Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ægir barnaníðingur bauð sig fram í Svíþjóð: „Margir vissu að hann var hrifinn af litlum strákum“

Ægir barnaníðingur bauð sig fram í Svíþjóð: „Margir vissu að hann var hrifinn af litlum strákum“
Ægir í fram­boði.

Um helg­ina greindu fjöl­miðlar bæði hér­lendis og í Svíþjóð frá að Ægir Sig­ur­björn Jónsson hafi verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórtán ára dreng. Ægir hefur verið búsettur í Svíþjóð um nokk­urt skeið og starf­aði sem plötu­snúður. Hann not­aði þó yfir­leitt lista­manns­nafn sitt, Damien Eie. Hann var nokkuð áber­andi þar ytra og er hann til að mynda sagður einn af upp­hafs­mönnum teknó í land­inu á tón­list­ar­vefnum Resident Advisor. Afton­bla­ded kallar hann þó ein­fald­lega partýredd­ara.

Hann vakti nokkra athygli í Svíþjóð þegar hann stofn­aði Teknóflokk­inn árið 2017 og vildi kom­ast í borg­ar­stjórn í Stokk­hólmi í kosn­ingum árið eftir. Helsta kosn­inga­bragð flokks­ins er heldur skugga­legt í ljósi dóms­ins, Ægir stofn­aði og rak um skamma stund klúbb þar sem fólk var hvatt til að mæta nakið. Stuttu síðar var greint frá því að starfs­maður klúbbs­ins hafði verið dæmdur fyrir svo gróft ofbeldi gagn­vart konu að því er líst sem pynt­ingum. Ægir sagði sjálfur í við­tali að það væri ekki í anda klúbbs­ins. Hann gat þó hvorki játað né neitað þegar hann var spurður um hvort klúbb­ur­inn gæti tryggt öryggi gesta.

Svo virð­ist sem flokk­ur­inn hafi ekki skilað öllum gögnum og fram­boðið því ógilt. Þrátt fyrir það fékk flokk­ur­inn 35 atkvæði í kosn­ing­unum og svo virð­ist sem öfga­hægri­mönnum sé enn illa við flokk­inn. Í það minnsta er dómur Ægir nú vatn á myllu þeirra ef marka má fram­setn­ingu jað­ar­mið­ils­ins Nya tider.

Miðað við þessa lýs­ingu þá ætti það ekki að koma neinum á óvart að Ægir var vin­margur á Facebook. Veggur hans er galop­inn og hrúg­ast þar inn for­dæm­ingar. Enda var glæpur hans við­bjóðs­legur. Samkvæmt sænskum fjöl­miðlum kynnt­ist hann pilt­inum í gegnum smá­forritið Grindr. Hann braut svo gegn drengnum.

Þegar pilt­ur­inn reyndi að kom­ast undan honum hót­aði Ægir að hengja upp kyn­ferð­is­legar myndir af drengnum utandyra hjá heim­ili hans. Því næst reyndi hann að kúga pen­ing úr pilt­inum sem að lokum sam­þykkti að hitta hann í almenn­ings­garði. Þar réðst Ægir á hann og tók hann háls­taki.

Á Facebook-síðu hans eru tugir Svía sem ræða dóm­inn en Ægir kallar sig Damien Eie  þar.  Kona nokkur segir að það hafi verið svartur dagur fyrir sænska teknósenu þegar Ægir var dæmdur og hann eigi skilað að rotna í hel­víti.

Svo er áber­andi hve margir hafa orð á því að þeir hafi heyrt slúður um að hann væri níð­ingur. Flestir virð­ast hafa túlkað það sem ill­kvittið slúður. „Margir vissu að hann væri hrif­inn af „litlum strákum“, meira að segja þeir sem héngu með honum. Ég frétti það fyrir mörgum árum og var þó bara í heim­sókn í Stokk­hólmi. Ég vissi ekki hvort það var slúður eða ekki. Nú vitum við það,“ skrifar ein kona. Önnur segir að það hafi verið slúðrað um að hann hafi farið í ferðir til Taílands til að verða sér úti um drengi.

Önnur kona segir að sex ára barn sitt hafi lent í honum. „Því miður hefur þetta verið vitað frá tíunda ára­tugnum. Margir völdu að horfa fram hjá því. Sonur minn var sex ára þegar hann kom til mín og sagði mér hluti sem fengu mig til að tala ekki aftur við þennan kunn­ingja,“ segir hún og bætir við að sem betur fer hafi honum ekki tekið ætl­un­ar­verk sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ