Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég held að færri myndu beita ofbeldi ef þeir vissu hver áhrifin geta verið á börnin“

„Ég held að færri myndu beita ofbeldi ef þeir vissu hver áhrifin geta verið á börnin,“ segir Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins í sam­tali við Mannlíf.

Sig­þrúður var gestur á upp­lýs­inga­fundi al­manna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í síð­ustu viku og nýtti þá tæki­færið til að vekja vakti athygli á því að heim­il­is­of­beldi hefur gríð­ar­leg áhrif á börn, jafn­vel þó að þau verði ekki vitni af ofbeld­inu sjálfu.

„Börn eru snjöll í að þykj­ast vera sof­andi og þykj­ast ekki vita neitt.“

Hún segir algengt að for­eldrar sem verða fyrir eða beita ofbeldi telji sér trú um að börnin verði ekki fyrir áhrifum svo lengi sem ofbeldið bein­ist ekki gegn börn­unum. Sig­þrúður segir rann­sóknir þvert á móti sýna að það mælist ekki mik­ill mark­tækur munur á afleið­ingum þess fyrir barn að verða fyrir lík­am­legu ofbeldi heima hjá sér eða að verða vitni af ofbeldi sem barn hins vegar.

„Þetta er mjög algengt, að þol­andi og ger­andi halda að börnin viti ekki hvað sé að ger­ast. En börn eru snjöll í að þykj­ast vera sof­andi og þykj­ast ekki vita neitt,“ útskýrir Sig­þrúður.

Hún segir ger­endur og þolendur oft vera í miklum felu­leik varð­andi ofbeldið og að börnin skynji að þau eigi ekki að ræða ofbeldið. „Þetta er mikið leynd­ar­mál sem börnin taka þátt í,“ segir Sig­þrúður. Slíkur felu­leikur getur valdið börnum miklum kvíða að hennar sögn.

Áhrif á barnæsku og efri ár

Beðin um að nefna dæmi um þau áhrif sem barn getur orðið fyrir við það að alast upp á heim­ili þar sem heim­il­is­of­beldi er beitt segir Sig­þrúður: „Eig­in­lega allt slæmt sem getur komið fyrir fólk á lífs­leið­inni er lík­legra til að koma fyrir ein­stak­linga sem alast upp á heim­ili þar sem ofbeldi er beitt, bæði í barn­æsku og í fram­tíð­inni. Heim­il­is­of­beldi getur sem dæmi haft áhrif á svefn- og mat­ar­rútínu ungra barna og getu þeirra til að mynda tengsl. Þessi börn eru þá lík­legri til að lenda í vand­ræðum þegar þau koma inn í skóla­kerfið, t.d. í sam­skiptum,“ tekur Sig­þrúður sem dæmi. Hvað efri árin varðar segir hún: „Fólk er þá lík­legra til að eiga erfitt með að fóta sig á vinnu­mark­aði og rann­sóknir sýna núna að líkur á lang­vinnum sjúk­dómum eykst hjá þeim sem alast upp á heim­ili þar sem ofbeldi er beitt.“

„Ég held að færri myndu beita ofbeldi ef þeir vissu hver áhrifin geta verið á börnin,“ segir Sig­þrúður. Mynd / Hákon Davíð

Heim­il­is­of­beldi hefur ýmis bein og óbein áhrif á börn að sögn Sig­þrúðar. Hún segir and­rúms­loftið sem ríkir á heim­ilum þar sem ofbeldi er beitt geta valdið því að börn eru ekki sá mið­punktur sem þau þurfa að vera.

„Eina stund­ina er allt gott og allir vinir og þá næstu er allt kol­vit­laust. Þetta ástand étur upp alla ork­una og þá er engin orka eftir til að búa til rútínu fyrir barnið.“

Auðvelt að telja sér trú um að börnin viti ekki af ofbeldinu

Sig­þrúður segir algengt að konur sem leita í Kvenna­at­hvarfið eigi erfitt með að skil­greina ástandið sem ríkir á heim­il­inu. „Þær afsaka sig oft fyrir að vera að eyða tíma okkar. Þær segj­ast ekki vera beittar ofbeldi heldur séu bara í smávand­ræðum með karl­inn. Í við­tölum kemur svo jafn­vel í ljós að þær hafa verið beittar and­legu og lík­am­legu ofbeldi í mörg ár,“ segir Sig­þrúður. Hún bendir á að ef kon­urnar sjálfar eigi erfitt með að skil­greina og skilja það sem þær eru að upp­lifa sé auð­velt fyrir þær að telja sér trú um að börnin viti ekki af ofbeld­inu.

Að lokum tekur Sig­þrúður fram að þó að heim­il­is­of­beldi hafi gríð­ar­leg áhrif á börn þá sé ekki þar með sagt að þau séu dæmd til að lenda í vand­ræðum eða verða sjúk­lingar. „Það er hægt að hjálpa þessum börnum.“

Fróðleik um börn og ofbeldi er að finna inni á vef Kvenna­at­hvarfs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð