Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Merkir minnast Páls sem jarðsunginn er í dag: „Páll Pétursson var frábær félagi og góður vinur“

Merkir minnast Páls sem jarðsunginn er í dag: „Páll Pétursson var frábær félagi og góður vinur“

Fjöl­margir minn­ast Páls Pét­urs­sonar, bóndi og fyrr­ver­andi ráð­herra, með fal­legum minn­ing­ar­orðum en hann verður bor­inn til grafar í dag í heima­graf­reit að Guð­laugs­stöðum í Blöndu­dal. Hann lætur eftir sig eig­in­konu, þrjú börn og tvö stjúp­börn.

Páll fædd­ist 17. mars árið 1937 og bjó lengst af á Höllu­stöðum í Blöndu­dal. Hann lést á Land­spít­al­anum 23. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Eig­in­kona Páls er Sigrún Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra.

Páll lauk námi við Mennta­skól­ann á Akureyri og hóf þá búskap á Höllu­stöðum. Hann gegndi ýmsum trún­að­ar­störfum í hér­að­inu en hann var kjör­inn á þing árið 1974. Þar sat hann í tæpa þrjá ára­tugi og var lengi þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Páll var félags­mála­ráð­herra tvö kjö­t­íma­bil og vann þar að mörgum mik­il­vægum málum. Hann sat einnig í Norð­ur­landa­ráði lengi vel og var tví­vegis for­seti ráðs­ins.

Ragn­hildur Þóra Kára­dóttir, dóttir Sigrúnar, eig­in­konu Páls, minn­ist Páls sem klett­inn í stór­fjöl­skyld­unni þar sem til hans leit­uðu allir, hvort sem þeir voru í vanda eða til að sam­gleðj­ast með. Það gerir hún í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. Sjálf var Ragn­hildur því miður í sótt­kví þegar Páll kvaddi þennan heim. „Hann minnti því oft meira á suður-ítalskan fjöl­skyldu­föður en bónda að norðan. Missir okkar allra er mik­ill, því að akk­erið er farið. Páll kom inn í líf mitt þegar hann kvænt­ist móður minni og lagði í það hlut­verk að taka að sér þrjár ung­lings­stúlkur. Við Páll náðum vel saman þegar við tókum langar umræður um Njálu og aðrar Íslend­inga­sögur við eld­hús­borðið. Hann var haf­sjór af fróð­leik og kunni því sem næst allar Íslend­inga­sög­urnar utan­bókar,“ segir Ragn­hildur og bætir við:

„Hann fræddi mig og fjöl­skyldu mína um íslenska menn­ingu, allt frá Íslend­inga­sögum til nútím­ans. Páll var merki­legur ein­stak­lingur á svo margan hátt og slíkum manni er erfitt að lýsa í stuttri grein. Manni mínum þótti alveg ein­stakt að þótt Páll væri maður sterkra skoð­ana, virti hann við­horf ann­arra, sem og ólíka ein­stak­linga. Minn­ing­arnar um jólin, sumrin í sveit­inni og sam­ræð­urnar við eld­hús­borðið munu ávallt lifa með okkur. Hvíl í friði kæri Páll.“

Páll undi sér best við búskap á Höllu­stöðum og leit fyrst og fremst á sig sem bónda. Hafði hann yndi af hrossum frá blautu barns­beini. Lengst af sam­ein­uð­ust hugð­ar­efni hans í göngum á Auð­kúlu­heiði þar sem hann var í nánd við hross, kindur og nátt­úr­una, í félag­s­kap vina og sveit­unga.

„Hann minnti því oft meira á suður-ítalskan fjöl­skyldu­föður en bónda að norðan. Missir okkar allra er mik­ill, því að akk­erið er farið“
Finnur Ing­ólfs­son

Þeir Páll og Finnur Ing­ólfs­son störf­uðu lengi saman í Fram­sókn­ar­flokknum. Finnur minn­ist góðs vinar og kjark­aðs bar­daga­manns. „Páll var kjark­aður og hvat­vís bar­daga­maður, orð­hepp­inn og mælskur, sann­fær­ingu sinni trúr og öfl­ugur bar­áttu­maður sinnar sveitar. Hann var stjórn­samur og lá ekki á skoð­unum sínum. Margir hafa því kannski upp­lifað hann harðan og óvæg­inn en þeir sem til þekkja vissu að undir þessu hrjúfa yfir­borði bærð­ist hlýtt hjarta.  Því hafa margir kynnst því spor­leti spurð­ist aldrei til hans. Komið er að kveðju­stund. Samleið góð vörðuð minn­ingum mörgum og góðum er þökkuð heils­hugar,“ segir Finnur.

Vil­hjálmur Egilsson

Vil­hjálmur Egilsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, minn­ist líka góðs vinar með fögrum orðum í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Páll Pét­urs­son var frá­bær félagi og góður vinur. Við vorum sam­ferða á Alþingi í tólf ár og náðum vel saman allan tím­ann. Páll var öfl­ugur full­trúi íslenska bænda­sam­fé­lags­ins, blanda af íhalds­manni og jafn­að­ar­manni, bráð­greindur, skemmti­legur og miklu vel­vilj­aðri og hlýrri en stundum kom fram á hrjúfu yfir­borð­inu. Mér fannst ég læra heil­mikið af Páli og er þakk­látur fyrir að hafa kynnst honum. Hann var ótrú­lega glöggur á sam­fé­lagið og sam­ferða­menn sína. Guð blessi minn­ingu hans,“ segir Vil­hjálmur.

„Eitt vissu menn allra flokka að Páli var hægt að treysta. Hann stóð við orð sín og gerða samn­inga“

Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, starf­aði lengi með Páli og minn­ist hans fal­lega í minn­ing­ar­grein. „Páll Pét­urs­son var þéttur á velli og þéttur í lund, hand­takið traust og mað­ur­inn hraust­legur, fasið heil­steypt. Páll var sein­tek­inn en traustur vinur vina sinna. Við kynnin fann maður að hinir innri þræðir hans voru ofnir úr öðru og mýkra efni en ytra byrðið. Engum sem horfði á þennan hraust­lega karl­mann með stórar og sterkar hendur og hrjúft yfir­bragð gat dottið í hug að hann gæti sest niður og sniðið efni og saumað kjóla á konu sína eða valið feg­urstu skart­gripi,“ segir Guðni og bætir við:

Guðni Ágústs­son. Mynd / Skjáskot RÚV.

„Páll var list­hneigður, hafði prýði­lega söng­rödd og einn besti hag­yrð­ingur Alþingis. Eitt vissu menn allra flokka að Páli var hægt að treysta. Hann stóð við orð sín og gerða samn­inga. Menn vissu líka að hann var ekk­ert lamb að leika sér við í orða­sennum í þing­sal. Vel búinn að mælsku­list og fær í rök­ræðu og fastur fyrir eins og bjarg. Glettinn var hann og skemmti­leg­astur allra á gleði­stundu. Fjöl­skyldan var honum mik­ils virði, börn og barna­börn þeirra beggja, og óðalið í sum­ar­hús­inu á Höllu­stöðum var eins og himna­ríki. Þar söng Blanda honum söngva sína, hann var kom­inn heim. Dreng­skap­ar­maður er horf­inn af heimi.“

Páll verður jarð­sung­inn frá Blöndu­ós­kirkju í dag kl. 13, að við­stöddum nán­ustu aðstand­endum. Athöfn­inni verður streymt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ