Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óttar um kórónaveiruna: „Ég held að það sem fólk óttast mest sé óvissan“

Óttar um kórónaveiruna: „Ég held að það sem fólk óttast mest sé óvissan“

Óttar M. Norð­fjörð rit­höf­undur býr í Barcelona ásamt spænskri eig­in­konu og tutt­ugu mán­aða gömlum syni. Þegar blaða­maður slær á þráð­inn til Óttars, dag­inn eftir að fyrsta veirusmitið greind­ist í Barcelona, eru þeir feðgar staddir á leik­velli í hverf­inu sínu og hann seg­ist ekki hafa orðið var við neina breyt­ingu á borg­ar­líf­inu þrátt fyrir þessa einu grein­ingu.

„En það getur auð­vitað breyst mjög hratt,“ við­ur­kennir Óttar. „Ef þú hringir aftur eftir tvo til þrjá daga getur ástandið verið orðið allt annað. Ég held að fólki finn­ist þetta fjar­lægt enn þá, það eru alla vega enn engin merki um paniká­stand hérna.“

Spurður hvort búið hafi verið að gera ein­hverjar ráð­staf­anir til að hamla útbreiðslu veirunnar áður en þetta til­felli kom upp seg­ist Óttar ekki hafa orðið var við það. „Þetta hefur auð­vitað verið í fréttum hér eins og ann­ars staðar og maður vissi alveg að það kæmi að því að veiran bær­ist hingað, en ég hef ekki orðið var við neinar aðgerðir. Það er að sjálf­sögðu ein­hver við­bragðs­á­ætlun farin í gang, bara eins og á Íslandi, en nú er þetta komið í aðeins alvar­legri gír, heyri ég á fólki og í fréttum í útvarp­inu.“

„Nú er þetta komið í aðeins alvar­legri gír, heyri ég á fólki og í fréttum í útvarp­inu.“

Fólki finnst enn að veiran sé ekki almennilega komin hingað

Óttar seg­ist þó hafa orðið var við að sumir séu mjög hræddir og ótt­ist til dæmis að senda börnin sín í skól­ann. „Ég er inni í nokkrum barna­grúppum á Facebook,“ útskýrir hann. „Og þar sá ég að margir voru hræddir og vildu ekki að börnin færu í skóla, þótt ég viti ekki annað en þeir séu allir opnir enn þá. Það er samt ekki gegn­um­gang­andi og ef maður væri ekki á Netinu og færi út í borg­ina í dag myndi mann ekki gruna að það væri ein­hver kór­óna­vírus í gangi. Fólk er enn mjög rólegt, ég hef séð örfáa með grímur fyrir and­lit­inu í gær og í dag og fólk er ræða það sín á milli hvað eigi að gera, en ég held fólk trúi því enn að veiran sé ekk­ert komin almenni­lega hér inn. Sú sem greind­ist er ítölsk kona sem var að koma frá Ítalíu og mér sýn­ist fólk taka því sem svo að þetta sé í raun­inni ekk­ert komið til meg­in­lands Spánar.“

Aðeins meðvitaðri en í gær

Sjálfur seg­ist Óttar ekki hræð­ast veiruna, sonur hans sé ekki á leik­skóla, hann vinni sjálfur heima hjá sér og konan hans sé nemi. Þau ráði því þess vegna nokkurn veg­inn sjálf hvort þau þurfi að hitta annað fólk eða ekki. „Ég segi svo sem ekki að maður sé alveg ósnort­inn af þessu,“ við­ur­kennir hann. „Maður er aðeins með­vit­aðri en í gær. Við feðgar förum til dæmis á hverjum degi á ein­hvern leik­völl og í dag valdi ég þann sem fæstir voru á og fer vænt­an­lega ekki á fjöl­menn­ustu leik­vell­ina eða í metró á háanna­tíma í dag og næstu daga.“

Óttar segir að sér finn­ist panikin í kringum veirusmitin frekar kjána­leg, þetta sé ekki eins mikið mál og fólk haldi. „Ef allir myndu bara þvo sér um hend­urnar og halda fyrir vitin þegar þeir hnerra og hósta þá ætti þetta að vera búið fljót­lega,“ segir hann. „Ég held að það sem fólk ótt­ast mest sé óvissan um það hvort, hvenær og hversu margir smit­ist. Það er aðal­um­ræðu­efnið í borg­inni í dag. Fólki er ekki alveg sama, en það er ekki komið á þann stað að vera skelf­ingu lostið. Það væri mjög röng mynd af ástand­inu í borg­inni að tala um eitt­hvert hræðslu­á­stand.“

Sjá einnig: Fjöl­skyldu­fríið breytt­ist í martröð: Upp­skurður, RS-vírus, sand­stormur og kór­óna­veira

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð