Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Forstjóri Covid-útgerðarinnar: „Okkur þykir þetta mjög miður, ömurlegt alveg“

Forstjóri Covid-útgerðarinnar: „Okkur þykir þetta mjög miður, ömurlegt alveg“

Einar Valur Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar, seg­ist miður sín yfir því að ekki hafi verið farið eftir reglum þegar frysti­tog­ar­anum Júlíusi Geir­munds­syni var ekki snúið til hafnar þrátt fyrir fjöl­mörg covid-smit um borð. Hvort skip­verjum verði bætt atvikið hefur ekki verið rætt.

„Þetta eru bara mis­tök af okkar hálfu og við erum að biðj­ast vel­virð­ingar á þeim, inni­lega. Það er eng­inn afsláttur af því. Okkur þykir þetta mjög miður; ömur­legt alveg, sagði Einar Valur í sam­tali við Morg­un­blaðið þar sem hann segir vinnu í gangi við að fara yfir alla atburð­ar­rás­ina. Í við­tali við Vísi um helg­ina bar hann því meðal ann­ars við að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi ekki „þekkt“ Covid-19. „Fyr­ir­tækið telur ljóst að rétt hefði verið að til­kynna grun um kór­ónu­veiru um borð í skip­inu til Land­helg­is­gæsl­unnar og láta þeim yfir­völdum eftir að meta hvort rétt væri að sigla skip­inu til hafnar.“

For­svars­menn Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar, sem gerir út togar­ann Júlíus Geir­munds­son ÍS, voru ítrekað hvattir til að halda með skipið í land í Covid-sýna­töku. Þau til­mæli bár­ust frá umdæm­is­lækni sótt­varna á Vest­fjörðum, Súsönnu Björgu Ást­valds­dóttur, meðal ann­ars á þriðja degi túrs­ins, en þau til­mæli voru virt að vettugi.

Útgerðin sendi hins vegar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það sagði að í ljósi þeirrar vit­neskju sem nú liggur fyrir hefði átt að kalla skipið fyrr til hafnar. Fyr­ir­tækið lét líka í það skína að það hafi verið ákvörðun ann­arra að ekki hafi verið ástæða til að halda með skipið til hafnar snemma í túrnum. Súsanna sagði í sam­tali við Mannlíf það hins vegar kýr­skýrt að hún hvatti útgerð­ina alveg frá upp­hafi að fara með skip­verja í sýna­töku. Það hafi hún gert ítrekað á meðan túrnum stóð.

„Þetta var ekki mín ákvörðun og þetta hefði getað farið verr. Mín til­mæli hafa verið, og verða alltaf, alveg sama hvar þú ert staddur í heim­inum, að þú eigir að koma í sýna­töku ef þú ert með ein­kenni. Ég get stað­fest að þau sam­skipti áttu sér stað milli mín og útgerð­ar­innar, þar af mjög snemma í túrnum. Tilmæli mín eru mjög ein­föld,“ sagði Súsanna.

Útgerðin virð­ist sek um að hafa stofnað manns­lífum í hættu með því að halda sjó þrátt fyrir að stærstur hluti áhafn­ar­innar hafi verið veikur. Þrátt fyrir end­ur­tekin til­mæli sótt­varna­yf­ir­valda hélt skip­stjór­inn ekki til hafnar til að láta skima fyrir veirunni og kom hinum  sjúku í skjól. Þvert á móti var haldið áfram í túrnum með þeim afleið­ingum að nán­ast allir úr áhöfn­inni veikt­ust. Skipið hélt loks til hafnar, rúmum tveimur vikum eftir að veik­indin hófust til að taka olíu.

Á end­anum voru 22 af 25 manna úr áhöfn frysti­tog­ar­ans sýktir af Covid. Nokkrir áhafn­ar­með­limir frysti­tog­ar­ans héldu í Covid-ein­angrun í skóla­bygg­ingu að Holti í Önund­ar­firði í gær. Þar var áður prest­setur. Fram hafa komið lýs­ingar úr túrnum þar sem því er haldið fram að útgerðin hafi neytt Covid-veika menn að vinna. Arnar Hilm­ars­son háseti var einn þeirra sem rauf þögn­ina um hvað raun­veru­lega gerð­ist á skip­inu.

Þór Ólafur Helgason, yfir­vél­stjóri á tog­ar­anum, steig þá fram og kann­ast ekki við lýs­ingar á því að skip­verjar sem voru veikir af Covid-19 hafi verið skikk­aðir til að vinna um borð. Það gerði hann í sam­tali við Vísi. Þá seg­ist hann ekki hafa orðið var við að margir úr áhöfn­inni hafi orðið fár­veikir og full­yrti að Arnar háseti væri ekki að segja satt og rétt frá.

Sveinn Geir Arn­ars­son skip­stjóri vildi ekki tjá sig um málið við Mannlíf þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð