Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bíllinn getur lækkað ferðakostnaðinn

Bíllinn getur lækkað ferðakostnaðinn

Fjöl­skyldan getur sparað sér stórfé með því að nota bíl­inn í stað þess að fljúga og ferða­gjöf stjórn­valda lækkar kostnað ferða­lags­ins um landið í sumar.

Nú er ferða­sum­arið mikla, inn­an­lands. Ýmis fyr­ir­tæki bregð­ast við breyttum aðstæðum vegna heims­far­ald­urs og bjóða betri kjör t.d. á gist­ingu, bíla­leigu­bílum og inn­an­lands­flugi. Hversu mikið kostar þetta að fljúga inn­an­lands á sér­kjörum?

Air Iceland Connect aug­lýsir: Verð frá 28.900 kr. á mann miðað við tvo í bókun þegar bókað er flug og bíll og 29.900 fyrir flug og hótel. Segjum sem svo að við ætlum að bregða okkur frá Reykja­vík til Ísa­fjarðar og bóka flug og gist­ingu á sér­kjörum. Það gerir 59.800 krónur fyrir tvo ef gist er eina nótt, enda gilda sér­kjörin ekki fyrir ein­stak­linga. Ef við reiknum með tveimur börnum líka, ell­efu ára eða yngri, þá kostar þetta 102.660. Án morg­un­verðar.

Sama verð er á flugi og gist­ingu til Akur­eyrar, Egils­staða og Reykja­víkur og lítur reikn­ings­dæmið því eins út hvað þá áfanga­staði snertir.

Ferðagjöfin góða gildir ekki

Hugsi maður sér gott til glóð­ar­innar og ætli sér að nýta ferða­gjöf stjórn­valda til að lækka kostn­að­inn um 10.000 krónur þá er það því miður ekki hægt. Hún gildir bara fyrir almennar flug­bók­anir inn­an­lands en ekki pakka­ferðir. Jæja, í það minnsta er hægt að nota ferða­gjöf­ina til að greiða fyrir hádeg­is­mat­inn því veit­inga­húsið Mamma Nína, hinum megin við göt­una, séð frá Hótel Ísafirði, er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem taka við ferða­gjöf­inni.

Rétt er að geta þess fyrir þá sem ekki vita að ferða­gjöfin er fyrir alla íslenska rík­is­borg­ara, 18 ára og eldri og nemur hún 5.000 krónum á mann. Ferða­gjöf stjórn­valda er ætlað að styrkja inn­lenda ferða­þjón­ustu og gildir hún víða, m.a. má nota hana til að greiða fyrir gist­ingu, inn­an­lands­flug, bíla­leigu­bíla, veit­ingar og ýmiss konar afþr­ey­ingu. Lesa má meira um hana á vef­síð­unni www.ferdalag.is.

Verður bíllinn fyrir valinu?

Ef við metum það svo að það sé kannski full­mikið að greiða 102.660 krónur fyrir kjarna­fjöl­skyld­una þá skulum við kanna hvað kostar að aka til Ísa­fjarðar og gista á Hótel Ísafirði, eins og í til­boð­s­pakka flug­fé­lags­ins. Þar má nýta ferða­gjöf­ina upp í greiðslu og erum við þá strax búin að spara okkur 10.000 krónur.

Á bíl sem eyðir 6 lítrum á hundraði í lang­keyrslu og ef við tökum mið af lægsta bens­ín­verði, sem nú er um 179 krónur fyrir lítr­ann hjá Costco, þá er kostn­aður við akstur innan við 5.000 krónur aðra leið­ina, eða 4.900 krónur svo allt sé rétt. Við þurfum auð­vitað að kom­ast aftur heim og er heild­ar­kostn­aður 9.800 krónur, að því gefnu að ekki þurfi að dæla aftur á bíl­inn á Ísafirði þar sem elds­neyti er dýr­ara.

Það kostar fjöl­skyld­una 31.900 krónur að gista og er morg­un­verður inni­fal­inn í því verði. Samtals gera þetta, 41.700 krónur. Gleymum ekki ferða­gjöf­inni, sam­tals 10.000 krónur, og þá endar upp­hæðin í 31.800 krónum.

Það er því tölu­vert ódýr­ara að fara á bílnum í ferða­lagið eins það er sett upp hér. Verð­mun­ur­inn er heilar 70.860 krónur.

Vert er þó að taka fram að með fram­vísun flug­miða fæst afar góður afsláttur á ýmsum stöðum, t.d. í sund, í hvala­skoðun, á söfn og fleira.

Nánar er fjallað um inn­an­lands­flugið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ