Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Síminn rauðglóandi hjá Bjarkarhlíð: „Fólk sem beitir ofbeldi á mjög auðvelt með að nota þetta ástand sem enn eitt vopnið“

Síminn rauðglóandi hjá Bjarkarhlíð: „Fólk sem beitir ofbeldi á mjög auðvelt með að nota þetta ástand sem enn eitt vopnið“
Ragna Björg Guð­brands­dóttir

Starfs­fólk Bjark­ar­hlíðar hefur varla undan við að svara sím­tölum. Teym­is­stjóri mið­stöðv­ar­innar segir auk­innar spennu gæta á heim­ilum fólks í ofbeld­is­sam­böndum út af sam­komu­banni sem ríki vegna Covid-19 far­ald­urs­ins.

„Við finnum klár­lega fyrir auk­inni spennu. Fólk er mikið að hringja til okkar. Það gerir sér jafn vel upp erindi til að kom­ast út úr húsi svo það geti hringt og rætt málin í næði. Síminn er búinn að vera rauð­gló­andi.“

Þetta segir Ragna Björg Guð­brands­dóttir teym­is­stjóri hjá Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis, þar sem starfs­fólk hefur varla undan við að svara sím­anum.

„Þetta er aðal­lega fólk, bæði konur og karlar, sem er komið á enda­stöð í ofbeld­is­sam­böndum og vill fá að vita hvernig það eigi að slíta þeim á öruggan hátt,“ útskýrir hún. „Það getur ekki komið hingað í mið­stöð­ina okkar í hefð­bund­inn við­tals­tíma út af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum sem geisar á land­inu og þess vegna leitar það ráða í gegnum sím­ann.

Fólk er mjög bjarg­ar­laust og á erfitt með að kom­ast í burtu – við gætum auð­veld­lega fyllt blokk­ina fyrir þolendur sem Sig­þrúður Guð­munds­dóttir hjá Kvenna­at­hvarf­inu er að láta byggja.“

„Fólk er mikið að hringja til okkar. Það gerir sér jafn vel upp erindi til að kom­ast út úr húsi svo það geti hringt og rætt málin í næði“

Að sögn Rögnu virð­ist sem eina ástæð­una fyrir þess­ari auknu spennu á heim­ilum fólks í ofbeld­is­sam­böndum megi rekja til þeirrar félags­legu ein­angr­unar sem fylgi sam­komu­bann­inu sem var sett á vegna Covid-19 far­ald­urs­ins.

„Já, við teljum að það útskýri meðal ann­ars aukna spennu heima hjá fólki,“ segir hún. „Sumir eru líka að missa vinn­una og eru með fjár­hags­á­hyggjur, það og fleira getur ýtt undir þessa spennu. Heimilið getur verið hættu­legur staður og þessir þolendur upp­lifa mikið varn­ar­leysi, að kom­ast ekki burt.“

Hún kveðst hafa miklar áhyggjur af þolendum sem af ein­hverjum ástæðum geta ekki leitað sér hjálpar. „Ég hef sér­stak­lega áhyggjur af konum af erlendum upp­runa, sem vita ekki hvert á að snúa sér,“ segir hún. „Þær hafa því miður ekki leitað nógu mikið til okkar af fyrra bragði í gegnum tíð­ina, heldur hafa aðal­lega verið að gera það í gegnum félags­þjón­ust­una og þá eftir að lög­regla hefur verið kölluð að heim­ili þeirra vegna heim­il­is­of­beldis. Ég hef áhyggjur af því að þær ein­angr­ist meira í þessu ástandi og verði fyrir auknum hót­unum. Fólk sem beitir ofbeldi á mjög auð­velt með að nota þetta ástand sem enn eitt vopnið.“

„Fólk sem beitir ofbeldi á mjög auð­velt með að nota þetta ástand sem enn eitt vopnið“

Ragna seg­ist búa sig undir að þegar böndum hafi verið komið á kór­óna­veiruna og sam­fé­lagið kom­ist nokkurn veg­inn í samt lag þá verði algjör sprengja hjá Bjark­ar­hlíð.

„Já, ég reikna með að margir muni leita til okkar í kjöl­farið,“ segir hún alvar­leg. „Þetta er nátt­úru­lega mjög hættu­legt ástand fyrir fólk sem er enn í ofbeld­is­sam­böndum. Svo er þetta líka streitu­vald­andi fyrir þá sem eru haldnir áfallastreituröskun eftir að hafa verið í ofbeld­is­sam­böndum og eru ekki komnir nógu langt í að vinna úr afleið­ingum þess.“

Hún bendir á að þar til hlut­irnir kom­ast í eðli­legt horf sé alltaf hægt að hafa sam­band við Bjark­ar­hlíð og fá síma­við­tal og svo í fram­hald­inu stuðn­ing hjá lög­fræð­ingum og ráð­gjöfum sam­starfs­að­ila.

Síminn hjá Bjark­ar­hlíð er 553-3000 og heima­síða er bjark­ar­hlid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi