Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skuggi föðurins: Dóttir Jóns Baldvins fékk hvergi vinnu

Skuggi föðurins: Dóttir Jóns Baldvins fékk hvergi vinnu

Kolfinna Bald­vins­dóttir seg­ist vera ein þeirra þolenda sem Ólína Þor­varð­ar­dóttir lýsir í bók sinni Skugga­baldrar sam­fé­lags­ins. Það er fólkið sem hefur tekið þátt í póli­tík eða tengst stjórn­mála­mönnum og fær enga vinnu vegna for­tíðar sinnar.  Kolfinna lýsir þvi hvernig hún fékk vinnu á fjöl­miðlum sem dóttir Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, for­manns Alþýðu­flokks­ins og ráð­herra
„Ráðin hjá Stöð 2 til að sýna að sú stöð væri ekki of vil­höll „flokknum” en rekin líka til þess að þókn­ast „flokknum” þegar þar að kom. Ráðin hjá Rúv til að sýna að sú stöð gætti jafn­ræðis flokks­lega, en rekin á sömu for­sendum – eins og kom skýr­lega fram í greinum Hannesar Hóm­steins á þessum tíma: hann kvart­aði undan því að “of margir kratar” væru á skjánum í „sjón­varpi allra lands­manna”,“ skrifar Kolfinna í færslu á Facebook.

Kolfinna full­yrðir að allir Íslend­ingar þekki dæmi um atvinnu­bann og mis­beit­ingu valds, ýmist per­sónu­lega þá frá sínu nán­asta umhverfi.
„Öll dæmin sem Ólína tekur fyrir þekkjum við – við höfum alltaf vitað af þessu. En það er gott að hafa þau öll núna fyrir framan okkur í einni bók. Ég tek ofan fyrir Ólínu – fyrir að þora. Nú er spurn­ingin: hver tekur við kefl­inu og tekur á þessu grafal­var­lega meini í okkar sam­fé­lagi, – ef ekki full­trúar okkar á þingi? Það er sama úr hvaða fag­stétt fólk kemur: Sjómaður, lista­maður, arki­tekt, blaða­maður, fisk­verka­maður, kenn­ari eða fyrr­ver­andi þing­maður,- allir geta lent í hakka­vél­inni – ef þeir ger­ast svo kræfir að opin­bera skoð­anir sínar sem „flokknum” þókn­ast ekki.“

Allir geta lent í hakka­vél­inni

Kolfinna seg­ist alla tíð hafa fundið fyrir því á vinnu­mark­aði að vera dóttir Jóns Baldvins.
„Ég hef alla tíð vitað þetta og m.a.s. fundið fyrir því á eigin skinni – þótt ég sé bara dóttir stjórn­mála­manns, sem “flokknum” hefur staðið stuggur af. Bara að finna sum­ar­vinnu sem ung­lingur, velti á vel­vild atvinnu­rek­enda gagn­vart Alþýðu­flokknum – eða óvild. Atvinnu­tæki­færi móður minnar veltu líka á því – eins og hún lýsir í nýút­kominni bók sinni „Brosað gegnum tárin”.
Hún lýsir þvi að fólk í hennar stöðu í „hakka­vél spill­ingar og flokka­drátta“ hafi gjarnan flutt af landi brott til að eiga í sig eða á. Sjálf valdi hún þann aug­ljósa kost að flytja af landi brott.
„Og ég velti fyrir mér nú hversu mikið íslenskt sam­fé­lag hefur liðið fyrir brott­flutn­ing allra þeirra sem hafa valið þennan sama kost. Það væri efni í rann­sókn: hvaða áhrif hefur þetta „braindrain” haft á fram­för á þessu landi, – sem Skugga­baldrar “flokks­ins” eru ábyrgir fyrir. Ætti hann ekki að svara til saka?“

Kolfinna lýsir þvi svo nánar hvernig við­brögðin voru við atvinnu­um­sókknum hennar.
„Hversu oft hef ég ekki sent mína fer­il­skrá til Íslands, þegar ég sá aug­lýst störf sem pössuðu við mína starfs­reynslu (ævin­lega án svara)? Einu sinni gekk ein ráðn­ing­ar­stofan svo langt að mæl­ast til þess að ég strok­aði út þriggja ára starfs­reynslu mína hjá Evr­ópu­sam­band­inu. Yfir­ýstir Evr­ópu­sam­bands­sinnar eins og ég (sem hafði komið fram í mínum blaða­skrifum) kæmu ekki til greina. Þegar ég spurði hvað ég ætti þá að hafa verið að gera þessi þrjú ár, var svarið: Varstu ekki að eiga börn?“, segir í færslu Kolfinnu á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ