Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekki einelti í lagalegu tilliti

Ekki einelti í lagalegu tilliti
Sævar Þór Jónsson

Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir var eina konan í slökkvi­liði Fjarða­byggðar þegar hún hóf störf þar sum­arið 2017. Hún upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði.

Mannlíf óskaði eftir skrif­legri grein­ar­gerð um mál Andreu frá Sævari Þór Jónssyni, lög­manni hennar og hann hafði þetta um málið að segja:

Í hverju felst kvörtunin?

„Umbjóð­andi minn, sem er fyrrum starfs­maður Slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, lagði fram kvörtun um ein­elti á vinnu­staðnum í júlí 2019 þar sem þess var kraf­ist, í sam­ræmi við lög og reglur, að málið yrði rann­sakað af hálfu sveit­ar­fé­lags­ins.

Í umræddri kvörtun voru gerðar alvar­legar athuga­semdir við starfs­hætti sam­starfs­manna umbjóð­anda míns, ekki síður við eft­ir­lit og aðgerða­leysi starf­andi slökkvi­liðs­stjóra sem brást ekki við hátt­sem­inni þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar umbjóð­anda míns um ein­elti á vinnu­staðnum.

Sveit­ar­fé­lagið féllst á að taka málið til skoð­unar og í sam­ræmi við reglu­gerð var utan­að­kom­andi ráð­gjafi feng­inn til að meta kvörtun­ina. Það verk önn­uð­ust þrír sál­fræð­ingar en vinna þeirra fólst m.a. í því að ræða við starfs­menn og stjórn­endur og gefa skýrslu um málið. Þessi skýrsla lá fyrir í des­em­ber í fyrra.

„Aftur á móti voru gerðar mjög alvar­legar athuga­semdir við þá hátt­semi sem umbjóð­andi minn þurfti að þola af hendi sam­starfs­manna sinna.“

Nið­ur­staðan var sú að ekki hafi verið um ein­elti að ræða í laga­legu til­liti, s.s. eins og ein­elti er skil­greint í reglu­gerð. Aftur á móti voru gerðar mjög alvar­legar athuga­semdir við þá hátt­semi sem umbjóð­andi minn þurfti að þola af hendi sam­starfs­manna sinna. Í mörgum til­vikum var hún ófag­leg og í öðrum órétt­læt­an­leg eins og segir í skýrsl­unni. Þá var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­endur hefðu brugð­ist umbjóð­anda mínum með því að hafa ekki gripið fyrr til aðgerða í sam­ræmi við lög og reglur.“

Fjallað er um mál Andreu í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Hvar er málið statt?

„Þrátt fyrir að nið­ur­staðan hafi, strangt til tekið, ekki talist ein­elti í laga­legu til­liti var um alvar­lega hátt­semi að ræða sem bitn­aði á umbjóð­anda mínum með ósann­gjörnum hætti enda hrökkl­að­ist hún frá störfum haustið 2018 og er óvinnu­fær í dag. Í hátt­sem­inni fólst því ólög­mæt mein­gerð gegn per­sónu umbjóð­anda míns sem sveit­ar­fé­lagið ber ábyrgð á. Sá miski skal bættur eftir því sem sann­gjarnt þykir hverju sinni.

Vegna þessa var með bréfi nú fyrir stuttu lögð fram krafa um miska­bætur, sjúkra­kostnað og lög­manns­kostnað úr hendi sveit­ar­fé­lags­ins. Kröfu­bréf umbjóð­anda míns er nú til skoð­unar sem sveit­ar­fé­lagið þarf að taka afstöðu til áður en lengra er haldið.

Verði kröf­unni hafnað eða ein­stökum kröf­uliðum þá þarf að fylgja kröfu­bréf­inu eftir með máls­höfðun.“

Hver eru for­dæmin í dómum í svip­uðum málum?

„Miska­bætur eru almennt mjög lágar í íslenskum rétti. Mat á miska­bótum er atvika­bundið enda er ekki stuðst við einn almennan og hlut­lægan mæli­kvarða eða ein­hverja reikni­for­múlu. Úrlausnir dóm­stóla gefa okkur hins vegar ákveðnar vís­bend­ingar.

Einnig er gerð krafa um end­ur­greiðslu sjúkra­kostn­aðar, en um er að ræða sál­fræði­kostnað í kjöl­far atviks­ins, kostnað vegna koma á heilsu­gæslu og lyfja­kaupa.

Þá er einnig gerð krafa um end­ur­greiðslu lög­manns­kostn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð