Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Eftir samúðarkvakið í janúar ríkir þögnin ein“

„Eftir samúðarkvakið í janúar ríkir þögnin ein“
Reynir Trausta­son, editor of Mannlíf.

„Fá sam­fé­lög á Íslandi hafa gengið í gegnum meiri raunir en Flat­eyr­ingar. Öll þjóðin man eftir snjó­flóð­unum sem lögðu plássið í rúst árið 1995 og urðu 20 manns að bana. Nátt­úru­ham­far­irnar urðu til þess að mikil og við­var­andi fólks­fækkun varð á staðnum. Við bætt­ist að nokkrum árum síðar var seldur í burtu allur kvóti stað­ar­ins og stærsti atvinnu­rek­and­inn pakk­aði saman og fór suður til Hafn­ar­fjarðar,“ segir Reynir Trausta­son rit­stjóri Mannlífs í leið­ara sínum.

Rifjar hann upp að þegar snjó­flóðin féllu árið 1995 var komið á fót söfnun sem hét Samhugur í verki, sem ætlað var að létta fólk­inu á Flateyri lífið eftir hörm­ung­arnar. Þegar flóðið féll í jan­úar á þessu ári fengu íbúar samúð allra lands­manna, enda ham­far­irnar reið­ar­slag fyrir þorpið.

„Í jan­úar á þessu ári féll aftur snjó­flóð á stað­inn. Snjó­flóða­garðar stað­ar­ins björg­uðu því að ekki varð önnur eins hroll­vekja og fyrir 25 árum. En samt mátti minnstu muna að ung stúlka léti lífið og heppni réði því að ekki var fólk við smá­báta­höfn­ina þegar flóðið skall á mann­virkj­unum. Þrátt fyrir öfl­ugar varnir varð eitt hús fyrir flóð­inu og smá­báta­höfnin og bát­arnir þar fóru í rúst. Með snar­ræði björg­un­ar­manna tókst að grafa unga stúlku upp úr rústum húss­ins. En bát­arnir í höfn­inni fóru og á einu augna­bliki var atvinnu­lífið í rúst. Íbúarnir urðu fyrir stór­á­falli. Harm­leik­ur­inn frá árinu 1995 rifj­að­ist upp með til­heyr­andi sárs­auka.“

Ráðamenn sýndu samhug í orði, en ekki í verki

Ráðamenn þjóð­ar­innar flugu vestur til að sýna sam­kennd sína og skoða aðstæður, auk þess sem þeir full­vissuðu íbúa um að allt yrði gert til að reyna að bæta þeim áfallið.

„Ekki er ástæða til að efast um að ráða­mönn­unum hafi verið alvara með að veita allt það lið­sinni sem þyrfti. En reyndin varð önnur,“ segir Reynir.

„Atvinnu­lífið í þorp­inu er enn lamað. Þeir sem urðu fyrir tjóni eru að berj­ast fyrir því að fá bætur frá trygg­ingum eða öðrum þeim sem bæta tjón vegna nátt­úru­ham­fara. Allt stendur fast. Flateyri er hluti af Ísa­fjarð­arbæ. Bæj­ar­yf­ir­völd hafa það helst sér til frægðar unnið að hóta sektum og við­ur­lögum ef báts­eig­andi, sem missti bát sinn í ham­för­unum næði ekki bátnum upp á eigin kostnað. Aðrir standa í þeim sporum að trygg­ingar duga engan veg­inn til að bæta tjónið og taka upp hefð­bundin störf. Fólkið á Flateyri á betra skilið.“

Íbúar sárir vegna svikinna loforða

Lítið hefur þó orðið um efndir stjórn­valda, eins og Reynir fer yfir og segir hann stjón­völd mega skamm­ast sín og bæta eigi fólk­inu á Flateyri tjónið og fyr­ir­byggja að annað eins geti gerst.

„Nauð­syn­legt er að bæta fólki að fullu það tjón sem varð á eigum þess. Þá þarf að end­ur­bæta snjó­flóða­garð­ana. Loks þarf að tryggja atvinnu á Flateyri. Einfalda leiðin er sú að úthluta byggð­ar­kvóta til stað­ar­ins. Ekki láta svikin lof­orð verða minn­is­varða um hörm­ung­arnar,“ segir Reynir.

„Íbúarnir eru að vonum sárir í garð stjórn­valda. Eftir sam­úð­ar­kvakið í jan­úar ríkir þögnin ein. Þyrlan með ráða­mönn­unum er farin suður, rétt eins og kvót­inn og hand­hafi hans áður. Orðin tóm standa eftir. Hjól atvinnu­lífs­ins á Flateyri eru að ryðga föst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ