Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vinur minn er dáinn: Myrkrið sem er falið á bakvið brosið – „Síðasta skipti sem ég sá Hafliða“

Vinur minn er dáinn: Myrkrið sem er falið á bakvið brosið – „Síðasta skipti sem ég sá Hafliða“

„Það getur verið erfitt að eign­ast vini, sanna vini. Ég á fullt af vinum og er hepp­inn að eiga þá að. Vina­sam­böndin eru af ýmsum toga allt frá því að vera „high five vinur“ og alveg í bestu vin­ina sem maður treystir fyrir öllu. Einn af þeim bestu hét Hafliði Ottósson.“

Þetta segir Óli Stefán Fló­vents­son fyrrum knatt­spyrnu­kempa sem nú hefur menntað sig sem knatt­spyrnu­þjálf­ara og stýrt stórum félögum. Óli Stefán fjallar um einn sinn besta vin, Hafliða Óttósson, í áhrifa­miklum pistli sem birtur er á vef Mannlífs. Á síð­ustu mán­uðum hafa verið fluttar fréttir af auknum sjálfs­vígum og því mik­il­vægt sem aldrei fyrr að láta í sér heyra.

Óli Stefán og Hafliði komu úr ólíkum áttum Óli Stefán var mik­ill íþrótta­maður en Hafliði gal­vaskur sjó­ari.

„Það var samt alltaf þannig að hann sýndi bolt­anum mik­inn áhuga og á sama hátt hafði ég gaman af hans sögum af sjó­manns­líf­inu og öllu sem því tengd­ist. Hafliði var nefni­lega dug­legur sjó­maður, enda af miklum sjó­mann­sættum kom­inn.“

Óli Stefán bætir við að Hafliði hafi iðu­lega verið hrókur alls fagn­aðar. Styrkur og kraftur Hafliða var gleði og létt­leiki. Óli Stefán segir:

„Hann gaf þá gjöf að brosa sem er mjög van­metið í hinu dag­lega lífi.“

Það var þann 28. des­em­ber 1996 sem Hafliði heim­sótti Óla Stefán um kvöld­mat­ar­leytið.

„Við áttum spjall sem ég gleymi aldrei. Á þessum tíma sem hann sat hjá mér og spjall­aði man ég að ég hugs­aði að ég væri afar hepp­inn að eiga hann sem vin. Þegar að nóg var komið að kjafta­gangi, var komið að kveðju­stund,“ segir Óli Stefán og bætir við:

„Í and­dyr­inu tókum við gott faðm­lag og ég horfði á eftir honum ganga eftir stétt­inni og setj­ast uppí Galant­inn sinn. Í dag sé ég þetta „móment“ í slow motion“.

Ég sé fyrir mér þegar að hann opn­aði bíl­hurð­ina, leit á mig og brosti til mín sínu fal­lega brosi, sett­ist inn í bíl­inn og ók á brott.

Þetta var í síð­asta skipti sem ég sá Hafliða Ottósson.

Hafliði var ávallt í því hlut­verki að gefa af sér og gleðja aðra. Á sama tíma tókst honum að fela sína innri bar­áttu og þá miklu van­líðan sem hann glímdi við. Sökum þess gerði Óli Stefán sér ekki grein fyrir innra stríði vinar síns.

„Ég leita enn þá að merkjum sem hann gæti hafa verið að gefa frá sér í kalli á hjálp. Sá innri djöf­ull sem hann barð­ist við hafði betur. Hafliði tók eigið líf árla morg­uns 29. des­em­ber 1996,“ segir Óli Stefán en í dag tekur hann ekki vin­áttu sem sjálf­sögðum hlut.

„Ég er alls ekki feim­inn við að opna mig og ræði til­finn­ingar mjög opin­skátt því ég vil að vinir mínir geri það sama við mig. Ég reyni að kom­ast í gegnum bros þeirra ef það skyldi leyn­ist neyð­aróp að innan því það er oftar en ekki vel falið,“ segir Óli Stefán og endar á þessum mik­il­vægu skila­boðum:

„Hugsum vel um hvort annað, því við vitum ekki nema okkar nán­ustu séu í myrkr­inu og þurfi hjálp­ar­hönd til að rata inn í ljósið að nýju“.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð