Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríði brugðið: „Persónulegar árásir og smánun á hendur vönduðum og skeleggum fréttamanni“

Sigríði brugðið: „Persónulegar árásir og smánun á hendur vönduðum og skeleggum fréttamanni“

Sigríði Hagalín Björns­dóttur er brugðið yfir því fúk­yrða­flaumi sem hefur gengið yfir Einar Þor­steins­son kollega hennar á frétta­stofu RÚV. Sumir hafa haldið því fram að hún hafi spáð fyrir um COVID-ástandið með bók sinni Eyland, en lýs­ingar í bók­inni minna óneit­an­lega á árið 2020. Hún seg­ist þó fyrst og fremst hafa verið að skrifa um það þegar blaða­menn megi ekki spyrja gagn­rýnar spurn­ingar.

„Árið 2016 skrif­aði ég bók sem heitir Eyland. Ég skrif­aði hana aðal­lega fyrir sjálfa mig og ætl­aði ekk­ert endi­lega að gefa hana út, en út kom hún og hefur farið víðar en ég bjóst nokkurn tím­ann við. Und­an­farna mán­uði hefur fólk stundum komið að máli við mig á förnum vegi, úti í búð, á veit­inga­húsum, og spurt hvort ég búi yfir ein­hverri spá­dóms­gáfu, að hafa séð ein­angr­un­ina vegna Covid-far­ald­urs­ins fyrir. Svarið er nei, það gerði ég ekki, sem betur fer,“ segir Sigríður.

Hún seg­ist hafa heyrt ýmsar túlk­anir á bók­inni. „Ég hef heyrt ýmsar túlk­anir á Eylandi, að hún sé um upp­gang fas­isma, útlend­inga­hatur og mat­ar­skort; hún hefur verið flokkuð sem dystópía, saga af sam­fé­lags­hruni. En ég skrif­aði hana fyrst og fremst um blaða­mennsku. Um það sem kemur fyrir þjóð­fé­lög þegar krafan um sam­stöðu verður svo fyr­ir­ferð­ar­mikil að blaða- og frétta­menn hætta að þora að spyrja erf­iðra og leið­in­legra spurn­inga,“ segir Sigríður.

Hún segir bók­ina þó fjalla um þetta: „Við lifum for­dæma­lausa tíma, við erum öll almanna­varnir, við stöndum öll saman. En frétta­menn mega samt ekki hætta að spyrja ráða­menn og for­stöðu­menn stofn­ana þjóð­ar­innar krefj­andi og gagn­rýn­inna spurn­inga. Til þess erum við hérna, það er mik­il­væg­asti til­gangur fjöl­miðla og frétta­manna í lýð­ræð­is­ríki. Það er ekki alltaf þakk­látt eða skemmti­legt hlut­verk, og það krefst ákveð­ins hug­rekkis.“

Því er hún ugg­andi yfir því skít­kasti sem Einar Þor­steins­son hefur þurft að þola. „Mér er brugðið yfir þeim fúk­yrða­flaumi sem hefur gengið yfir Einar Þor­steins­son, kollega minn í Kast­ljósi, vegna við­tals hans við Pál Matth­í­as­son, for­stjóra Land­spít­al­ans, á mánu­dag­inn. Við erum aldrei hafin yfir gagn­rýni, en margt af því sem sett hefur verið fram um við­talið, meðal ann­ars hér á Facebook, getur ekki flokk­ast sem annað en per­sónu­legar árásir og smánun á hendur vönd­uðum og skel­eggum frétta­manni, sem hefur ekki unnið annað til saka en að vinna vinn­una sína. Einar er ekki eini frétta- eða blaða­mað­ur­inn sem hefur þurft að þola rætnar, per­sónu­legar árásir fyrir störf sín, oft frá fólki sem ætti að vita betur en að fara í mann­inn og skjóta sendi­boð­ann,“ segir Sigríður.

Hún seg­ist vita hvernig þetta endar þó hún sé ekki skyggn. „Mér finnst harkan í þess­ari ómál­efna­legu umræðu hafa auk­ist, og berg­máls­hell­arnir dýpkað að und­an­förnu. Ég ótt­ast að það hafi á end­anum þau áhrif að fæla hæfi­leika­fólk frá blaða­mennsku, og hræði starf­andi blaða­menn frá því að fjalla á gagn­rýn­inn hátt um stöðu umdeildra mála.

Ég bý ekki yfir neinni spá­dóms­gáfu, en ég veit hvað kemur fyrir þjóð­fé­lög þegar blaða­menn hætta að þora að spyrja erf­iðra spurn­inga. Til þess þarf enga spá­dóms­gáfu, sagan hefur kennt okkur það, aftur og aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ