Sagnfræðingurinn síkáti, Stefán Pálsson, biðlar til almennings að reyna vera jákvæðari á samfélagsmiðlum um þessar mundir. Flestir séu hálf pirraðir vegna ástandsins og því sé þörf á því sem aldrei fyrr. Líklega eru margir sammála honum.
„Ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða það kurteislega krakkar… en þið eruð ekkert sérstaklega skemmtileg um þessar mundir. Sjálfur er ég svo sem ekkert undanskilinn. Við erum innilokuð, hittum fáa og höngum á netinu allan tímann. Niðurstaðan er rosalega leiðinleg orka sem brýst út í því að brjálast yfir e-u sem einhver skrifaði eða sagði. Það er ófrjótt og niðurbrjótandi,“ segir Stefán og heldur áfram:
„Oft var þörf en nú er nauðsyn að búa til einhverja græskulausa samkvæmisleiki á samfélagsmiðlunum. Mér er nokkuð sama hvort það gengur út á að þið deilið myndum af ykkur sem álkulegum unglingum, teljið upp einhverjar hljómsveitir eða endurvekið ísfötuáskorunina frá því hérna um árið. Bara eitthvað sem slær á ergelsið og gremjuna.“































Athugasemdir