Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna vill sekta fyrir brot á sóttvarnalögum – Ríkissjóður hefði grætt 35 milljónir á Ásmundarsal

Anna vill sekta fyrir brot á sóttvarnalögum – Ríkissjóður hefði grætt 35 milljónir á Ásmundarsal

Anna Krist­jáns­dóttir, vél­stjóri á eft­ir­launum, hefur búið á Tenerife allt þetta ár. Hún spyr á Facebook hvers vegna Íslend­ingar sekti ekki þá sem brjóta gegn sótt­varn­ar­reglum líkt og Spán­verjar. Hún segir að ef Íslend­ingar hefðu jafn­háar sektir og á Spáni þá hefði alræmt partý í Ásmund­ar­sal skilað rík­is­sjóði 35 millj­ónum króna.

„Ég var að velta fyrir mér stöð­unni á blá­fá­tækum rík­is­sjóði Íslands sem mér skilst að standi mjög tæpt vegna krónu­veirunnar. Hér í Paradís voru inn­leiddar skerptar reglur fyrir jólin og hækk­aðar sektir fyrir brot á sótt­varn­ar­reglum sem nú nema frá 3000€ allt að 60,000€. Af hverju ekki gera slíkt hið sama á Íslandi?,“ spyr Anna.

Hún tekur svo sem dæmi mál mál­anna um þessi jól, sótt­varn­ar­brot Bjarna Bene­dikts­sonar og um 50 ann­arra í Ásmund­ar­sal. „Um dag­inn var haldið fjöl­mennt sam­kvæmi ungs fólks í Ásmund­ar­sal við Freyju­götu í Reykja­vík. Þar voru sam­an­komin um 50 manns sem brutu sótt­varn­ar­reglur. Sekt­irnar fyrir brotið verða þá sam­tals 150,000€ fyrir sam­kvæm­is­gest­ina en 60,000€ fyrir ábyrgð­ar­mann sam­kvæm­is­ins. Þetta eina sam­kvæmi myndi þá gefa af sér nærri 35 millj­ónir íslenskra króna í rík­is­sjóð Íslands og fjár­mála­ráð­herra yrði him­in­lif­andi með inn­kom­una,“ skrifar Anna.

Annað brot átti sér stað í Landa­kots­kirkju dag­inn eftir og telur Anna að kaþ­ólsku kirkj­unni muni ekki um nokkrar millj­ónir. „Hjón með einka­bíl­stjóra þyrftu þá að greiða 6000€ að því til­skyldu að bíl­stjór­inn bíði úti í bíl á meðan, ann­ars 9000€. Við skulum svo leika okkur með upp­hæð­ina sem rík­is­sjóður hefði fengið fyrir mess­una í Landa­kots­kirkju á aðfanga­dags­kvöld. Páfa­garður er hvort eð er for­ríkur og munar ekk­ert um þessar 10 millj­ónir sem Landa­kots­kirkja hefði þurft að greiða og eru þá sektir kirkju­gest­anna ótaldar sem eru nærri hálf milljón á haus,“ skrifar Anna og bætir við að lokum:

„Ég hvet fjár­mála­ráð­herra ein­dregið til að taka upp þessa góðu reglu sem nú er í gildi á litlum eyjum undan Afr­íku­ströndum og beita fullri hörku við inn­heimtu sekt­anna. Ekki veitir af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ