Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jóhannes spáir hruni eða óðaverðbólgu: „Flest bendir til þess að 2021 verði vægast sagt hrikalegt“

Jóhannes spáir hruni eða óðaverðbólgu: „Flest bendir til þess að 2021 verði vægast sagt hrikalegt“

Jóhannes Björn Lúð­víks­son, höf­undur bók­ar­innar Falið Vald og sam­fé­lags­rýnir, segir að árið 2021 verði ekk­ert skárra en árið 2020, líkt og margir virð­ast halda. Hann segir allt benda til þess að hluta­bréfa­mark­aðir heims­ins hrynji síðar á árinu. Það eina sem gæti komið í veg fyrir það sé óða­verð­bólga, sem sé síst skárri kostur fyrir flesta.

„Flest bendir til þess að 2021 verði væg­ast sagt hrika­legt á verð­bréfa­mörk­uðum heims­ins. Eins og sagan hefur kennt okkur þá eru draumar um að hlut­irnir séu “öðru­vísi núna” aðeins tál­sýn. Botn­lausar skuldir og skipu­lagður tap­rekstur fyr­ir­tækja hafa aldrei og munu aldrei enda í öðru en hruni og gíf­ur­legum afskriftum,“ skrifar Jóhannes á Facebook.

„Síðan í árs­byrjun 2008 (þegar pen­inga­kerfið hrundi og miklar afskriftir voru nauð­syn­legar) hafa fjórir stærstu seðla­bankar heims­ins aukið grunn­magn pen­inga í umferð úr fimm trilljónum doll­ara (evr­ópskar billjónir) í 26 trilljónir doll­ara. Sam­an­lagðar skuldir í hag­kerfi heims­ins hafa síðan 2006 farið úr 125 trilljónum doll­ara í tæp­lega 300 trilljónir. Á sama tíma hefur raun­veru­legur hag­vöxtur ekki auk­ist neitt í lík­ingu við pen­inga­fram­leiðsl­una.“

Jóhannes segir hluta­bréfa­mark­aði dýr­ari en þeir voru í aðdrag­anda krepp­unar miklu. „Ríkasta 1% heims­ins (sem situr næst upp­sprettu pen­ing­anna og getur grætt á vaxta­mis­muni og braski út um allan heim) hefur þó grætt ótæpi­lega á þessu lána­fyll­eríi. Allt nýtt fjár­magn sem sett er í umferð er lánað og er því skuld ein­hverra. Allar skuldir eru ávísun á verð­mæti sem sköpuð eru í fram­tíð­inni. Það er eng­inn „free lunch.“ Ef ein­hver seðla­banki byrjar að “gefa” pen­inga — setur nýtt fjár­magn í umferð sem ekki þarf að end­ur­greiða— þá skap­ast verð­bólga eða óða­verð­bólga eins og í Þýska­landi 1923.

Hluta­bréfa­mark­aðir heims­ins, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, eru dýr­ari en þeir hafa verið í sög­unni. Dýrari en 1929 … og þá er mikið sagt. Það er alveg sama hvernig þetta er mælt — verð­mæti allra hluta­bréfa miðað við þjóð­ar­tekjur, verð miðað við tekjur fyr­ir­tækja o.s.frv. — mark­að­irnir eru hreint út sagt sturl­aðir. Fallið verður ekki minna en 50%.“

Hann segir að eitt gæti komið í veg fyrir hrun. „Hér þarf þó að slá einn varnagla. Risa­stórir líf­eyr­is­sjóðir, borgir og sveita­fé­lög (og heilu sam­fé­lögin) eru víða tækni­lega gjald­þrota. Kannski verða seðla­bank­arnir að prenta gengd­ar­laust (gegn betri vit­und) til þess að halda öllu gang­andi. Þá lækkar óða­verð­bólga skuld­irnar og verð­bréf lækka ekki mikið, en í stað­inn tapa raun­veru­legu verð­gildi sínu og kaup­mætti,“ segir Jóhannes.

Hann segir bíla­fyr­ir­tækið Tesla eitt besta dæmið um bólu sem muni springa. „Samkvæmt tölum Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum og seðla­banka seðla­bank­anna, Bank for International Settlem­ents, þá eru 15 – 20% allra fyr­ir­tækja heims­ins hálf­dauð. Þau eru rekin með enda­lausum skuldum. Besta dæmið um þetta er senni­lega Tesla. Fyr­ir­tækið á mikið hól skilið fyrir að inn­leiða raf­bíla og neyða gömlu bíla­fyr­ir­tækin til þess að taka raf­bíla alver­lega, en verð­lagn­ing á hluta­bréfum Tesla minnir óþyrmi­lega á túlíp­ana-ævin­týrið í Hollandi á sautj­ándu öld. Öll hluta­bréf Tesla — fyr­ir­tækis sem fram­leiðir 0,7% bíla heims­ins og safnar skuldum jafnt og þétt —kosta sam­an­lagt 669 millj­arða doll­ara,“ skrifar Jóhannes og heldur áfram:

„Sam­an­lagt and­virði hluta­bréfa Toyota, Lexus, Volkswagen, Audi, Porsche, Mercedes, Genaral Motors, BMW, Honda, Ford og Fiat Chrysler (og flest þessi fyr­ir­tæki, ólíkt Tesla, skila hagn­aði) er 654 millj­arðar doll­arar. Eins og sagt var í upp­hafi, árið 2021 verður hrika­legt á bæði hluta­bréfa- og skulda­bréfa­mörk­uðum heims­ins … eða ég má hundur heita!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ