Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ostóber – tími til að njóta osta

Ostóber – tími til að njóta osta

Mjólk­ur­sam­salan heldur októ­ber­mánuð hátíð­legan þriðja árið í röð undir yfir­skrift­inni Ostóber – tími til að njóta osta.

Í fyrsta skipta hafa nú verið settir á markað sér­stakir Ostóber ostar.

Í Ostóber fögnum við gæðum og fjöl­breyti­leika íslenskra osta og vill MS með þessu fram­taki hvetja lands­menn til borða sína upp­á­halds­osta, smakka nýja og prófa sig áfram með ostana í mat­ar­gerð.

Í fyrsta skipta hafa nú verið settir á markað sér­stakir Ostóber ostar en um er að ræða fimm glæ­nýja osta sem fram­leiddir voru sér­stak­lega fyrir þetta til­efni.

Ostarnir voru fram­leiddir í tak­mörk­uðu upp­lagi og verða seldir nú í októ­ber eða á meðan birgðir end­ast.

Fyrst ber að nefna Óðalsostana Gouda sterkan, Ísbúa og Tind sem allir hafa fengið lengri þrosk­un­ar­tíma en venju­lega eða meira en tólf mán­uði og bera því merkið 12+ á nýjum umbúðum. Á þessum tíma verða ost­arnir ein­stak­lega bragð­miklir og sér­kenni hvers og eins verða enn sterk­ari. Í Gouda sterkum 12+ fylgja mjúkir smjör­tónar kröft­ugu bragð­inu, Ísbúi 12+ hefur flauels­mjúka áferð og parast vel með sætu og söltu og þá er Tindur 12+ ómót­stæði­legur með sinni stökku áferð og sæta eft­ir­bragði.

Tveir ost­anna bera nafn Búra en þeir bræður gætu ekki verið ólík­ari.

Tveir ost­anna bera svo nafn Búra en þeir bræður gætu ekki verið ólík­ari.

Búri með sinn­eps­fræjum og kúm­eni er bragð­bættur ostur þar sem ólíkum krydd­teg­undum er blandað saman á ein­stakan hátt. Útkoman er kraft­mikið bragð með smá keim af for­tíð­ar­þrá.

Búri með trönu­berjum og lime er bragð­bættur ostur þar sem sætt og súrt bragð mæt­ast á ein­stak­lega spenn­andi hátt. Framandi bragð og sann­kölluð veisla fyrir bragð­lauk­ana.

Hvort sem þig langar til að smakka ein­hvern nýjan ost eða prófa þig áfram með upp­á­halds­ost­inn þinn í mat­ar­gerð hvetjum við þig til að taka þátt í Ostóber, því það er svo sann­ar­lega tími til að njóta osta!

Taktu for­skot á sæl­una og próf­aðu upp­skriftin hér að neðan – þú sérð ekki eftir því!

Ostafylltir aspasvasar með Óðals Ísbúa

Ein­faldar en fal­legar upp­skriftir eru heill­andi. Þessi fellur í þann flokk. Hún kemur vel út á diski eða hlað­borði, hún er góð í hádegi eða að kvöldi og það er gaman að búa hana til. Vasarnir eru góðir beint úr ofn­inum, ekki verri þegar þeir kólna og það er auð­velt að hita þá upp.

Innihald
8 skammtar

24 stk. asp­asstilkar, litlir*
1 msk. ólífu­olía
gott salt og pipar

1 stk. smjör­deig**
1 stk. Óðals Ísbúi, rif­inn***
8 sneiðar hrá­skinka
1 stk. egg, hrært

* Helst lít­ill aspas, ef stór skerið þvert til að hafa hvern stilk þynnri, þá 12 stk.
** Smjör­deig fæst í litlum, frosnum plötum í pakka, einnig ófrosið í rúllu – upp­skriftin gerir ráð fyrir 8 vösum og þeir nást úr þessum plötum eða rúllu.
*** Óðals Ísbúi er mjög góður í þessa upp­skrift en það má mæla með Tindi, Cheddar, Gouda eða hverjum öðrum Óðalsosti sem er.

Skref 1
Hitið ofn í 200 gráður. Setjið bök­un­ar­pappír á bök­un­arplötu.
Fletjið aðeins út smjör­deigið á hveitist­ráðu borði.
Skerið út úr því fern­inga sem eru um 10×10 cm á stærð.
Snyrtið asp­as­inn, skerið neðri end­ann af honum.
Setjið á fat og hellið yfir hann ólífu­olíu, stráið salti og pipar yfir og nuddið vel saman.

Skref 2
Brjótið hverja hrá­skinku­sneið saman og leggið á hvern smjör­deig­skassa.
Þá fer asp­as­inn yfir skink­una, horn í horn, fjórir stilkar fyrir hvern vasa.
Stráið rifnum osti yfir asp­as­inn þannig að tölu­vert sé af honum, eða um 2 msk.

Skref 3
Brjótið hornin á smjör­deig­inu yfir asp­as­inn og lokið vas­anum.
Smyrjið með hrærðu eggi og saltið aðeins og piprið.
Setjið í ofn og bakið í um 12-15 mín­útur.Berið fram heitt en ekki verra þegar farið að kólna aðeins.

Höfundur / Halla Bára Gests­dóttir

Á gottimat­inn.is finn­urðu upp­skriftir að fleiri ljúf­fengum réttum.

Mjólk­ur­sam­salan í sam­starfi við Stúdíó Birtíng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur