Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Biður gerendur heimilisofbeldis um að leita sér aðstoðar

Sigþrúður Guðmundsdóttir
Sig­þrúður Guð­munds­dóttir

Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, vakti athygli á því að bæði rann­sóknir og reynsla sýna að hætta á að heim­il­is­of­beldi auk­ist og verði alva­legra fær­ist í auk­ana á meðan sam­komu­bann er í gildi vegna útbreiðslu COVID-19.

Sig­þrúður beindi orðum sínum að ger­endum í erindi sínu á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hún hvatti þá sem beita heim­il­is­of­beldi til að leita sér aðstoðar.

Hún benti á algengt mynstur hjá þeim sem beita heim­il­is­of­beldi. Það fólk seg­ist gjarnan hafa misst stjórn á skapi sínu en full­vissar svo sam­býl­is­fólk sitt um að þetta komi ekki fyrir aftur að sögn Sig­þrúðar. „Það er ákveðin þver­sögn að segj­ast hafa missa stjórn á skapi sínu en segj­ast ekki ætla að gera þetta aftur.“

Hún hvatti fólk sem notar ofbeldi til að reyna að leysa ágrein­ing til að leita sér aðstoðar og benti á úrræði á borð við Heim­il­is­frið og hjálp­ar­sím­ann 1717.

Sig­þrúður hvatti þá þær konur sem hafa áhyggjur af ástandi heima hjá sér til að hafa sam­band við Kvenna­at­hvarfið til að ræða málin. Hún segir algengt að konur telji sér trú um að vanda­málið sé ekki nógu alvar­legt til að leita til Kvenna­at­hvarfs­ins en hún hvetur konur til að hringja og ræða málin í það minnsta. Hún segir alls konar úrræði í boði.

Sig­þrúður ræddi einnig mál­efni þeirra barna sem búa við heim­il­is­of­beldi. Hún segir algengt að full­orðið fólk sé sann­fært um að þau börn sem búa á heim­ili þar sem ofbeldi er beitt verði ekki fyrir áhrifum ofbeld­is­ins svo lengi sem ofbeldið bein­ist ekki gegn þeim. „Þetta er rangt,“ sagði Sig­þrúður. Hún segir rann­sóknir sýna að börn sem alast upp á heim­ili þar sem full­orðnir beita ofbeldi verða fyrir miklum áhrifum.

Hún biður fólk um að vera vak­andi og til­kynna ef grunur vaknar um að barn búi við óvið­un­andi aðstæður. Hún segir mik­il­vægt að fólk sé til­búið að rétta börnum hjálp­ar­hönd, ekki síst á tímum sem þessum.

Víðir Reyn­is­son tók undir með Sigþrúði. „Ef við sjáum eitt­hvað, segjum eitt­hvað.“

Vaktsími Kvenna­at­hvarf­ins er 561-1205.

Sjá einnig: Síminn rauð­gló­andi hjá Bjark­ar­hlíð: „Fólk sem beitir ofbeldi á mjög auð­velt með að nota þetta ástand sem enn eitt vopnið“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas