Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Ég er mjög stórhuga“

María Þorleifs­dóttur er stórhuga listakona, sem málar stórar og kraft­miklar myndir. Hún segist ekki hafa kunnað að teikna sem barn og stundum fengið bágt fyrir. Áhuginn hafi vaknað á fullorðins­aldri.

„Ég veit það ekki alveg en ég mála í frístundum og er drifin áfram af innri þrá eftir að ná fram einhverju sem getur kallast samspil áferðar, forma og lita,“ segir María Þorleifs­dóttir þegar hún er spurð hvernig lista­maður hún sé.

María er menntaður félags­ráðgjafi frá Óslóar­háskóla og útskrifaðist þaðan árið 1981 og hefur starfað sem slíkur síðan en þó með nokkrum hléum. Samhliða því starfi hefur hún sótt fjöldann allan af myndlistar­námskeiðum, bæði hér heima og erlendis. Veturinn 2004-2005 stundaði hún nám við hönnunar­braut Iðnskólans í Reykjavík. Árið 2007 fékk hún inngöngu í Kunsthøjskolen í Sønderborg í Danmörku þar sem hún lærði í eitt ár.

Hefur María alltaf haft gaman að því að teikna og mála? „Nei, ég kunni ekki að teikna sem barn og fékk stundum bágt fyrir í skóla,“ svarar hún hrein­skilin. „Áhuginn vaknaði á fullorðins­aldri.“

Hvenær byrjaðir þú að mála og hvernig kom það til? „Eftir þó nokkuð mörg ár í afar skemmtilegri vinnu og leik með leir og leirmótun, þar sem vinnu­ferlið frá upphafs­punkti hugmyndar að endanlegri afurð er afar langt og flókið, fékk ég þörf fyrir að prófa að stytta leiðina og fá nánast útkomuna strax.“

Hvernig myndirðu lýsa þínum listræna stíl? „Ég er mjög stórhuga, mála stórt og þarf mikinn „texture“ í verkin. Áferðin, lita­samsetningin og formið verða að spila saman.“

Hvernig er ferlið frá hugmynd að mynd? „Flókið og getur verið langt en samspil lita og forma ráða að mestu för.“

Ferðu mikið á sýningar og fylgistu með öðrum lista­mönnum? „Já, ég hef verulegt yndi af því að fara á sýningar, bæði hér heima og erlendis. Á námsárum mínum í Noregi varð ég hreint gagntekin á E. Munch-safninu í Ósló þegar ég steig fæti mínum þar inn.“

Hvaða listamenn eru í mestu uppáhaldi? „Nína Tryggva­dóttir á sinn ákveðna sess stöðugan hjá mér og Kjarval er alltaf allt um kring. Seinni stór­sýningar á verkum Chagall og Magrett í Lousiana DK, lifa enn með mér. Miró, Gaudi og Picasso í Barcelona eru líka vissulega mínir menn. Á seinni árum var heim­sóknin í geggjaða safnið hans Salvador Dali í heimabæ hans í Figueres á Spáni eldskírn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni