Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Ostar í veisluna

Osta­bakkar eru löngu orðnir sígildir í veisluna og geta þeir verið mikil prýði á borðinu. Úrval osta, bæði innlendra og erlendra, fer vaxandi á Íslandi og því verður auðveldara fyrir fólk að fara út í búð og velja skemmtilega og ólíka osta til að bera fram í boðinu.

Á mínu heimili tíðkast að búa til veglegan ostabakka með ýmsu meðlæti eftir morgun­matinn á aðfangadag. Bakkinn er síðan settur á borð­stofuborðið og fær að sitja þar fyrir heimilis­menn og gesti og gangandi til að narta í. Þannig er alltaf eitthvert góðgæti fyrir þá sem koma óvænt í heimsókn og við getum verið róleg í undir­búningi jólanna.

Það er tími og staður fyrir bragð­bætta osta en ég hvet ykkur til að reyna að velja hreina osta þar sem bragð þeirra fær að njóta sín. Auðvitað eru engar reglur varðandi valið en gott er að miða við að vera með a.m.k. einn ost í hverjum flokki af eftir­farandi:

Þroskaður ostur – t.d. gouda, port salut eða cheddar
Mjúkur ostur – t.d. geita­ostur, brie eða camembert
Harður ostur – t.d. manchego, prima donna eða parmesan
Gráðostur – gorgonzola, stilton eða roquefort

Þegar búið er að velja ostana á bakkann þá er gott að hugsa um hvað parast vel með þeim. Hunang er frábært með gráðosti og geitaosti og fíkju­sulta passar með langflestum ostum. Pæklað grænmeti er gott til að hreinsa bragð­laukana á milli þess að naslað er á ólíkum ostum. Ferskir og þurrkaðir ávextir, ásamt ólífum og hnetum, er fallegt að setja á bakkann og þetta hráefni gerir alla osta betri. Einnig er gott að vera með dökkt súkkulaði, sterkt sinnep og ólífuolíu á bakkanum.

Vínber eru löngu orðin klassísk á osta­bakkann en gaman er að breyta frá þeirri venju og reyna að velja aðra ferska ávexti, t.d. mandarínur, fíkjur og sneiddar perur. Best er að velja þá ávexti í búðinni sem líta vel út og eru ferskir.

Þegar raðað er á osta­bakkann er gott að fylgja eftir­farandi röð: raðið ostinum á bakkann fyrst, setjið síðan skálar á bakkann með ólífum, pækluðu grænmeti og hunangi, næst er kjöt­álegginu raðað á bakkann, látið síðan ferska og þurrkaða ávexti og dreifið að lokum hnetum í bilin sem eftir eru.

Góð ráð

Leggið hníf fyrir hvern ost svo ostarnir smitist ekki þegar þeir eru skornir niður.

Takið ostinn úr ísskápnum a.m.k. einum klukku­tíma áður en hann er borinn fram. Bragð ostanna nær ekki að njóta sín ef þeir eru kaldir, ostar eru bestir við stofuhita.

Texti / Nanna Teits­dóttir
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni