Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Emilía Anna, VOGOR vol. I og Axel O & Co með ný lög

Emilía Anna, VOGOR vol. I og Axel O & Co með ný lög

Brakandi fersk tón­list úr smiðju íslenskra lista­manna.

Nýklass­ískt prógressíft rokk fyrir hugs­andi fólk
Hljóm­sveitin VOGOR vol. I hefur gefið út sína fyrsta plötu, en hún heitir ein­fald­lega VOGOR vol. Það eru þeir Árni Þór Árnason, Lárus Sig­urðs­son og Ólafur Jos­ephs­son sem skipa sveit­ina en þeir eru einnig með­limir sveit­ar­innar Stafrænn Hákon, sem hefur starfað um ára­bil og gefið út fjöl­margar hljóm­plötur. Sjálfir lýsa þeir nýju plöt­unni sem 21. aldar nýklass­ísku prógressífu rokki fyrir hinn hugs­andi mann. Á plöt­unni gætir margs konar áhrifa sem mótað hafa þá félaga eins og tón­list franska 19. aldar tón­skálds­ins Debussy, Sonic Youth og Cocteau Twins svo fátt eitt sé nefnt. Platan var að mestu leyti unnin í Stúdíó Vogor í Norð­ur­mýr­inni í vetur þegar Árni, Lárus og Ólafur hófu að kasta á milli sín nokkrum hörpu­lag­línum sem smám saman tóku á sig mynd „og urðu loks að kynd­ugum tón­list­ar­bræð­ingi sem dansar á milli hinnar mjúku klass­ísku áferðar þar sem meló­dían er í for­grunni og nýbylgju­rokks þar sem óheftum ung­gæð­ings­legum kraft­inum er hleypt á skeið um lendur lag­anna,“ eins og þeir sjálfir orða það.

Hefð­bundið kán­trí í bland við fleira
Hljóm­sveitin Axel O & Co hefur sent frá sér plöt­una There are Days. Með þess­ari plötu leitar sveitin inn í Texas Red Dirt Country-stíl­inn sem ein­kennt hefur lög sveit­ar­innar til þessa, og svo „cross over“ þar sem hefð­bundið kán­trí bland­ast öðrum stílum. Platan er nefnd eftir tit­il­lagi plöt­unnar og inni­heldur fjögur lög. Þetta er önnur plata sveit­ar­innar sem er skipuð þeim Axel O (söngur), Jóhanni Ásmunds (bassi), Sig­ur­geiri Sigmunds (gít­arar), Magnúsi Kjartans (hljóm­borð) og Fúsa Óttars (trommur). Gesta­söngv­ari er Jónína G. Ara­dóttir og bak­raddir skipa þau Drew Hall frá Texas og Hrafn­hildur Víglunds. Platan var tekin upp í Stúdío Paradís í Reykja­vík og að hluta í Rosewood Studios í Tyler, Texas. Pródúser var Jóhann Ásmunds­son.

Sendir frá sér sitt fyrsta lag
Tón­list­ar­konan Emilía Anna var að senda frá sér sitt fyrsta lag en það ber heitið Aldrei snert mig. Lagið þykir gríp­andi og text­inn skemmti­legur og greini­legt að Emilía Anna á fram­tíð­ina fyrir sér í tón­list­inni, að mati Albumm. Sjálf seg­ist Emilía vera með mörg lög í vinnslu um þessar mundir, en hún gerir allt sjálf; pródúsar, mixar og masterar. Tón­leika­hald sé jafn­vel á næsta leiti. Það er alla vega klárt mál að við á Albumm bíðum spennt eftir meira efni frá þess­ari ungu og efni­legu tón­list­ar­konu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu