Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Háski og björgun við Meyjará: „Miklu meira fyrir hetjuskap og krafta bróður míns“

Háski og björgun við Meyjará: „Miklu meira fyrir hetjuskap og krafta bróður míns“
Meyjará breytt­ist á skömmum tíma í skað­ræð­is­fljót. Mynd: Tómas Guðbjartsson.

„Það farið að bera á ofkæl­ingu og fólk auð­vitað orðið mjög þreytt. Það var þeim líka til happs að það voru snill­ingar í hópnum sem gátu tendrað eld,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, ,for­seti Alþingis, um háska sem göngu­hópur hans lenti í við Meyjará á Ströndum. Fólk lenti í miklum  háska þegar gerði úrhellis­rign­ingu. 

Hann segir að hóp­ur­inn hafi van­metið aðstæður og ekki verið nógu kunn­ugur því hversu vatnið kemur hratt niður fjöll á Ströndum.

„Við fengum svo sem engar sér­stakar við­var­anir um það þannig að við lögðum af stað úr Reykj­ar­firði í sudda­veðri. Eftir því sem leið á dag­inn var ljóst að vatna­vext­irnir voru meiri og meiri. Það gekk allt vel þangað til við áttum um þrjá kíló­metra eftir að Dröngum en þá komum við að á, Meyjará, sem er venju­lega hægt að vaða yfir á gúmmí­stíg­vélum en var orðin að skað­ræð­is­fljóti. Það var alveg ljóst að hóp­ur­inn var strand­aður. Það var komið fram á kvöld, fólk var orðið þreytt af langri göngu og vos­búð og aug­ljóst að menn voru ekki vel staddir til þess að stranda þar ef eng­inn vissi um okkur“.

Ekkert fjar­skipta­sam­band var á svæð­inu og ekki hægt að leita hjálpar. Úr varð að Stein­grímur og Ragnar, bróðir hans, fundu að stað til að vaða ána alveg upp undir flúðum. Þeir brut­ust yfir ánna til að ná í hjálp að Dröngum og kom­ast í síma­sam­band. Stein­grímur gerir ekki mikið úr sínum hlut en segir bróður sinn hafa sýnt hetju­skap.

„Þetta gekk bara ágæt­lega og það er miklu meira fyrir hetju­skap og krafta bróður míns en mín vegna þess að hann er mjög harð­skeyttur og öfl­ugur maður og góður að hafa með sér á ferða­lögum. Við óðum bara eins og við höfum oft gert áður þegar við höfum vaðið stór­vötn og þá ríg­höldum við í hvorn annan og þá eru fjórir fætur en ekki tveir undir byrð­inni. Við komumst klakk­laust yfir ána og drifum okkur að Dröngum og hittum þar gott fólk sem aðstoð­aði okkur við að kom­ast í sam­band við Neyð­ar­lín­una og björg­un­ar­að­ila. Svo tók það reyndar ónota­lega langan tíma en að lokum kom bátur frá Norð­ur­firði og sótti hóp­inn og ferjaði hann yfir að Dröngum. Það mátti ekki seinna vera í sjálfu sér því  en það var ein­hver með gas­hitara sem þau gátu notað til að kveikja í plasti og síðan reka­við og þannig gátu þau hlýjað sér, enda ilm­aði hóp­ur­inn af reykj­ar­lykt þegar hann kom.“

Sjá Mann­lífs­við­tal Svövu Jóns­dóttur við Stein­grím í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ