Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Alltaf ljúffeng, alltaf góð“

„Alltaf ljúffeng, alltaf góð“

Sænska Klädes­hol­men-síldin fellur Íslend­ingum vel í geð.

„Við­tök­urnar hafa verið framar öllum vonum. Sænska Klädes­hol­men-síldin er enda algjört lost­æti, alltaf jafn­ljúf­feng og góð og því kannski ekk­ert skrítið að þeir sem hafa bragðað á henni á annað borð skuli kaupa hana aftur og prófa ólíkar teg­undir af mar­iner­ingu,“ segir Jón Ein­ars­son, for­stjóri Saxa, sem ann­ast inn­flutn­ing á hinni geysi­vin­sælu Klädes­hol­men-síld sem lands­menn hafa tekið fagn­andi síð­ustu miss­erin.

Jón Ein­ars­son, for­stjóri Saxa ehf., veit hvað hann syngur þegar kemur að síld. Alinn upp í fiski síðan hann var gutti. „Já, ég byrj­aði að fara á síld og loðnu þegar ég var strákur. Það er spenn­andi að veiða upp­sjáv­ar­fisk eins og síld.“

Þó ekki sé langt síðan Saxa hóf inn­flutn­ing á sænsku síld­inni, finnur Jón fyrir miklum áhuga á vör­unni. „Það er auð­vitað löng hefð fyrir síld­ar­veiðum og vinnslu á Íslandi og á sumum heim­ilum er vin­sælt að bjóða upp á síld, jafnt hvers­dags sem á tylli­dögum. Við finnum að síldin er gríð­ar­lega vin­sæl um þessar mundir. Áhuginn á þeirri sænsku hefur í það minnsta auk­ist. Fólki finnst skemmti­legt og spenn­andi að sjá hversu fjöl­breytt úrval er í boði.“

Spurður hvaða bragð­teg­undir njóti mestra vin­sælda hikar Jón aðeins. „Það er svo­lítið erfitt að að til­greina nokkrar gerðir umfram aðrar, það eru svo margar vin­sælar,“ segir hann og brosir. „Malt whiskey- og sinn­eps­síldin hefur slegið í gegn. Hún er lík­leg­ast vin­sælasta síldin frá Klädes­hol­men frá því fyrstu krukk­un­unum var raðað í hill­urnar hjá versl­unum. Hjá mörgum er síðan franska lauk­síldin í miklu upp­á­haldi, einnig kunna margir að meta krydd­síld. En eitt er víst að allir ættu að geta fundið síld við sitt hæfi því teg­und­irnar eru margar.“

Metnaður og gríðarleg reynsla

Það er auð­heyrt á „síld­ar­spek­úlant­inum“ að mik­ill metn­aður og vinna er lögð í verkun síld­ar­innar frá Klädes­hol­men og hann efast ekki um að það sé helsta ástæða að hún sé jafn­vin­sæl og raun ber vitni. „Það er gríð­ar­leg nákvæmn­is­vinna að verka góða síld. Hráefnið þarf að vera fyrsta flokks og með­höndl­unin góð. Fram­leið­and­inn þarf að vera með góða þekk­ingu á hrá­efn­inu. Klädes­hol­men á sér einmitt mjög langa sögu þegar kemur að vinnslu á síld. Þeir hafa fram­leitt hana á eyju fyrir utan Gauta­borg í margar aldir og eru því með gríð­ar­lega reynslu. Þess utan er sænski mark­að­ur­inn mjög kröfu­harður á síld þannig að Klädes­hol­men leggur kapp á að varan upp­fylli ströng­ustu gæða­kröfur. Við Íslend­ingar njótum síðan góðs af því,“ segir Jón og kímir. „Svíarnir hafa í gegnum tíð­ina keypt mikið af síld af Íslend­ingum og alltaf valið bestu síld­ina sem í boði er.“

Vísbendingar um gæði

Síldin frá Klädes­hol­men fæst í flestum stór­mörk­uðum á Íslandi. Hún er líka fáan­leg í hverfa­versl­unum eins og Mela­búð­inni og Kjötborg. Þess utan er hún í boði á ýmsum veit­inga­stöðum sem Jón segir að sé ákveð­inn gæða­stimp­ill út af fyrir sig.

En í hverju fel­ast gæðin? „Það eru kannski nokkur atriði sem ber helst að nefna. Við kaup á gæða­síld á við­skipta­vin­ur­inn að geta gengið að því vísu að bit­arnir séu stífir og fínir.
Að bit­arnir séu alltaf svip­aðir að stærð og áferð, bit­arnir séu jafn­stórir og alveg jafn­ferskir og góðir á bragðið. Munurinn á góðri síld og hinni er síðan sá að góð síld þolir að standa aðeins á borði án þess að það bitni á bragð­inu. Þetta eru m.a. atriði sem segja til um gæðin.“

Jón segir síðan til­valið að prófa sig áfram með síld­ina. „Sums staðar erlendis borða margir hana með hrökk­brauði en ekki rúg­brauði eins og tíðkast hér. Það þykir herra­manns­matur. Svo þykir mörgum gott að fá sér síld með skonsum. En ann­ars mæli ég bara með því að fólk prófi eitt­hvað nýtt og brjóti þetta aðeins upp.“

Gaman að setja saman eigin síldarsalöt

Jón tekur fram að það sé ekki ein­göngu til­búna síldin frá Klädes­hol­men sem er vin­sæl. Svokölluð fimm mín­útna síld er líka eft­ir­sótt erlendis. „Á Íslandi er auð­vitað orðið tölu­vert um að fólk búi til sína eigin síld eins og þekk­ist víða í útlöndum. Þess vegna tókum við upp á því að bjóða líka upp á pakkn­ingu með edikverk­aðri síld frá Klädes­hol­men. Hún er kölluð fimm mín­útna síld vegna þess að það tekur ekki meira en fimm mín­útur að skera flökin niður í bita og setja í krukkur ásamt ýmsu hrá­efni sem fer vel með síld­inni og búa til ljúf­fengt síld­ar­salat. Ef fólk skellir síðan jóla­borða á krukk­urnar er það komið með fín­ustu jóla­gjafir,“ segir hann og gefur upp­skrift að sal­ati þar sem umrædd pakkn­ing kemur við sögu.

Hráefni
flök úr 410 g Klades­hol­men 5 mín­útna pakkn­ingu (yfir­leitt 3 flök)
gras­laukur, helst ferskur
dill, helst ferskt
3 msk. 18% sýrður rjóma
3 msk. majónes
u.þ.b. 2 tsk. stein­bíts­hrogn (orange-lituð), eða eftir smekk
safi úr u.þ.b. hálfri sítrónu

Aðferð:  Skerið flökin niður í hæfi­lega stóra bita. Setjið í skál. Bætið gras­l­auki og dilli úti. Blandið saman við 18% sýrðan rjóma og majónes. Bætið stein­bíts­hrognum út í og sítrónusafa. Hrærið gæti­lega saman. Setjið í hreina gler­krukku. Setjið í kæli. Berið fram vel kælda.

Athugið að snið­ugt er að tæma úr gler­krukk­unni áður en borið fram og setja á fal­legt fat, skreyta síðan með dill­kvistum, stein­bíts­hrognum, hökk­uðum gras­lauk og jafn­vel smátt skornum sítrón­u­sneiðum. Krukkan með síld­ar­sal­ati geym­ist vel í kæli í nokkra daga.

Síld að hætti sænska sendiherrans

Bæði Svíar og Íslend­ingar kunna að meta góða síld og hér að neðan sést sendi­herra Sví­þjóðar á Íslandi setja saman síld. „Þarna er sendi­herran Häkan Juholt að gera hluti sem eru harla óvenju­legir, að setja saman síld, og nota til þess osta,“ segir Jón. „Þetta er alveg rosa­lega gott. Sænski Väster­botten ost­ur­inn, sem fæst í flestum versl­unum er not­aður ásamt fleira góð­gæti og blandað með síld­inni, sem er síðan sett á gler krukku, látið standa í kæli nokkrar klukku­stundir eða yfir nótt. Það er líka alveg óhætt að borða strax. Mynda­töku­mað­ur­inn hjá okkur borð­aði til dæmis alveg upp úr krukk­unni þegar mynda­tökum lauk.“

Frí­vöru­versl­unin Saxa ehf í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur