Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslendingar halla sér að flöskunni

Íslendingar halla sér að flöskunni
Mynd / Unnur

Þó að hér séu engir ferða­menn og engar veislur fari fram hefur sala áfengis hjá ÁTVR auk­ist mikið í mars­mán­uði, miðað við í fyrra. Lýð­heilsu­fræð­ingur varar fólk við að nota áfengi til að deyfa sig ef fólk upp­lifir van­líðan á tímum sam­komu­banns.

Íslend­ingar keyptu 82 pró­sent fleiri lítra af áfengi síð­ast­lið­inn mánu­dag, dag­inn áður en hert sam­komu­bann tók gildi, sam­an­borið við mánu­dag fyrir ári. Fyrstu þrjár vik­urnar í mars jókst salan í Vínbúðum lands­ins að jafn­aði um 20 pró­sent á milli ára. Íslend­ingar virð­ast halla sér að flösk­unni á tímum COVID-19 og sam­komu­banns.

Í svari Sigrúnar Óskar Sig­urð­ar­dóttur, aðstoð­ar­for­stjóra Vín­búð­ar­innar, við fyr­ir­spurn Mannlífs kemur fram að hert sam­komu­bann, sem tók gildi á þriðju­dag, sé lík­leg skýr­ing á þess­ari miklu sölu á mánu­dag­inn. „Við höfum hvatt við­skipta­vini til að versla fyrr að deg­inum og fyrr í vik­unni til að minnka álag og ekki skal full­yrt hvort það sé skýr­ingin á þess­ari miklu mánu­dags­sölu.“

„Fólk þarf að ganga hægt um gleð­innar dyr og ekki nýta áfengi til að deyfa sig.“

Fyrstu vik­una í mars seldu Vín­búð­irnar rúma 488 þús­und lítra af áfengi. Í fyrstu vik­unni í fyrra var salan 371 þús­und lítrar. Sölu­aukn­ingin mælist 32 pró­sent á milli ára. Í annarri viku mæld­ist sölu­aukn­ingin níu pró­sentum meiri en í sömu viku í fyrra en aukn­ingin var 13 pró­sentum meiri í viku þrjú, miðað við þá viku í fyrra.

Rafn Magnús Jónsson, verk­efn­is­stjóri áfengis- og vímu­varna hjá Embætti land­læknis.

„Það er alveg við­búið að ein­hverjir haldi að það sé góð leið að nota áfengi til að takast á við streitu­á­stand – til að róa sig niður,“ segir Rafn Magnús Jónsson, verk­efn­is­stjóri áfengis- og vímu­varna hjá Embætti land­læknis. Hann segir að mik­il­væg­ast sé að hreyfa sig reglu­lega, borða hollan mat og sofa. „Áfengi getur haft áhrif á gæði svefns og getur haft sam­verk­andi áhrif á virkni ónæm­is­kerf­is­ins,“ útskýrir hann.

Rafn segir að Embætti land­læknis deili áhyggjum af auk­inni áfeng­is­neyslu á tímum sam­komu­banns með öðrum stofn­unum og fag­að­ilum sem komi að lýð­heilsu. Hann segir að áfeng­is­neysla geti haft í för með sér slæm sam­skipti innan fjöl­skyld­unnar og á líðan barna. Best sé að neyta áfengis í mjög litlum mæli og helst sleppa því alveg, ekki síst við þessar kring­um­stæður. „Það eru engin þekkt mörk um skað­leysi áfengis,“ segir Rafn og bætir við að áfengi sé ekki nauð­syn­legt nema til að þvo sér um hend­urnar.
Aukning þó ferða­menn­ina vanti

Fljótt á litið má reikna með að ýmsar breytur hafi áhrif á sölu áfengis í Vín­búð­unum. Í grein­ingu Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans frá árinu 2017, sem var fjöl­menn­asta ferða­manna­árið, kemur fram að senni­lega hafi ferða­menn keypt 11,6 pró­sent af því áfengi sem selt var í Vín­búð­unum það ár. Sala áfengis til ferða­manna í þessum mars­mán­uði er senni­lega lítil sem engin, vegna far­ald­urs­ins. Það gæti gefið vís­bend­ingu um að sölu­aukn­ingin til Íslend­inga sé í raun meiri en þessar tölur gefa til kynna. Á hinn bóg­inn má benda á að sala áfengis á börum og veit­inga­húsum hefur síð­ustu dag­anna verið lítil sem engin.

Mars­mán­uður er vin­sæll tími til að halda árs­há­tíðir fyr­ir­tækja og stofn­ana. Í slíkum veislum er oft mikið fram­boð af áfengi, sem og í öðrum sam­kvæmum. Ein­hverjir slíkir við­burðir kunna að hafa farið fram allra fyrstu daga mán­að­ar­ins, en fyrsta smitið á Íslandi greind­ist 28. febr­úar. Formlegt sam­komu­bann tók gildi 16. mars en fyrir þann tíma hafði ótal við­burðum verið frestað. Sem dæmi má nefna að árs­há­tíð Póstsins, sem átti að fara fram í mars, var frestað 3. mars. Sama dag var árs­há­tíð Össurar frestað, svo annað dæmi sé tekið. Sala áfengis í versl­unum ÁTVR í mars­mán­uði er því senni­lega fyrst og fremst til ein­stak­linga sem kaupa það til eigin nota, ólíkt því sem var í mars 2019.

Lýð­heilsu­fræð­ing­ur­inn Sigríður Kristín Hrafn­kels­dóttir segir í sam­tali við Mannlíf að ekki sé gott að nýta áfengi sem bjarg­ráð, hvorki á tímum COVID-19 né þegar aðrir erf­ið­leikar steðja að. „Fólk þarf að ganga hægt um gleð­innar dyr og ekki nýta áfengi til að deyfa sig.“ Hún segir að þessar tölur bendi til þess að Íslend­ingar séu að halla sér í meira mæli að áfengi. „Það sem á að vera í fyrstu sæt­unum er góður svefn, hreyf­ing og heil­brigt matar­æði,“ segir hún.

Vill leyfa áfengi í íslenskum netverslunum

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra nýtti ástandið vegna COVID-19 til að vekja athygli á því sjón­ar­miði hennar að mik­il­vægt væri að auð­velda aðgengi að áfengi. „Ef ein­hvern tím­ann væri þörf fyrir lög­lega net­verslun með áfengi,“ sagði hún á Twitter og lét fylgja teikn­aða mynd af konu að yppta öxlum.

Ráð­herr­ann hefur und­an­farið unnið að því að heim­ila vef­verslun með áfengi. Við því hefur Félag lýð­heilsu­fræð­inga, Embætti land­læknis og fleiri aðilar varað mjög ein­dregið. Aukið aðgengi muni hafa aukna neyslu í för með sér og áfengi sé skað­valdur í sam­fé­lag­inu. Á Twitter var Áslaugu bent á að áfengi væri engin venju­leg vara. Fjöl­margir ættu í erf­ið­leikum með það.

„Ég geri mér grein fyrir þessum atriðum. Málið er eitt af fjöl­mörgum málum sem ég hef unnið að í ráðu­neyt­inu und­an­farið hálft ár. Í dag hafa Íslend­ingar aðgengi að þús­undum net­versl­ana með áfengi. Íslenskir atvinnu­rek­endur senda áfengi erlendis [sic] svo Íslend­ingar geti keypt það í gegn um erlendar net­versl­anir. Aðgengi með 10-30 íslenskum net­versl­unum mun ekki vera telj­andi aukið aðgengi, miðað við sífellt fleiri ÁTVR búðir sem opna og lengja opn­un­ar­tíma og sífellt fleiri veit­inga­staði með vín­veit­inga­leyfi,“ skrif­aði Áslaug Arna og bætti við að ólög­leg sala áfengis væri í gangi víða. Betri árangri mætti ná með auk­inni áherslu á for­varnir.

Rafn M. Jónsson hjá Embætti land­læknis segir aðspurður um ummæli ráð­herr­ans að áfengi ætti ekki að vera for­gangs­mál hjá neinum. „Áfengi er á þessum tímum ekki það fyrsta sem maður ætti að panta sér á Netinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ