Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þó nokkrar umsóknir um að gefa egg eða sæði bárust fyrsta sólarhringinn

Þó nokkrar umsóknir um að gefa egg eða sæði bárust fyrsta sólarhringinn
Helga Sól Ólafs­dóttir sem hefur 20 ára reynslu í mál­efnum sem varða gjafa­kyn­frumur mun bera ábyrgð á starf­sem­inni á Íslandi..|„Íslend­ingar eru almennt til­búnir að hjálpa náung­anum

Eggja- og sæð­is­bank­inn Livio Ísland var opn­aður fyrir skemmstu. Meg­in­mark­mið hans er að fá bæði eggja- og sæð­is­gjafa til að svara auk­inni eft­ir­spurn eftir gjafa­eggja og -sæði á Íslandi.

Helga Sól Ólafs­dóttir, umsjón­ar­maður eggja- og sæð­is­banka Livio Ísland, segir Íslend­inga greini­lega vera áhuga­sama um að gefa egg eða sæði því strax fyrsta sól­ar­hring­inn höfðu þó nokkrar umsóknir borist.

„Það er greini­lega tölu­verður áhugi og vilji til að hjálpa,“ segir Helga Sól. „Íslend­ingar eru almennt til­búnir að hjálpa náung­anum. Það er ríkt í þjóð­ar­sál Íslend­inga að hjálp­ast að þegar þörf er á.“

„Oft á tíðum eru þetta ein­stak­lingar sem þekkja ein­hvern sem glímir við ófrjó­semi.“

Spurð út í hvaða fólk sé helst sækja um að gefa egg eða sæði segir Helga þetta oft vera fólk sem þekkir ein­hvern sem hefur gengið í gegnum erf­ið­leika og sárs­auka sem fylgir því að vilja eign­ast barn en getur það ekki. „Oft á tíðum eru þetta ein­stak­lingar sem þekkja ein­hvern sem glímir við ófrjó­semi. Þessir ein­stak­lingar vilja láta gott af sér leiða,“ segir Helga Sól. Hún bætir við að það sé til­tölu­lega lítið mál að ger­ast gjafi. „En fyrir þá sem þiggja egg eða sæði þá er þetta ómet­an­leg gjöf.“

Ekki allir sem henta sem gjafar

Spurð út í hvað felist í því að ger­ast gjafi segir Helga Sól að við­kom­andi þurfi að upp­fylla ákveðin skil­yrði áður en umsóknin er sam­þykkt. Við­kom­andi þarf að vera heilsu­hraustur and­lega sem lík­am­lega, með góða frjó­semi, laus við arf­genga sjúk­dóma og án smit­sjúk­dóma. Fólk þarf að svara ítar­legri heilsu­fars­skýrslu, fara í blóðprufu og karl­menn fara í sæð­is­rann­sókn. Þá þarf að mæta í lækn­is­heim­sókn og fara í við­tal hjá félags­ráð­gjafa,“ segir Helga Sól.

„Það eru ekki allir sem henta sem gjafar. Um 5-10% karla sem sækja um að ger­ast gjafar eru sam­þykktir. Um 50% kvenna geta orðið gjafar. Við­kom­andi verður að vera á ákveðnum aldri, vera frjó­samur, ekki reykja og vera undir 32 í BMI-þyngd­ar­stuðli.“

„Íslend­ingar eru almennt til­búnir að hjálpa náung­anum,“ segir Helga Sól.

Spurð nánar út í við­talið við félags­ráð­gjafa segir Helga Sól: „Í við­tal­inu er fólk spurt út í af hverju það vill ger­ast gjafi. Hvað for­sendur liggja að baki ákvörð­un­inni. Við­kom­andi fær svo fræðslu og er beð­inn um að velta ýmsum mögu­leikum fyrir sér, t.d. hvernig myndi hann eða hún bregð­ast við ef barn myndi óska eftir að hitta við­kom­andi eftir 18 ár? Gjafinn þarf að geta tekið upp­lýsta ákvörðun.“

Eggja- og sæðisgjafar þurfa að upplýsa sína nánustu

Með til­komu eggja- og sæð­is­banka Livio Ísland geta íslenskir karl­menn nú í fyrsta sinn orðið gjafar en íslenskar konur hafa lengi getað gefið egg, allt frá árinu 1998. Spurð út í hvort smæð Íslands geti ekki valdið vanda­málum í tengslum við eggja- og sæð­is­gjafir segir Helga Sól: „Þetta er eitt að því sem við ræðum við gjafa, hann þarf að upp­lýsa sína nán­ustu um að hann eða hún ætli að ger­ast gjafi, for­eldrar, systk­ini og hálf­systk­ini við­kom­andi þurfa að hafa vit­neskju um það. Svo þarf gjafi auð­vitað að ræða þetta við maka, ef við­kom­andi er í sam­bandi. Einnig þarf gjafi að upp­lýsa eigin börn um að hann eða hún hafi gefið sæði eða egg.“

„…for­eldrar, systk­ini og hálf­systk­ini við­kom­andi þurfa að hafa vit­neskju um það.“

Þá getur kona gefið tveimur fjöl­skyldum egg hér heima og ef hún hefur áhuga þá má hún svo gefa í þriðja sinn og þá hjálpað pari erlendis. „Sæð­is­gjafi getur einnig óskað eftir því að gefa erlendis og það eru ekki nein tak­mörk fyrir því hve oft sæð­is­gjafi getur gefið annað en lög og reglur í við­kom­andi löndum. Við erum í náinni sam­vinnu við syst­ur­bank­ann í Svíþjóð.“

Helga Sól segir að þau hjá eggja- og sæð­is­banka Livio Ísland mæli með að fólk sé svo­kall­aðir rekj­an­legir gjafar sem þýðir þá að mögu­legt barn getur óskað eftir upp­lýs­ingum um gjafa við 18 ára aldur. „Við erum á því að fólk gefi rekj­an­lega. Þarna er verið að hugsa um rétt­indi barn­anna en svo er það mis­jafnt hvort barn hefur áhuga eða ekki á að fá upp­lýs­ingar um gjafa eftir 18 ára aldur. Gjafi er alltaf lát­inn vita ef barn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um hann. Það sem börnin hafa áhuga á er þá yfir­leitt upp­lýs­ingar um t.d. heilsu­far. Þau eru ekki að leita eftir sam­bandi. Þau eiga sína for­eldra og langar ekk­ert í aðra for­eldra,“ segir Helga Sól og hlær.

Gefið í velgjörðarskyni

Eins og áður sagði segir Helga Sól til­tölu­lega lítið mál að gefa sæði eða egg. En vissu­lega geta ein­hver óþæg­indi fylgt gjöf­inni. Þess vegna fær gjafi þóknun sem á að bæta upp fyrir mögu­legt tekju­tap, ferða­kostnað og önnur útgjöld. Sæð­is­gjafar fá 7.000 krónur fyrir hverja sam­þykkta gjöf og eggja­gjafar fá 150.000 krónur fyrir hverja sam­þykkta gjöf.

„En fólk er að gefa egg eða sæði í vel­gjörð­ar­skyni. Það fer eng­inn í þetta nema hann hafi raun­veru­legan áhuga á að hjálpa fólki að eign­ast barn.“

Ófrjósemi að aukast

Hingað til hefur verið mik­ill skortur á gjöfum og eft­ir­spurnin eftir eggjum og sæði er mikil. Helga Sól, sem hefur 20 ára reynslu í mál­efnum sem varða gjafa­kyn­frumur, segir eft­ir­spurn­ina hafa auk­ist á und­an­förum árum.

„Þörfin er að verða meiri. Við sjáum þetta á Livio Reykja­vík og þess vegna erum við að auka þessa starf­semi hjá okkur. Því miður sýna rann­sóknir að ófrjó­semi er að aukast. Fólk bíður lengur með barn­eignir. Margir vilja gera aðra hluti áður en það fer út í það að eign­ast börn en lendir svo í því að tím­inn er flog­inn í burtu þegar það er til­búið. Svo er alltaf þörf á gjafa þegar um félags­lega ófrjó­semi er að ræða, þ.e. ein­stakar konur eða sam­kyn­hneigð pör sem vilja eign­ast barn,“ útskýrir Helga Sól.

Áhuga­samir geta kynnt sér málið nánar á vef Livio hérna: www.livioeggbank.is og www.liviospermbank.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ