Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríður María deilir töfralausninni: Svona lækkaði hún matarútgjöld um 40%

Sigríður María deilir töfralausninni: Svona lækkaði hún matarútgjöld um 40%

Sigríður María Eyþórs­dóttir tón­list­ar­kenn­ari í Grinda­vík var beðin um það á sam­fé­lags­miðlum að deila mat­ar­skipu­lagi og öðrum snjöllum ráðum er varða mat­ar­inn­kaup. Sigríður María eða Sigga Maya eins og hún er gjarnan kölluð full­yrðir að með plan­inu hafi mat­ar­út­gjöld heim­il­is­ins lækkað um allt að 40 pró­sent. Góð búbót það! Mat­ar­sóun heyrir sög­unni til og ekk­ert keypt í skyndi eða fyrir til­viljun í mat­vöru­búðum.

Mat­ar­skipu­lagið er staf­rænt og snyrti­legt og kveðst hún kol­fallin fyrir form­inu og nú þegar farin að fylla út fyrir mars­mánuð. Fleiri hafa þennan hátt­inn á og lýsa yfir á sam­fé­lags­miðlum að með fyr­ir­komu­lag­inu sparist bæði tími og pen­ingar. Sjá má Mat­ar­skipu­lagið neðar í frétt­inni.

„Svona skipu­lag er sem sagt gert fyrir hvern mánuð ásamt inn­kaupa­lista sem dekkar allt sem á skipu­lag­inu er, auk almennrar neyslu­vöru. Ég byrja á því að setja það inn í mán­að­ar­skipu­lagið sem nú þegar er til. Eins og sjá má á ég núna slatta af frosnum bollum í frysti og ætla mér að koma þeim út, auk flat­kaka,“ segir hún og bætir við:

„Þá vantar ekk­ert á heim­ilið nema ferskar mjólk­ur­vörur, ávexti og græn­meti og útgjöld því í algeru lág­marki út mán­uð­inn. Ég full­yrði að þetta verk­lag sé að lækka mat­ar­út­gjöld heim­il­is­ins um 40% frá því sem áður var með engri mat­ar­sóun, hag­kvæmni og engum skyndi­hug­dettu inn­kaupum.“

Bónus verður oft­ast fyrir val­inu þegar farið er í mán­að­ar­lega inn­kaupa­ferð, en nokkrar vöru­teg­undir finnur hún í COSTCO. Mjólk­ur­vörur, ávextir og græn­meti er keypt í Nettó. Ástæðan er ein­föld, það er eina versl­unin sem stendur Grind­vík­ingum til boða. Sigga Maya segir:

„Ég full­yrði að með þessu skipu­lagi tak­ist mér að tæp­lega helm­inga þá upp­hæð sem ég ann­ars færi með í inn­kaup enda aldrei keypt neitt umfram það sem er á inn­kaupa­list­anum.“

Hér má sjá skipu­lagið en með því að smella hér má sjá það í fullri upp­lausn.

Hér fyrir neðan er að finna nokkur sparn­að­ar­ráð Sigríðar Maríu. Við gefum henni orðið:

Ástæðan fyrir því að ég fór að hafa mik­inn áhuga á skipu­lagn­ingu heim­il­is­halds var sú að við hjónin höfum upp­lifað miklar sveiflur í launum í gegnum tíð­ina, bæði vegna atvinnu­á­stands og veik­inda.

Ég gerði mér fljótt grein fyrir að það væri til­tölu­lega auð­velt að stjórna stórum hluta útgjalda heim­il­is­ins með útsjón­ar­semi og skipu­lagn­ingu. Það eru nokkur ár síðan ég fór að skipu­leggja öll mán­að­ar­leg matar og rekstr­ar­vöruinn­kaup heim­il­is­ins fyrir fram og í dag get ég ekki hugsað mér að hafa það öðru­vísi.

Aðal­at­riðið er að vera með­vit­aður um í hvað þú ætlar að nota pen­ing­ana þína. Þú þarft ekki að spara frekar en þú vilt, en það er mik­il­vægt að vita hvert pen­ing­arnir fara. Það eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga ef maður ætlar sér að spara tíma og pen­inga á þennan hátt.

Frystir: Hver fjöl­skylda þarf að eiga frysti­pláss sem sam­svarar geymslu­plássi fyrir einn mánuð en auka­lega fyrir frysta afganga.

Geymslu­pláss: Gera þarf ráð fyrir geymslu­rými fyrir mat­vöru fyrir heilan mánuð í það minnsta en að auki má gera ráð fyrir að með tím­anum bæt­ist við stærri ein­ingar af neyslu­vöru s.s. sekkir af hrís­grjónum, Baunum o.f.l.

Skipulag: Alltaf byrja á að fylla út í skipu­lagið með því að taka vörutaln­ingu í geymslu og frysti. Settu það sem þú átt inn í skipu­lagið fyrir næsta mánuð áður en þú ferð að skrifa niður mat­seðla.

Það er líka hent­ugt að hafa fasta rútínu á því hvers­konar matur er í boði á hvaða degi. Til dæmis fiskur á mánu­dögum, græn­met­is­réttur á þriðju­dögum o.s.f.

Þetta ein­faldar yfir­sýn­ina mikið og gerir öll inn­kaup auð­veld­ari. Þegar allir aðal­réttir hafa verið færðir inn á skipu­lagið er farið yfir hverja mál­tíð í hug­anum og með­lætið sett á tossa­list­ann.

Afgangar eru líka matur og engin ástæða til þess að klára þá ekki þó manni finn­ist þeir ekki passa saman. Að til­einka einn viku­dag afgöngum getur komið í veg fyrir alla mat­ar­sóun. Ef afgang­arnir eru ekki nægir má alltaf krækja sér í auka­bita úr fryst­inum góða.

Sumar og vetur eru ekki eins: stundum getur verið gott að aðlaga skipu­lagið að árs­tíðum. Á sumrin getur verið snið­ugt að bæta við hádeg­is­mat og snarli inn í skipu­lagið, sér­stak­lega þegar kríli eru á heim­il­inu.

Er þetta mikil vinna?

Nei, ég lít á þessa aðferð sem gríð­ar­legan vinnu­sparnað. Vissu­lega er þetta handa­vinna fyrst til að byrja með sem kemst þó hratt upp í vana og mán­að­ar­inn­kaupin geta verið ansi krefj­andi.

Ég veit þó að ég mun ekki þurfa að fara aftur í mat­vöru­verslun nema í mesta lagi 4 til 6 sinnum þann mán­uð­inn.

Jákvæðu punkt­arnir eru fleiri: Í fyrsta lagi þarf ég aldrei að standa fyrir framan kæli í búð og velta fyrir mér hvað ég á að hafa í mat­inn í kvöld.

Í öðru lagi get ég með þessu móti unnið mér í hag­inn fyrir kom­andi daga. Til dæmis tekur jafn langan tíma að sjóða þrjú kíló af kart­öflum og eitt kíló. Valið er því auð­velt og ég geri það frekar og á þá til­búnar kart­öflur í fljót­legan ofn­rétt sem er á dag­skrá seinna í vik­unni. Það sama má gera með steikt hakk, hrís­grjón og í raun nán­ast hvað sem er.

Í þriðja lagi er yfir­sýnin á neyslu­mynstri fjöl­skyld­unnar mjög góð og sparn­að­ur­inn mik­ill, sér­stak­lega þar sem um engar van­hugs­aðar skyndi­á­kvarð­anir við kex­hill­urnar eða annan óþarfa er að ræða.

Þar að auki er kvöld­mat­ur­inn fastur punktur þar sem fjöl­skyldan sam­ein­ast í lok dags. Gott skipu­lag gerir allt auð­veld­ara og and­rúms­loftið létt­ara.

Niðurstaðan: Þægindi, skipulag, sparnaður, tímasparnaður orkusparnaður!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð