Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekki deyja úr Covid-leiðindum – 25 leiðir – Jólaljós, fjallgöngur og minnismiði

Næstu tvær vik­urnar verða mörgum erf­iðar og sumum mjög leiði­gjarnar. Mannlíf tekur saman upp­lýs­ingar um hvað er helst til ráða. Allir eru sam­mála um að rútína er mik­il­væg. Mannlíf óskaði eftir hug­myndum á Facebook og var þátt­takan gríð­ar­leg. Listinn er að miklu leyti byggður á þeim hug­myndum. Fleiri áhuga­verðar en flókn­ari hug­myndir á borð við þá að hugsa leið til enda­loka kapital­ism­ans komu fram. Þá er skorað á fólk að taka til í fjár­málum sínum, fá til­boð í trygg­ingar og létta á kostn­aði við dag­legt amstur.

1. Gakktu á Úlf­ars­fell, fjallið í miðri borg­inni. Það tekur alla­jafna ekki meira en 20 mín­útur að kom­ast á upp­göngu­stað og gangan sjálf tekur aðeins 2 tíma frá upp­hafi til enda. Hentar nán­ast öllum. Fyrir lengra komna er Esjan upp að Steini gott verk­efni. Hver og einn getur fundið sitt heima­fell og lagt upp i göngur.

2. Hringdu í fólkið sem þú hefur alltaf ætlað að hafa sam­band við. Gefðu þér tíma til að spjalla við þá sem eru einir og ein­mana. Kenndu eldra fólki á hljóð­bækur, hlað­vörp, netskrafl, Netflix, Viaplay.  Koma við hjá vini eða ætt­ingja í göngu­ferðum og spjalla fyrir utan glugg­ann þess vegna.

3. Farðu í Heiðmörk og njóttu þess sem fal­leg nátt­úra og skógur hafa upp á að bjóða. Hjólaðu, hlauptu eða gakktu. Faðmaðu tréu og njóttu kyrrð­ar­innar. Skipu­legðu leið­angra til að safna fræjum.

4. Skráðu þig sem Mannvin hjá Rauða kross­inum og legðu þitt að mörkum til að létta þeim lífið sem eiga erfitt. Ef þú er fjár­hags­lega vel settur þá skaltu finna fjöl­skyldu sem á erfitt og gefa henni  10 þús­und króna úttekt­ar­kort í Bónus eða Krónunni.

5. Farðu í gam­al­dags­bíltúr með fjöl­skyld­una. Einu sinni var apinn í Hvera­gerði með aðdrátt­ar­afl. Hann er horf­inn en það er kjörið að njóta haust­lit­anna á Þing­völlum og kaupa ís á Selfossi eða í Hvera­gerði. Muna samt grím­urnar og sprittið.

6. Almanna­varn­ar­göngur Ferða­fé­lags Íslands eru skemmti­leg til­breyt­ing. Þú gengur um nærum­hverfi þitt og setur myndir og texta inn á síð­una.

7. Finndu þér nám­skeið á Netinu og láttu gamla drauma um að auka við þekk­ingu þína ræt­ast. Ættfræði, skap­andi skrif eða hvað­eina sem hug­ur­inn girn­ist.

8. Leitaðu uppi tóftir eða rústir í nágrenni þínu. Aflaðu upp­lýs­inga, taktu myndir og sendu á [email protected].

9. Taktu matar­æðið í gegn og fá fjöl­skyld­una með sér í að búa til skemmti­legar upp­skriftir. Búðu til hóp á Facebook þar sem plana má skemmti­lega og holla mat­ar­gerð og allir koma með hug­myndir.  Krakk­arnir hvattir til að elda. Svo má vera með matar þema. Eitt kvöldið er ítalskur síðan spænskur, íslenskur , þýskur, kín­verskur, jap­anskur matur og svo fram­vegis.

10. Flýttu jól­unum. Hengdu upp jóla­ljósin strax og varp­aðu birtu á umhverfið. Föndraðu jóla­skraut og búðu jafn­vel til jóla­gjafir með þínum nán­ustu. Ef fólk er svo heppið að vera með heitan pott í garð­inum þá er snilld að setja ser­íur á pall­inn, kerta­ljós og vera með ilm­kjarna þerapíur og þema hvert kvöld.

11. Búðu þér til dag­lega rútínu. Gerðu æfingar undir morg­un­leik­fim­inni á RÚV. Farðu í reglu­bundnar göngu­ferðir. Æfðu jóga eða hvað­eina sem þér dettur í hug. Gerðu arm­beygjur eða haltu jafn­vægi á öðrum fæti. Farðu í sjó­sund ef þú hefur heilsu til. Prófaðu Himna­stig­ann í Kópavogi, kirkju­tröpp­urnar á Akureyri eða hvað­eina í umhverfi þínu.

12. Hlustaðu á þína nán­ustu. Gefðu fólk­inu þínu hálf­tíma að lág­marki til að fara yfir mál­efni dags­ins. Þar fara allir yfir dag­inn sinn og ræða málin. Gefðu því gaum hvað þínir nán­ustu hafa verið að gera og hugsa og segðu frá þínum degi.

13. Ópera heima í stofu. Á Netinu má finna streymi frá óperu­sýn­ingum Metrópolitan. Þetta eru sýn­ingar frá því í fyrra og eldri. Frábært efni og ég held að það sé líka frá öðrum óperu­húsum og Royal Albert Hall. Njóttu listar á heims­mæli­kvarða heima í stofu.

14. Búðu til lista með 10 atriðum um það sem þú vilt gera áður en þú deyrð.

15. Málaðu heima hjá þér, eitt­hvað sem þú ætl­aðir að gera fyrir löngu? Taktu til í skáp­unum. Ryksug­aðu á bak við ísskáp­inn. Farðu með fötin sem þú notar ekki í Rauða kross­inn.

16. Lærðu að prjóna og enga karl­rembu. Ef þú kannt það þá prjón­aðu eða hekl­aðu. Gefðu húfu, peysu, dúka eða vett­linga í jóla­gjöf.

17. Taktu til í raf­rænu mynd­unum þínum og hreins­aðu vina­list­ann þinn á Facebook. Búðu til mynda­bók handa þínum nán­ustu með minn­ingum sem ann­ars gætu týnst. Til­tölu­lega ódýr og per­sónu­leg gjöf sem lifir.

18. Skrifaðu smá­sögu, ljóð eða mál­aðu myndir. Skrá­settu við­burði úr eigin lífi fyrir kom­andi kyn­slóðir. Skrifaðu fram­halds­sögu á Facebook. Komdu til­ver­unni í orð eða mynd.

19. Syngdu í baði eða hvar sem er þótt það sé ekki vani þinn.

20. Bók­lestur er frá­bært tóm­stundagaman. Lestu í hljóði eða fyrir börnin þín. Margir eiga bækur, enn í plasti, sem þeir hafa alltaf ætlað að lesa en ekki gef­ist tími til. Taktu fram bæk­urnar og lestu. Flokkaðu í bóka­hill­unum. Svo get­urðu notað þjón­ustu Storytel og hlustað á bækur sem vekja áhuga þinn. Þá má bregða sér í göngu og hlusta á sama tíma góða bók.

21. Gjör­breyttu frá óhollu matar­æði. Settu sykur og hveiti á bann­lista. Reyndu föstur á borð við 14/7 eða jafn­vel nokkra daga. Finndu aðferð­ina sem lætur þér líða sem best. Slepptu áfengi og fíkni­efnum og upp­lifðu hreinar til­finn­ingar.

22. Farðu í garð­inn og und­ir­búðu hann fyrir ræktun næsta árs. Stingdu upp, reittu arfa og bættu í nær­ing­ar­efnum. Settu niður lauka. Plantaðu berja­runnum. Svo má dytta að ýmsu í garð­inum og taka niður/binda það sem getur fokið í vetur. Sniðugt að ganga í Garð­yrkju­fé­lagið, kíkja á frælist­ann og plana hverju skal sá þegar vorar.

23. Vitjaðu leiða lát­inna ást­vina. Rifjaðu upp minn­ing­arnar. Snyrtu leiði ef þörf er. Hugsaðu til hinna látnu og sendu hlýjar hugs­anir yfir í aðra vídd. Það er róandi og gef­andi að rölta um kirkju­garða í leið­inni og lesa á leg­steina.

24. Hóaðu stór­fjöl­skyld­unni reglu­lega saman í mynd­spjall á Netinu. Zoom eða Messen­ger eru til­valin for­rit.

25. Markmið lífs­ins. Skrifaðu á miða allt sem þú ætlið að gera, eitt verk á hvern miða og setja í krukku. Draga þarf miða dag­lega úr krukk­unni og vinda sér í verkið. Svo má líka hafa leti­m­iða – fara í sund – heim­sækja vin eða lesa bók. Alltaf spenn­andi að vita hvert er verk­efni dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ