Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Angist og ofsahræðsla í Grafarvogi: Gæludýr pínd, ungabörn andvaka og heygafflar á lofti

Angist og ofsahræðsla í Grafarvogi: Gæludýr pínd, ungabörn andvaka og heygafflar á lofti

Gæludýr hrekkt, unga­börn and­vaka, hundar ærast, kveikt í rusla­tunnum, versl­un­ar­mið­stöð í hættu að verða eldi að bráð og íbúar ótta­slegnir og fullir bræði. Heygaflarnir eru komnir á loft.

Þetta er ekki lýs­ing á ástand­inu í stríðs­þjáðu landi. Þetta er nú ein­ungis örlítil upp­taln­ing af því sem gengur á í Graf­ar­vogi þessa dag­ana. Samkvæmt fjöl­mörgum íbúum ber hópur barna ábyrgð á þessum voða­verkum, þau fari um svæðið, kveikj­andi í og jafn­vel eru dæmi um að krakka­hóp­ur­inn sé sak­aður um að henda log­andi flug­eldum inn um glugga íbúða. Þá er hóp­ur­inn sagður gamna sér við að hrekkja dýr og hlæja þegar reynt er að siða þau til.

Reiðin kraumar og hefur náð tökum á mörgum ótta­slegnum íbúum hverf­is­ins. Mælirinn er fullur og sál­ar­ang­istin slík að mörg dæmi má finna þar sem ráð­settir íbúar hverf­is­ins upp­nefna vand­ræða­geml­inga hálf­vita og tala jafn­vel um „fokkin“ börnin. Má lesa úr skrifum þeirra full­orðnu sem verst hafa orðið úti vegna prakk­ar­anna að þau vilji taka lögin í sínar hendur og leita þau uppi. Börnin virð­ast því vera að vinna hug­ar­stríðið líka, en líkt og einn íbúi benti á: Ef þeir sæju þessi skrif, myndi það aðeins æsa og efla sprengju­varg­anna.

Krakk­arnir eru vart komnir nokkur skref frá þegar verður spreng­ing

Krakka­hóp­ur­inn í Graf­ar­vogi hefur valdið miklum usla og virð­ist frekar vera um einn hóp að ræða sé tekið mið af frá­sögnum fólks­ins. Nokkuð hafði verið um að kvartað hafi verið undan flug­eldum und­an­farið en síð­ustu tvo daga virð­ist sem hlut­irnir hafi farið úr bönd­unum er hóp­ur­inn henti flug­eldum í átt að húsum. Þá sprakk ein sprengjan yfir heitum potti þar sem fólk sat í mestu mak­indum og hundur fjöl­skyld­unnar ærð­ist. Auður Ýr nokkur full­yrðir í Facebook-hópnum íbúar í Graf­ar­vogi að sami hópur hafi ítrekað grýtt snjó­boltum í rúður, sett flug­elda í rusla­tunnur og dregið síðan tunn­urnar út á götu til að gera bíl­stjórum erfitt fyrir að kom­ast leiðar sinnar. Þá segir hún að dæmi séu um að flug­eld hafi verið hent inn um glugga. Auður Ýr segir:

„Við höfum hringt á lög­regl­una og þau hafa komið. Ég held að maður þurfi að gera það bara ítrekað þar til eitt­hvað er gert í þessu. Þegar þau kasta flug­eldum að fólki og dýrum, inn um glugga hjá fólki og eru að þessu bara stans­laust er þetta orðið frekar alvar­legt.“

Þá sakar Erla Sig­ur­þórs­dóttir, íbúi í Graf­ar­vogi, hóp krakka um að kasta flug­eldum í einn glugga heim­il­is­ins. „Nú er ég alveg brjáluð, það eru strákar svona sirka sex til átta saman sem eru að ganga í átt að Spöng­inni kastandi sprengjum hingað og þangað. Þeir voru rétt í þessu að kasta í glugg­ann hjá mér þar sem kött­ur­inn minn sat og síðan hlógu þeir,“ segir Erla og bætir við:

„Mér er næst að keyra á eftir þeim. Þessir and­skot­ans ung­lingar eru fokk­ing fávitar þið sem sjáið eða eigið þessa drengi þá megið alveg gefa þeim til­tal.“

Eva Dögg Þor­valds­dóttir, annar íbúi í Graf­ar­vogi tekur í svip­aðan streng. „Köstuðu nán­ast á sval­irnar okkar líka! Voru að labba yfir í Rima­hverfið! Hringdi á lögg­una! Hver fleiri til að hringja! Stoppa þessa fávita!“

Þá greinir Albert Örn Alberts­son frá því að hann hafi í fyrr­inótt óskað eftir aðstoð lög­reglu um klukkan 02:00 þegar hópur drengja gerðu það að leik sínum að skjóta flug­eldum inn í versl­un­ar­mið­stöð. Albert segir:

„Ein­hverja hluta vegna er sam­eign húss­ins opin allan sól­ar­hring­inn og ekki að spyrja að ef þeir myndu ná að kveikja í hús­inu.“ Þá segir Ragnar Karl: „Þeir voru að kasta sprengjum hérna inn í garð­inn og inn á svalir hjá fólki líka.“

Í sam­tali við Mannlíf greindi lög­reglu­þjónn frá því að nokkur fjöldi til­kynn­inga hefði borist vegna með­ferð flug­elda. Til­kynn­ing­arnar væru bæði vegna hversu seint væri verið að fýra upp í rakkettum og eins að krakkar væru að henda í hvort annað og í átt að húsum. Virðast Graf­ar­vogs­búar vera ansi sein­þreyttir á ástand­inu. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu en þar segir: „Óheimilt er að breyta á nokkurn hátt skot­eldi þannig að hann hljóti aðra eig­in­leika en fram­leið­andi hans ætl­að­ist til. Við með­ferð og vörslu skot­elda skal ítr­ustu var­úðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leið­bein­ingum.”

Þá hafa íbúar, sein­þreyttir á ástand­inu, einnig biðlað til björg­un­ar­sveita að selja ekki krökkum undir átján ára aldri flug­elda.

En hóp­ur­inn virð­ist ekki aðeins láta til skarar skríða, vopn­aður flug­eldum. Þannig segir Erla: „Ég er búin að verða fyrir því að kastað sé grjóti, jógúrti og eggjum í glugg­ana hjá mér síð­ustu mán­uði og þetta eru oft­ast sömu strák­arnir þannig að ég ætla ekki að afsaka mig að segja: „Fokking fávitar“. Erla segir dreng­ina einnig hafa skellt upp úr eftir að hafa hrædd kött hennar með einni sprengj­unni.

Þá fékk lög­regla í kvöld til­kynn­ingu um að börnin væru einnig að grýta flug­eldum hvort í annað. Lög­reglu­þjónar í eft­ir­lit­sakstri voru skammt frá þegar til­kynn­ing barst og dugði það um sinn til að stöðva hóp­inn um sinn.

Fram­ganga hóps­ins hefur leikið íbú­anna grátt og hafa sumir íbúar gengið svo langt að lýsa yfir að þau vilji taka lögin í eigin hendur og leita sjálf upp dreng­ina. Aðrir kalla eftir því að lög­regla eða Barna­vernd taki hart á mál­inu.

Ari Jós­efs­son segir: „Þessi hópur hefur vilj­andi reynt að hræða hund for­eldra minna og kastað að honum snjó­boltum ítrekað, inn í garð. Sprengdu flug­eld yfir okkur og hund­inum í gær.“

Kristín Sig­urð­ar­dóttir hefur orðið vitni að skemmd­ar­verkum hóps­ins og segir: „Þetta er ekki bara ung­lingaprakk­ara­strik, þetta er hættu­leg hegðun og þarf að stoppa.“

Auður Ýr segir að lík­lega sé um sama hóp að ræða: „Þá voru þau líka búin að taka tunn­urnar hjá leik­skól­anum, gerðu það líka í gær og sprengdu og henda út á götu svo bílar gætu ekki keyrt. Þessi sami hópur (lík­lega) setti líka múr­steina á göt­una í Engja­hverfi um dag­inn og hafa hent flug­eldum inn um glugga hjá fólki. Þetta er svo allt of langt gengið.“

Gunn­hildur Birna Gunn­ars­dóttir tjáði sig um ástandið seint í gær­kvöldi og nú var mælir­inn fullur:. „Getið þið PLÍS hætt að skjóta núna og almennt utan ára­mót­anna og þrett­ánd­ans og vekja 6 mán­aða barnið mitt ásamt fullt af öðrum börnum? Að ekki sé minnst á grey dýrin.“

Hart er tek­ist á um málið í grúpp­unni Íbúar í Graf­ar­vogi. Eru dæmi um að með­limir hafi gagn­rýnt aðra íbúa fyrir að upp­nefna börnin, blóta þeim eða kalla þau fávita. Kolbrún Hildur Gunn­ars­dóttir blandar sér í málið og segir:

„Að gagn­rýna full­orðna sem bera ábyrgð á börnum, dýrum og hús­næði fyrir að hræð­ast og verða reið er svo­lítið öfga­kennt. Full­orðnir hafa alveg rétt á skoð­unum og sínum til­finn­ingum. Ef við ætlum að geyma börnin okkar í svamppúða og væla í hvert sinn sem þau eru gagn­rýnd fyrir athæfi sem er sak­ar­vert, þá verður fátt úr þeim, því miður.“

Kolbrún segir að börn­unum sé engin greiði gerður að hljóta ekki gagn­rýni fyrir fram­komu sem hæfi þeim ekki. „Því væri lag að for­eldrar tækju sig saman um að herða upp­eld­isól­ina tölu­vert og einmitt, nota upp­eldi sem gagn­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ