Ekki er nema rúmt ár síðan Porter mætti í einstökum jakkafötum með útsaumi og herðaslá með bleiku fóðri á Golden Globe-hátíðina og síðan þá hefur hann sífellt komið á óvart á hinum ýmsu hátíðum í einstökum og íburðarmiklum fatnaði.

Porter stal senunni á Grammy-hátíðinni núna í janúar þegar hann klæddist bláum samfestingi og bar þennan sérstaka hatt. Hatturinn var skreyttur með perlukögri sem var hægt að draga fyrir andlitið og frá.

Billy Porter klæddist þessum eftirtektarverða síðkjól úr flaueli á Óskarnum í fyrra. Hönnuðurinn, Christian Siriano, á heiðurinn af hönnuninni.

Billy Porter á Met Gala í maí í fyrra. Hönnunartvíeykið The Blonds hannaði dressið sem Porter klæddist.

Billy Porter mætti í þessum einstöku fötum á Golden Globe-hátíðina í fyrra. Fötin eru úr smiðju Randi Rahm.

Porter klæddist samfestingi, sem leit raunar út fyrir að vera kjóll, frá hönnuðinum Hogan McLaughlin á Critics’ Choice Awards í janúar. Fiðrildamyndirnar á húð hans vöktu athygli en Porter sagði þær vera tileinkaðar trans-samfélaginu og baráttu transfólks til jafnréttis.
Mynd: KEREM YUCEL
Myndir / EPA































Athugasemdir