Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Árið 2013 fann ég hins vegar að það var komið nóg, og kærði Þórhall“

„Árið 2013 fann ég hins vegar að það var komið nóg, og kærði Þórhall“

Gísli Már Helgason var 12 ára gam­all þegar faðir hans lést af slys­förum. Bugaður af sorg full­orðn­að­ist hann hratt, og fimm árum seinna þegar mið­ill sagð­ist vera með skila­boð frá föður hans að handan ákvað ung­ling­ur­inn að treysta því.  Í stað þess að bera skila­boð frá látnum föður segir Gísli mið­il­inn hafa brotið á sér, og það hafi markað líf hans. Mörgum árum síðar reyndi hann sjálfs­víg og í margar vikur var honum vart hugað líf.

Í við­tali við Mannlíf segir Gísli frá föð­ur­miss­inum, dómi yfir ger­anda, sjálfs­vígstil­raun­inni, og sál­ar­friðnum og ást­inni sem hann býr að í dag.

Sjá einnig: Inga birtir slá­andi myndir af Gísla Má berj­ast fyrir lífi sínu: „Ég ákvað greini­lega að besta leiðin væri að deyja“

Lofaði skilaboðum frá látnum föður

Fyrstu kynni Gísla og Þórhalls voru á Siglu­firði fyrir til­stuðlan sam­eig­in­legrar vin­konu þeirra. „Ég þekkti hana frá Siglu­firði og hún þekkti Þórhall, og hann var eitt­hvað fyrir norðan á þessum tíma og hún spurði hvort ég vildi fara til hans,“ segir Gísli, sem ákvað að slá til.

„Ég sakn­aði pabba, ég náði aldrei að kom­ast yfir sorg­ina. Og mér fannst þetta rosa­lega spenn­andi. Þarna hitti ég Þórhall í fyrsta sinn og ekk­ert gerð­ist, en ég mynd­aði lík­lega eins konar trún­að­ar­sam­band við hann.“

Haustið 1993 flutti Gísli til móður sinnar í Reykja­vík, og eitt sinn þegar hann var staddur í víd­eó­leigu hitti hann Þórhall. „Þar sagði hann við mig að hann væri með skila­boð frá pabba.“

Gísli fór til fundar við Þórhall, og segir hann hafa brotið á sér á þeim fundi. Gísli sagði engum frá, og segir að skömm og ótt­inn við álit ann­arra hafi valdið því að hann þagði, auk þess sem hann vildi ekki særa móð­ur­ömmu sína. „Ég held að það sé skömmin sem veldur því að við þolendur segjum ekki frá. Minni­mátt­ar­kennd hjá mér og skömm, líka hræðslan við álit ann­arra. Margir vina minna á þessum tíma litu upp til mín og fannst ég vera aðaltöffar­inn. Ég skamm­að­ist mín, mér fannst þetta allt mér að kenna og skömmin óx bara hjá mér. Ef ég fékk mér í glas þá kom atvikið upp á yfir­borðið og ég vissi ekki hvernig ég átti að höndla sjálfan mig,“ segir Gísli. „Amma mín sem ég ólst upp hjá, elskaði Þórhall og hlust­aði á hann á kvöldin í útvarp­inu og ég vildi alls ekki segja henni frá þessu, af því mér fannst að ég myndi þá særa hana. Ég hélt þessu alveg leyndu fyrir henni, það var Inga frænka sem sagði henni frá þessu seinna.“ Gísli seg­ist hafa sagt góðum vini sínum frá mál­inu ári seinna, eftir að hann kom heim til hans eftir eitt­hvert fyllirí. „Hann trúði mér ekki og hélt að ég væri bara í algjöru rugli.“

Gísli flutti til Sví­þjóðar þegar hann var tví­tugur. „Ég flúði land hrein­lega og hef verið hérna í 23 ár, hér er mjög fínt að vera,“ segir Gísli. „Ef ég á að segja alveg eins og er, þá hef ég sjaldan heim­sótt Ísland, ég var alltaf hræddur um að hitta Þórhall og vissi ekki hvaða afleið­ingar það myndi hafa. Ég varð samt að fara stundum. Árið 2009 svipti vinur minn sig lífi og ég fór þá heim í tvær vikur. Og ég veit það, ég var þá alltaf að horfa í kringum mig eftir Þórhalli.“

Árið 2006 sagði Gísli föð­ur­systur sinni, Ingu Sæland, þing­manni og for­manni Flokks fólks­ins, frá mál­inu. „Hún varð óð yfir þessu, hún er svo­lítið góð í kjaft­inum eins og þú hefur kannski tekið eftir,“ segir Gísli Már bros­andi um föð­ur­systur sína. „Við ætl­uðum á fullu í málið, en svo treysti ég mér ekki til þess að gera neitt. Ég varð eitt­hvað lít­ill og ræf­ils­legur í mér. Árið 2013 fann ég hins vegar að það var komið nóg, og kærði Þórhall. Þá sagði ég góðum vini mínum frá nauðg­un­inni, og hann sagði við mig: „Veistu hvað, Gísli, ef þú hefðir sagt ein­hverjum frá þessu á þeim tíma sem þetta gerð­ist, hefði eng­inn trúað þér. Af því þú varst sterkastur og bestur í öllu.“

Lestu nánar um málið í Mannlífi

Lestu við­talið við Gísla í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð