Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Viðbrögð íbúa Grindavíkur við risaskjálfta í morgun: „Mér leið skelfilega, ég er ofboðslega hrædd við jarðskjálfta“

Viðbrögð íbúa Grindavíkur við risaskjálfta í morgun: „Mér leið skelfilega, ég er ofboðslega hrædd við jarðskjálfta“
Þorbjörn Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Jarð­skjálfti upp á 5,1 að stærð varð í morgun við Fagra­dals­fjall við Grinda­vík. Skjálft­ans varð vart víða, meðal ann­ars á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og kall­aði Veð­ur­stofa Íslands út auka­mann­skap. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur mikil jarð­skjálfta­virkni verið á svæð­inu á árinu, en skjálft­inn í morgun er sá stærsti til þessa.

Mannlíf heyrði í nokkrum íbúum Grinda­víkur, sem allir urðu vel varir við skjálft­ann. Þó að lítið eigna­tjón hafi orðið hjá þeim sem Mannlíf ræddi við brá þeim öllum veru­lega og nokkrir voru skelf­ingu lostnir.

„Ég held að það sé erfitt að setja sig í stöðu okkar í Grinda­vík með óvissu­stimpil í und­ir­með­vit­und­inni ofan á þessa skjálfta og drun­urnar sem óma um bæinn. Við reynum nú að halda okkur niðri en í svona augna­blikum falla bara allar varnir.“
Halla Mynd / Facebook

„Já ég fann skjálft­ann, ég er heima með veikt barn,“ segir Halla Þórð­ar­dóttir og seg­ist hafa verið nýbúin að finna einn lít­inn hnykk og þá hugsað: „Hmmm bíddu nú við.“ Hún hafi þá farið að skoða skjálfta­yf­ir­lit og séð að skjálfta­virkni var að aukast þegar stóri skjálft­inn kom. „Manni bregður veru­lega, myndir og mynd­lyk­ill hrundu niður og ég rauk til sonar míns sem var mjög hissa. Enda hans fyrsta upp­lifun. Manni stendur alls ekki á sama yfir þessu og lýst alls ekki á blik­una. Engir hlutir skemmd­ust en ég er búin að finna sprungur sem voru alls ekki í gær á veggjum innan húss.“

Hún segir íbúa reyna að halda ró sinni, en þegar svona ger­ist þá auk­ist ótt­inn. „Ég held að það sé erfitt að setja sig í stöðu okkar í Grinda­vík með óvissu­stimpil í und­ir­með­vit­und­inni ofan á þessa skjálfta og drun­urnar sem óma um bæinn. Við reynum nú að halda okkur niðri en í svona augna­blikum falla bara allar varnir. En maður er fljótur að vinna sig niður.“

Anna Sigga Mynd / Facebook

Anna Sigga Sig­urð­ar­dóttir var við vinnu sína í verslun Nettó. „Ég hélt að speg­ill­inn í græn­met­is­horn­inu myndi brotna. Enn það fór alla­vega ekk­ert úr hillum,“ segir Anna Sigga.
Ég er svo slök samt yfir þessu öllu saman, ég er búin að bíða eftir að það kæmi skjálfti svo umræða um kór­ónu­far­ald­ur­inn myndi minnka. Ég er komin með ógeð af þeirri umræðu.“

Stella Mynd / Facebook

„Ég er heima að jafna mig eftir aðgerð á ökkla og lá við að ég hafi gleymt því til að hlaupa út,“ segir Guðveig Sig­ur­laug Ólafs­dóttir (Stella) og segir hún að sér hafi liðið skelfi­lega þegar skjálft­inn reið yfir. „Ég fraus í smá tíma, svo komu nokkur auka slög.“ Hún seg­ist hrædd við skjálfta­virkn­ina á svæð­inu, enda alltaf verið hrædd við jarð­skjálfta. „Ég hélt að þetta væri að kom­ast upp í vana eins og með alla hina litlu, en þessi var eitt­hvað annað og kæm­ist aldrei upp í vana.“ Aðspurð sagði hún að ekk­ert hefði skemmst á heim­il­inu við skjálft­ann.

„Ég var nýsest í sófann heima þegar skjálft­inn kom, og hann var svaka­legur. Mér fannst hann svo langur. Ég er með hang­andi ljós í stof­unni og það sveifl­að­ist heil­lengi,“ segir Þórdís Anna Þór­ar­ins­dóttir.  „Ég er ekki beint hrædd við skjálfta­virkn­ina, en mér stóð alls ekki á sama núna! Það skemmd­ist ekk­ert en ég sé að hlutir hafa færst aðeins til, myndir og svo­leiðis.  Ef það fer að verða mikil skjálfta­virkni þá tek ég hluti niður úr hillum og fer í sveit­ina.“

Guðrún Kristín Mynd / Facebook

„Mér dauð­brá, var með svaka hjart­slátt og gæsa­húð í langan tíma eftir á! Get svarið það að húsið mitt fór af stað,““ segir Guðrún Kristín Ein­ars­dóttir, sem var heima hjá sér með nýfæddan son sinn. Aðspurð um hvort hún sé hrædd við skjálfta­virkn­ina á svæð­inu seg­ist hún ekki láta hana trufla sig, „en við­ur­kenni að þessi í morgun kom pump­unni vel af stað!“ Hún segir ekk­ert hafa skemmst á heim­il­inu við skjálft­ann, „enda hreyfð­ist ekk­ert á heim­il­inu nema ég og litli nýfæddi gaur­inn minn hló bara af mömmu sinni.“

„Mér leið skelfi­lega, ég er ofboðs­lega hrædd við jarð­skjálfta,“ segir Þor­gerður Elí­as­dóttir. „Ég bý í timb­ur­húsi og ég horfði á vegg­ina hér í stof­unni og mér fannst þeir ganga í bylgjum,“ segir hún, en bætir þó við að ekk­ert hafi skemmst. „Ég nötra og skelf enn úr hræðslu.“

Berglind Mynd / Facebook

„Það glumdi vel í öllu hér heima, en ekk­ert skemmd­ist,“ segir Berglind Kol­beins­dóttir, sem var heima hjá sér. „Skjálft­inn var mjög stór og langur og ég fékk mikið sjokk eftir á. Ég er mjög hrædd við skjálfta­virkn­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ