þeim yrði fylgt úr landi í næstu viku.

Zainab og fjölskyldu vísað úr landi í næstu viku
|||||||

Zainab er afgönsk að upp­runa en hefur þó aldrei búið í sínu stríðs­hrjáða heima­landi, heldur er hún fædd á flótta í Íran árið 2004 eins og hún sagði sjálf í við­tali í Mannlífi fyrr á árinu. „Þegar ég fædd­ist í Íran voru for­eldrar mínir á flótta undan stríð­inu í Afganistan og þar er enn stríð. Þannig að það er fátt sem bendir til þess að það komi til með að breyt­ast. Við vorum í tólf ár í Íran og Amir bróðir minn er líka fæddur þar en hann er tveimur árum yngri en ég. Lífið í Íran var skelfi­legt og þess vegna ákváðu for­eldrar mínir að leggja á flótta til Evrópu í von um betra líf og ein­hverja fram­tíð, sér­stak­lega fyrir mig og bróður minn.“

Ferðin frá Íran til Evrópu var gríð­ar­lega erfið enda fóru þau fyrst fót­gang­andi frá Norður-Íran eftir erf­iðum vegum og fjal­lendi til Tyrk­lands en þaðan tókst þeim svo að kom­ast með báti til Grikk­lands. Þegar þangað var loks­ins komið tók þó ekk­ert annað við en von­brigði og skelfi­legar aðstæður. Zainab segir að fyrst eftir að þau komu til Grikk­lands hafi þau verið sett á hót­el­her­bergi en það hafi aðeins varað í nokkra mán­uði á meðan verið var að setja upp flótta­manna­búðir þangað sem þau voru svo flutt í fram­hald­inu. En lífið í flótta­manna­búð­unum reynd­ist vera í alla staði skelfi­legt. „Þetta var ekki gott líf. Það var mikið um drykkju í flótta­manna­búð­unum og var stöðugt verið að slást og berj­ast um alla hluti. Það var ömur­legt.“

„Ef við verðum send aftur til Grikk­lands eigum við okkur ekk­ert líf.“

Zainab, móðir hennar og bróðir komu til Íslands síð­ast­liðið haust en faðir hennar er týndur á götum Grikk­lands eftir að hafa glímt við alvar­legt þung­lyndi um skeið en í raun er ekk­ert vitað um afdrif hans. Þrátt fyrir að sam­kvæmt lögum beri ríkjum að sinna þeim flótta­mönnum sem hafa fengið alþjóð­lega vernd til jafns við eigin þegna er það þó alls ekki raunin í Grikk­landi. Herfi­legt efna­hags­á­stand í land­inu á síð­ustu árum á sinn þátt í því og við slíkar aðstæður blossa oft upp kyn­þátta­for­dómar, skipu­lögð glæp­a­starf­semi með fíkni­efna­sölu og vændi á götum borg­anna og þannig mætti áfram telja.
Stað­reyndin er að þetta eru að öllum lík­indum þær götur og þær aðstæður sem bíða Zainab og fjöl­skyldu hennar verði þau send aftur til Grikk­lands.

Í við­tal­inu við Mannlíf sagði Zainab að hér hafi henni strax liðið vel. „Hér er friður. Friður eins og ég hef aldrei upp­lifað áður. Mér finnst líka vera fal­legt hérna og að fólkið sé ham­ingju­samt vegna þess að það brosir og er vina­legt.“

Zainab sagði enn­fremur að stuðn­ingur skóla­systk­ina hennar, sem hrintu af stað und­ir­skrifta­söfnun svo að fjöl­skyld­unni yrði ekki vísað úr landi, hafi glatt hana mikið. „Þetta gerir mig ham­ingju­sama. Það er gott að finna stuðn­ing og að allt þetta fólk reynir að hjálpa til. Núna vona ég bara að ég og mamma og bróðir minn fáum að vera hérna áfram og eign­ast fram­tíð. Það er draum­ur­inn.“

Þá sagði hún að óneit­an­lega væri hún hrædd við það sem ger­ist næst. „Ef við verðum send aftur til Grikk­lands eigum við okkur ekk­ert líf. Þar eigum við enga fram­tíð. Það er eflaust fínt að koma til Grikk­lands sem ferða­maður og skoða landið, eiga pen­inga og vera að ferð­ast, en það er ekki það sem bíður okkar. Það Grikk­land sem bíður okkar er allt annað og þar er ekki gott að búa.“

Mynd: Zainab ásamt skóla­fé­lögum í Haga­skóla. Ljós­mynd­ari Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð