Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Táraðist við að sjá útkomuna

Hallmark-sjón­varps­myndin Love On Iceland, sem var kvik­mynduð á Íslandi í lok síð­asta árs, var frum­sýnd í Band­ríkj­unum laug­ar­dag­inn 18. jan­úar við góðar und­ir­tektir, en myndin er sú fyrsta sem banda­ríski sjón­varps­ris­inn tekur upp hér­lendis. Í sam­tali við Mannlíf segir Búi Bald­vins­son, eig­andi fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Hero Productions, sem hafði, auk Arnars Knúts­sonar eig­anda Filmus, umsjón með tök­unum, að myndir Hallmark fái að með­al­tali mikið áhorf og því sé myndin gíf­ur­leg land­kynn­ing.

Táraðist við að sjá útkomuna
|Búi Bald­vins­son
Búi Bald­vins­son, eig­andi fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Hero Productions.

„Þetta er ein stærsta áskrifta­sjón­varps­stöðin í Banda­ríkj­unum og hún er stór víða, til dæmis í Frakk­landi, Kanada og Bret­landi en það má segja að á meðan flestar sjón­varps­stöðvar hafa látið undan síga í bar­áttu við streym­isveitur hefur Hallmark verið að vaxa. Með­al­á­horf á eina mynd frá þeim er 10 millj­ónir manns bara fyrstu þrjá mán­uð­ina og 80 millj­ónir manns fyrsta árið. Þannig að það er við­búið að þessi mynd fái mjög mikið áhorf,“ segir Búi og bætir við að með hlið­sjón af því sé um gríð­ar­lega land­kynn­ingu að ræða. „Algjör­lega. Enda eru varla liðnar nema þrjár mín­útur af mynd­inni þegar Ísland ber fyrst á góma og í einni senu telur leið­sögu­maður, leik­inn af Jóel Sæmunds­syni, meira að segja upp vin­sæla ferða­manna­staði hér. Þannig að það fer nú ekki á milli mála hvar myndin ger­ist,“ segir hann og hlær.

„Við höfum aldrei kynnst öðrum eins hraða.“

Umrædd mynd, Love On Iceland, er fyrsta myndin sem Hallmark lætur gera á Íslandi og hluti af svo­kall­aðri Winterfest-seríu fyr­ir­tæk­is­ins, sem Búi útskýrir að séu róm­an­tískar myndir sem ger­ast að vetri til. Í þessu til­viki fjalli myndin um unga konu, fram­leið­anda hlað­varps­þátta, sem er orðin leið á umhverfi sínu og ákveður því að fá nokkra góða vini með sér í hress­ing­ar­ferð til Íslands. Þegar hingað er komið hitti hún óvænt gamlan kærasta og sé ekk­ert sér­stak­lega hress með það til að byrja með en ekki líði á löngu þar til kvikni í gömlum glæðum. Búi og Arnar Knútsson, eig­andi Filmus, tóku sig saman og sáu um fram­leiðslu á mynd­inni fyrir Hallmark en hún var öll tekin upp hér­lendis og í höndum íslensks tökuliðs. „Einu erlendu aðil­arnir voru leik­stjór­inn Clare Niederpruem, list­ræni stjórn­and­inn Dustin Rikard og einn aðal­fram­leið­and­inn Andrew Gernhard. Fyrir utan auð­vitað aðal­leik­ar­ana, Kaitlin Doubleday, Colin Donnell og Patti Murin,“ segir Búi og getur þess að þau séu öll þekkt nöfn í brans­anum úti.

Magnað að klára mynd á rúmum mánuði

Búi segir mjög sjald­gæft að svona hátt hlut­fall Íslend­inga komi að gerð erlendra mynda hér­lendis og eins sé óvenju­legt fyrir Hallmark-fyr­ir­tækið að skjóta mynd í heilu lagi utan Banda­ríkj­anna og Kanada. „Venju­lega eru mynd­irnar teknar upp í Kanada til að halda kostn­aði niðri en end­ur­greiðslan á Íslandi gerði fyr­ir­tæk­inu kleift að kvik­mynda hér. En það er að sjálf­sögðu ekki eina ástæðan fyrir því að Ísland varð fyrir val­inu, heldur var Hallmark á hött­unum eftir fal­legu sögu­sviði og fyrr­nefndur Andrew Gernhard hafði komið hingað áður, keyrt hring­inn og kol­fallið fyrir land­inu. Það var hann sem stakk upp á því við yfir­menn hjá Hallmark að gera mynd á Íslandi.“

Að sögn Búa var Gernhard ekki sá eini sem var hrif­inn, því leik­stjór­inn, list­ræni stjórn­and­inn og erlendu leik­ar­arnir hafi öll verið gang­tekin af feg­urð lands­ins. „Á fyrsta töku­degi vorum við í Skafta­felli og fórum með þyrlu upp á jökul og inn í íshelli. Þau höfðu aldrei upp­lifað annað eins og töl­uðu um að Ísland væri með fal­legri stöðum sem þau hefðu heim­sótt.“

Sjálfum fannst Búa hins vegar stór­merki­legt hvað veð­urguð­irnir reynd­ist tökulið­inu hlið­hollir því meðan á tökum stóð meðal ann­ars á Suð­ur­nesjum og víðar geis­aði allt um kring vonsku­veður, rign­ing og rok, sem þau sluppu alfarið við. „Það magn­að­asta var samt að hafa náð að skjóta heila kvik­mynd á fimmtán dögum, því yfir­leitt tekur það svona 25–40 daga. Við kláruðum tökur 6. des­em­ber, myndin var klippt á tveimur vikum og frum­sýnd 18. jan­úar, aðeins rétt rúmum mán­uði eftir að tökum lauk og það þrátt fyrir frí­dag­ana í kringum hátíð­arnar. Það er ótrú­legt að hún hafi farið í gegnum alla eft­ir­vinnslu á mán­uði. við höfum aldrei kynnst öðrum eins hraða,“ segir hann og tekur fram að þar hafi gott starfs­fólk og skipu­lag óneit­an­lega gert gæfumun­inn.

Frekara samstarf á döfinni

Spurður hvort frekara sam­starfi við Hallmark sé í kort­unum seg­ist Búi reikna fast­lega með því. „For­stjóri Hallmark er mjög ánægður með mynd­ina og við heyrðum líka að Samantha Dipippo, sem er aðal­fram­leið­andi yfir verk­efn­inu hjá fyr­ir­tæk­inu, hafi tár­ast við að sjá að útkom­una. Þau voru bæði yfir sig hrifin. Segjast aldrei hafa gert svona fal­lega mynd áður og á Twitter er fólk að tapa sér yfir íslensku nátt­úr­unni. Þannig að stefnan er að gera eina til tvær myndir til við­bótar á þessu ári. Myndir sem verða líka alfarið teknar upp hér­lendis. Það er hins vegar spurn­ing hvort þetta verða sjálf­stæðar myndir, eða hvort önnur myndin verði fram­hald á þess­ari. Það kemur bara í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ