Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

William Tómas við dauðans dyr vegna Covid-19: „Díla við ofsakvíða og streitu vegna ofsjóna“

William Tómas við dauðans dyr vegna Covid-19: „Díla við ofsakvíða og streitu vegna ofsjóna“

William Tómas Möller meist­ara­nemi taldi sig vera ungan og heil­brigðan þegar Covid-19 bank­aði á dyrnar. Hann glímir enn við lík­am­leg og sál­ræn eft­ir­köst sjúk­dóms­ins. Möller var ein­fald­lega við dauð­ans dyr og hvetur alla kæru­lausa Íslend­inga til að hugsa sig tvisvar um.

„Þú getur verið hepp­inn og fengið covid, smá flensu og jafnað þig á viku eða tveimur. Þú getur verið svo óheppin og fengið covid, endað á spít­ala eða það sem er verra með eft­ir­köst sem gætu haldið þér frá vinnu svo mán­uðum skiptir. Svo er það þriðji kost­ur­inn og það er að þurfa að berj­ast fyrir líf­inu og tefla við dauð­ann. Fram að því að lækn­arnir sögðu mér að ég þyrfti að taka þriðja kost­inn hafði ég haldið að ég væri ungur, heil­brigður með enga und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og ef ég fengi veiruna þá myndi ég bara fá smá kvef og halda svo áfram með lífið,“ segir Möller í færslu sinni á Facebook.

„Ég upp­lifi oft í viku að ég missi skin á raun­veru­leik­anum og missi fókus á hlutum fyrir framan mig.“

Á meðan Möller lá sof­andi í önd­un­ar­vél samdi eig­in­kona hans, Jenný Guðna­dóttir, lag til hans. Á meðan Möller lá á gjör­gæslu var Jenný sjálf í sótt­kví og fékk því ekk­ert að sjá hann á meðan. Hún samdi lag til eig­in­manns­ins þar sem hún fjall­aði um veik­indin og von­ina um bata á fal­legan hátt. Lagið getur þú hlustað á hér að neðan.

Möller segir covid-19 veik­indin hafa verið mjög erfið en bæði lík­am­legum og sál­ræn eft­ir­köst hans farið minnk­andi með hverjum deg­inum. „Ég lifði sem betur fer af, þökk sé frá­bæru starfs­fólki Land­spít­al­ans. Ég er byrj­aður að hlaupa aftur, hægt en ég er þakk­látur fyrir að eiga mögu­leika á að koma lík­am­anum mínum í fyrra horf. En ég er samt ennþá að díla við afleið­ingar veik­inda minna. Líkaminn minnir mig stöðugt á að ég hafi verið með túbu niður í lungu og er ég stöðugt að kyngja eða fyll­ast hræðslu um að ná ekki and­anum. Ég er búinn að vera að díla við ofsa­kvíða og streitu vegna ofsjóna og martraða sem ég upp­lifði á spít­al­anum. Sem betur fer hefur það farið minnk­andi en þegar verst var þá var ég með stöðugan skjálfta í mag­anum, verki í brjóst­unum, verki sem eru ennþá en fara sem betur fer minnk­andi, ég er með doða í hönd­unum. Ég upp­lifi oft í viku að ég missi skin á raun­veru­leik­anum og missi fókus á hlutum fyrir framan mig. Ég upp­lifa oft í viku að ég hugsa hvort ég hafi dáið og ég sé staddur í öðrum heimi,“ segir Möller og hvetur alla til að fara var­lega:

„Þegar ein­hverjir tala um að þetta sé bara flensa sem þú hristir af þér er það bara að tala um einn af þremur mögu­leik­unum sem geta hent þig. Þegar ein­hver segir að við eigum að leyfa unga fólk­inu að verða veikt og ná hjarð­of­næmi og þú ákveður að hætta við að fara var­lega þá máttu hugsa um að þú gætir lent í því að fá eft­ir­köst sem gætu skert lífs­gæði þín næstu 6-12 mán­uði, jafn­vel til fram­búðar. Þegar ein­hver segir að það skerði frelsi þitt að þurfa að vera heima og sleppa nokkrum djömmum þá er það ekki rétt. Frels­is­skerð­ing er það sem for­feður okkar lifðu við, að hvern ein­asta dag voru þeir að berj­ast fyrir lífi sínu og þegar þeir komu heim til sín höfðu þeir enga afþr­ey­ingu og ekki einu sinni ljós í vist­ar­verum sínum. Förum var­lega og hlustum á sótt­varn­ar­lækni, léttum undir með heil­brigð­is­starfs­fólki og sleppum því að taka óþarfa áhættu með lík­ama okkar sem kemur bara einnota.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ