Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Trylltur trúðaköttur ræðst á heimilisfólk í Laugarneshverfi með kjafti og klóm

Trylltur trúðaköttur ræðst á heimilisfólk í Laugarneshverfi með kjafti og klóm
Svartur köttur hrellir íbúa hverf­is­ins. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Kol­svartur högni hefur hrellt íbúa Laug­ar­nes­hverf­is­ins um nokk­urt skeið með ógn­andi til­burðum. Dýrið, sem er með trúða­kraga og bjöllu, hefur sært bæði dýr og menn í hverf­inu og nú geta íbú­arnir ekki lengur við unað.

Háværa umræðu um högn­ann má finna á hverf­is­síðu Laug­ar­nes­ins á Facebook. Það var Ingi Vífill nokkur sem hóf þar umræð­una. „Ég vil vekja máls á efni sem hefur legið þungt á mér frá því við fjöl­skyldan fluttum hingað í hverfið í lok sum­ars. Svartur högni hér í hverf­inu, með trúða­kraga og bjöllu, hefur sýnt af sér ógn­andi til­burði um all­nokk­urt skeið. Húskött­ur­inn okkar hefur ítrekað komið heim eftir hann særður og illa leik­inn. Hingað til hef ég horft í gegnum fingur mér með þetta, og gert það sem í mínu valdi hefur staðið – skorist í leik­inn með vatns­gusum þegar þeir hafa mæst í garð­inum, og haldið kett­inum okkar inni,“ segir Ingi og bætir við:

„Í morgun vökn­uðum við fjöl­skyldan við hvæs og kvein innan úr íbúð­inni okkar. Þá hafði umræddur högni gert sér leið, ekki aðeins inn á stiga­gang­inn, heldur inn í íbúð­ina okkar, til þess að ógna kett­inum okkar. Ég skarst í leik­inn og vildi fæla hann burt, en læsti svarti högn­inn þá klóm og tönnum á bólakaf í fót­inn á mér og gerði sig lík­legan til að ráð­ast til atlögu á annað heim­ils­fólk, m.a. fjög­urra ára dóttur okkar, sem stóð dauð­skelfd og skælandi. Tókst mér að fæla hann á brott með vatns­gusu. Svarti högn­inn er mannýgur og fer ég þess á leit að eig­endur, hverjir sem þeir eru, gangi úr skugga um að gælu­dýrið þeirra sé ekki að ráð­ast á fólk.“

Halldóra Malin Pét­urs­dóttir hefur svip­aða sögu að segja. „Úfff, því miður hef ég sömu sögu að segja af þessu bless­aða dýri, hann hefur líka komið hérna inn til okkar og er afar illur og tuskar læð­una okkar alveg hrylli­lega til. En mér þykir mjög skelfi­legt að heyra að hann geri atlögu að fólki, því hér eru börn,“ segir Halldóra.

„ Svarti högn­inn er mannýgur og fer ég þess á leit að eig­endur, hverjir sem þeir eru, gangi úr skugga um að gælu­dýrið þeirra sé ekki að ráð­ast á fólk.“

Gréta Jóna Vign­is­dóttir segir högn­ann alræmda hafa oft komið heim til sín og ráð­ist á bæði heim­il­is­kött­inn og dóttur sína. „Þessi köttur hefur oft komið til okkar og ráð­ist á kött­inn okkar hann réð­ist á dóttur mína lika stökk á hana með þeim afleið­ingum að hún var öll klóruð á höfði. Við höfum tvisvar talað við eig­endur og þau vilja ekk­ert gera og segja að þessi köttur sýni ekki þessa hegðun. Við höfum sprautað á hann þegar hann kemur nálægt,“ segir Gréta. 

Svala Jóhanns­dóttir blandar sér í umræð­una og seg­ist hafa lengi ætlað sér að tala um kol­svartan trúða­högn­ann við aðra íbúa í hverf­inu. „Læðan mín hefur lent illa í honum líka og hann hefur ítrekað komið inn í íbúð­ina til okkar og vakið okkur um miðjar nætur. Ég hafði sjálf hugsað mér að pósta hérna varð­andi þennan högna en það er greini­legt að við erum ekki ein í þessu!,“ segir Svala.

Sjöfn nokkur von­ast til að lausn finn­ist á mál­inu fljótt. „Vonandi finnst lausn á þessu máli en lítur út fyrir að það sé bara því miður ekki hægt að leyfa þessum ketti að ganga lausum fyrst að hann er hættu­legur bæði öðrum dýrum og fólki.“

Eva Bald­urs­dóttir er því hjart­an­lega sam­mála. Hún hefur verið að glíma við dýrið und­an­farið. „Það hefur bara ekk­ert annað virkað til að fæla hann burt þegar hann ryðst inn á stiga­gang­inn okkar eða jafn­vel íbúð­ina og ræðst bæði á dýr og fólk! Maður getur ekki látið svona yfir sig ganga og þurfa eig­endur að taka ábyrgð í þessu máli, sér­stak­lega í ljósi þess að það hafa greini­lega mjög margir sömu sögu að segja af þessum til­tekna ketti,“ segir Eva. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ