Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Manndráp í Torrevieja – Guðmundur Freyr grunaður um að hafa orðið stjúpföður sínum að bana

Manndráp í Torrevieja – Guðmundur Freyr grunaður um að hafa orðið stjúpföður sínum að bana
Mynd / Wikimedia Commons – Ezarate|Guð­mundur Freyr

Sverrir Örn Olsen fannst lát­inn á heim­ili sínu í Tor­revi­eja á Spáni aðfar­arnótt sunnu­dags­ins 12. jan­úar, hann var 65 ára að aldri.

Þegar lög­regla kom á vett­vang var Sverrir Örn lát­inn. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs er Guð­mundur Freyr Magn­ús­son, stjúp­sonur Sverris Arnar, í haldi lög­regl­unnar í Tor­revi­eja, en hann er grun­aður um að hafa orðið Sverri Erni að bana. Sverrir Örn var sam­býl­is­maður móður Guð­mundar Freys, Krist­ínar Guð­munds­dóttur og höfðu þau öll búið á Spáni í nokkurn tíma.

Tor­revi­eja og svæðið í kring er eft­ir­sóttur staður fyrir Íslend­inga, bæði til lengri og styttri dvalar, og hafa margir Íslend­ingar keypt sér eignir á svæð­inu og flutt þangað alfarið.

Átök leiddu til bana

Norski mið­ill­inn Spani­aAvisen fjallar um málið í dag. Þar kemur fram að ger­and­inn hafi ruðst inn á heim­ili móður sinnar og stjúp­föður í Los Balcones-hverf­inu í Tor­revi­eja. Til átaka hafi komið á milli mann­anna tveggja sem lauk með því að ger­and­inn hafi hrint stjúp­föður sínum á glugga með þeim afleið­ingum að glugg­inn hafi brotnað. Við það hafi fórn­ar­lambið hlotið marga skurði, missti mikið blóð og lát­ist.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Spani­aAvisen voru stungu­sár á lík­ama hins látna sem ekki voru vegna gler­brota úr glugg­anum. Beðið er nið­ur­stöðu krufn­ingar.

Guð­mundur Freyr Mynd / Facebook

Margdæmdur á Íslandi

Guð­mundur Freyr sem grun­aður er um að hafa orðið sam­býl­is­manni móður sinnar að bana er nýlega orð­inn fer­tugur. Frá 16 ára aldri hefur hann minnst átta sinnum verið dæmdur til refsi­vistar fyrir hegn­ing­ar­laga­brot, fíkni­efna­brot, tolla­laga­brot, lyf­sölu­laga­brot og skot­vopna­laga­brot. Þann 19. des­em­ber 2007 var Guð­mundur Freyr dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir að hafa kveikt í par­húsi á Þor­láks­höfn. Kona og tvö börn voru sof­andi í hinum hluta par­húss­ins þegar Guð­mundur lagði eld að hús­inu. Í sama dómi var Guð­mundur Freyr dæmdur fyrir rán vopn­aður hnífi, fjár­svik, ölv­un­arakstur og vörslu fíkni­efna.

Stórslasaður eftir alvarlegt bílslys

Í byrjun árs 2018 lenti hann ásamt móður sinni og þremur öðrum Íslend­ingum í alvar­legu bíls­slysi á Spáni. Guð­mundur Freyr stórslas­að­ist og í fyrstu var talið að hann væri lamaður, svo reynd­ist þó ekki vera, en hann hlaut þó alvar­lega áverka á taugum og mænu og ljóst var að langt bata­ferli var framundan.

Í við­tali við DV í mars 2018 sagði Kristín, sem sjálf togn­aði illa í baki í slys­inu, um meiðsl Guð­mundar Freys: „Hann getur hreyft tærnar og lyft hnjánum. Svo tók lækn­ir­inn hann fram úr rúm­inu í dag [síð­ast­lið­inn mánu­dag, innsk. blm.] og hann reyndi að stíga hænu­skref úr rúm­inu og aftur upp í. Síðan kom baksér­fræð­ingur til að meta taugaskað­ann, sem er mik­ill. Hann virð­ist ekki vera lamaður en það er ekk­ert sem þeir geta sagt með vissu. En hversu mikið þetta gengur til baka vitum við ekki. Þetta er heil­mik­ill skaði.“

Var andlát bróður Guðmundar slys eða manndráp?

Fleiri áföll hafa dunið yfir fjöl­skyld­una á síð­ustu árum. Bróðir Guð­mundar Freys og sonur Krist­ínar, Þor­valdur Magnason, fannst lát­inn í Foss­vogs­dal 12. des­em­ber 2017, en hann var á leið til Spánar dag­inn eftir. Samkvæmt rann­sókn  lög­reglu benti ekk­ert til að neitt sak­næmt hefði átt sér stað. Kristín og aðrir aðstand­endur voru hrædd um að Þorvaldi hefði verið ráð­inn bani, þar sem áverkar voru á lík­inu og hann hafði sætt hót­unum dag­ana fyrir and­látið. Þor­valdur var fík­ill og fór Kristín ekki leynt með þá stað­reynd en sagði son sinn hafa verið lífs­glaðan og skemmti­legan mann. Eftir and­lát hans tjáðu margir sig á sam­skipta­miðlum um mann­kosti Þor­valdar og ljóst að hann átti marga vini og kunn­ingja.

„Það er greini­lega ekki nóg á mann lagt að Valdi minn kvaddi þennan heim 12. des­em­ber og svo þetta núna. Ég veit ekki hvar þessi martröð endar. Maður er ekki búinn að jafna sig á einu áfall­inu þegar það kemur annað. Það er engin hætta á því að ég sé að fara að yfir­gefa hann fyrr en hann getur bjargað sér sjálfur,“ sagði Kristín um son sinn, Guðmund Frey eftir bílslysið í byrjun árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ