Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sauð upp hjá sauðfjárbændum – Úlfúð yfir þessari mynd: „Svona lagað er gersamlega óafsakanlegt“

Sauð upp hjá sauðfjárbændum – Úlfúð yfir þessari mynd: „Svona lagað er gersamlega óafsakanlegt“

Facebook-hóp­ur­inn Sauð­fjár­bændur er lík­lega meðal rólegri hópum lands­manna á sam­fé­lag­smiðum en und­an­tekn­ing frá þeirri reglu átti sér stað í gær. Allt ætl­aði um koll að keyra þegar Aldís nokkur deildi mynd af rollu og skrif­aði: „Mér finnst afskap­lega hvim­leitt þegar menn merkja ókunn­ugt fé hjá sér svona, fyrr má nú vera þetta er  algjör ósiður og skemmd á gærunni.“

Hún birti svo mynd­ina sem má sjá hér fyrir neðan en þar má sjá að búið er að spreyja sauð­kind skær­græna. Við­brögðin stóðu ekki á sér og fauk væg­ast sagt í flesta bændur. Tugir athuga­semda voru skrif­aðar við færsl­una innan skamms. Sauð­fjár­bændur höfðu orð á því að þetta væri rudda­skapur sem bæri að sekt. „Ef maður er með ókunn­ugt fé þá bara merkja hornin epa eitt­hvað svo­leiðis svo þú eyði­leggur ekki gæruna!,“ skrifar ein kona til að mynda.

Einn bóndi segir þetta full mikið. „Skelfi­legur ósiður að nota þetta sprey, litur í ull­inni jafn­vel mán­uðum saman. Fyrr má nú þekkja ókunn­ugt úr hópnum hjá sér.“ Annar virð­ist afsaka þessa hegðun. „Til­gang­ur­inn með að merkja ókunn­ugt er hver, annar en bölv­aður rata­skapur? And­skot­anum harð­ara að þekkja ekki ókunn­ugt úr hjá sér öðru­vísi en lita það í bak og fyrir,“ skrifar hann.

Bóndi nokkur, Rúnar að nafni, segir að birta eigi myndir af þeim sem gera þetta í Bænda­blað­inu. „Svona lagað er ger­sam­lega óaf­sak­an­legt og til skammar þeim sem fram­kvæma slíkt. Ætti að birta mynd af ger­endum í sér­stökum dálk í bænda­blað­inu,“ skrifar Rúnar. Þá segir annar bóndi: „Róa sig Rúnar minn.“ Því svarar Rúnar: „Úps, svona lætur maður ein­falda hluti stundum hreyfa við sér“

Einn bóndi segir best að þekkja bara sitt fé í sjón. „Mér hefur gef­ist það best að þekkja markið mitt og það fé sem ekki er markað því er ókunn­ugt. Þannig hef ég greini­lega sparað mér nokkra sprey­brús­ana,“ skrifar sá bóndi. Annar bóndi veltir þessu fyrir líka: „Er fólk hætt að þekkja mörkin sín hvað þá féð sitt.“

Fleiri kvarta undan þessu. „Svona sprey­gleði er alger­lega óaf­sak­an­leg og setur fyrst og fremst ljót­ann lit á þann sem henni beitir,“ skrifar einn meðan annar bóndi skrifar: „Algjör ósiður og maður á ekki rétt á að setja lit á ann­ara manna fé, bæði með mark og merki í flestum til­fellum. Svo sér­stakt að það megi ekki finna því stað í dilk eða kró. Ömulegt að sjá svona lagað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ