Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heiðdís Norðfjörð er látin: „Rætist óskir hennar heitar […] Sárt er að missa sína“

Heiðdís Norðfjörð er látin: „Rætist óskir hennar heitar […] Sárt er að missa sína“
kerti

Rit­höf­und­ur­inn, mann­vin­ur­inn, hug­sjóna­konan, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn, tón­list­ar­konan, lækna­rit­ar­inn og útvarps­konan Heiðdís Norð­fjörð er látin. Heiðdís fædd­ist á Akureyri 21. des­em­ber 1940. Hún lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hlíð 7. janú­ar 2021 og var því nýorðin átt­ræð er hún and­að­ist.

Heiðdís var áber­andi í íslensku sam­fé­lagi á árum áður. Hún skrif­aði fjöl­margar bækur og svo las hún með sinni fögru og seið­andi rödd sögur inn á kasettur. Margir þekkja það án efa að hafa sem börn sofnað út frá rödd hennar og kann­ast við Pílu pínu músastelpu. Heiðdís syngur texta Krist­jáns frá Djúpa­læk um Pílu pínu sem er löngu orðin klass­ík.

Hljótt er nú í húsum inni

Harmur býr í allra sinni

Hvar er litla Píla Pína

Sárt er að missa sína.

Rætist óskir hennar heitar

hún það finni sem hún leitar

Komdu aftur Píla Pína

Sárt er að missa sína

Heiðdís gift­ist 1.12. 1959 Gunn­ari Jó­hanns­syni og eign­uð­ust þau syn­ina Gunnar, Jón Norð­fjörð og Jóhann V. Norð­fjörð.

Píla pína slær í gegn

Heiðdís skrif­aði sög­ur fyr­ir börn og ung­linga og út komu nokkr­ar barna­bæk­ur eft­ir hana. Hún var dag­skrár­gerð­ar­maður hjá RÚV og var þá m.a. með morg­un­stund barn­anna. Til eru marg­ar hljóð­upp­tök­ur með upp­lestri henn­ar.

Heiðdís út­skrif­að­ist sem sjúkra­liði árið 1975 og starf­aði við Elli­heim­ilið í Skjald­ar­vík sem hún veitti síðan for­stöðu í all­mörg ár. Þá starf­aði hún sem lækna­full­trúi við emb­ætti hér­aðs­lækn­is Norður­lands eystra og var síðar lækna­rit­ari á heilsu­gæslu­stöð­inni á Ak­ur­eyri um langt ára­bil.

Heiðdís orti einnig ljóð og samdi tón­list og þótti góður pí­an­isti. Þekkt­ust eru lög Heiðdís­ar við æv­in­týrið um Pílu pínu eft­ir Kristján frá Djúpa­læk. Seinna skrif­aði Heiðdís leik­rit við sög­una um Pílu pínu sem var svið­sett af Leik­fé­lagi Ak­ur­eyr­ar 2016 í sam­starfi við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Norður­lands og Menn­ing­ar­húsið Hof.

Margverðlaunuð

Heiðdís var mik­ill mann­vinur og vildi þessa merki kona láta gott af sér leiða. Þannig var hún um ára­bil með­hjálp­ari við Ak­ur­eyr­ar­kirkju og lengi þátt­tak­andi í kór­starfi.

Árið 2007 fékk hún viður­kenn­ingu frá Beta-deild Alfa Kappa Gamma á Ak­ur­eyri fyr­ir fram­lag til menn­ing­ar og mennt­un­ar­mála barna. Einnig fékk hún viður­kenn­ingu Menn­ing­ar­sjóðs Ak­ur­eyr­ar 2010 fyr­ir mik­il­vægt fram­lag til menn­ing­ar­lífs á Ak­ur­eyri.

Rappaði fyrir barnabörnin

Heiðdís reynd­ist börnum sínum og barna­börnum vel og þá fann Heiðdís upp á ýmsum leiðum til að kenna þeim náms­efni, ef svo bar undir en nafna hennar lýsir því á eft­ir­far­andi hátt:

„Mér gekk ekki vel að leggja marg­föld­un­ar­t­öfl­urn­ar á minnið fyrr en þú sagðir að ég ætti bara að syngja þær! Ég hélt nú ekki! Glæt­an! „Jú! Þú get­ur meira að segja rappað þær!“ sagðir þú og gerðir þér lítið fyr­ir og rapp­aðir sex-sinn­um-töfl­una. Auðvitað hafð­irðu rétt fyr­ir þér. Töfl­urn­ar lögð­ust á minnið, og alltaf sé ég ömmu gömlu fyr­ir mér að rappa þegar ég þarf að marg­falda með sex.“

Hugsónakonan sem vildi bæta heiminn

Þá lýsir Jón Norð­fjörð, eða Nonni litli bróðir Heiðdísi með þessum fal­legu orðum:

„Hún samdi vin­sæl­ar barna­bæk­ur og fal­leg ljóð og hún sá um dag­skrár­gerð hjá RÚV og ávallt þegar ég heyrði hana lesa upp, komu upp í huga minn upp­hafs­orð ljóðs­ins um Sól­skríkj­una, „Sú rödd var svo fög­ur, svo hug­ljúf og hrein“, en rödd Heiðdís­ar var ein­mitt svo hug­ljúf og hrein.“

Anna María, svil­kona Heið­dísar segir:

„Heiðdís var einkar fjöl­hæf og hug­mynda­rík. […] Einnig las hún inn á snæld­ur „Sög­ur fyr­ir svefn­inn“ sem voru bæði henn­ar eig­in sög­ur og ann­arra. Þau eru ófá börn­in sem hafa í gegn­um tíð­ina sofnað út frá rödd­inni henn­ar fal­legu. Plat­an með lög­um og söng Heiðdís­ar og textum Krist­jáns frá Djúpa­læk um Pílu pínu músa­stelpu er löngu orðin klass­ík og mörg börn hafa grátið fögr­um tár­um yfir Sakn­að­ar­ljóði Gínu mömmu.“

Pét­ur Ingvi Pét­urs­son náinn sam­starfs­maður á Heilsu­gæslu­stöð­inni á Akureyri segir í Morg­un­blað­inu:

„Sköp­un­ar­gáfa henn­ar fékk m.a. út­rás í hljóð­færa­leik og tón­smíðum, ljóða­gerð og rit­list. Hún var frá­bær upp­les­ari og söngvin að auki. Það var einkar auð­velt að vekja áhuga henn­ar á nán­ast hverju sem var, svo lengi sem það sam­rýmd­ist sið­ferðis­kennd henn­ar og lífs­sýn. Hún var hvers manns hug­ljúfi og dreng­ur góður.

Minn­ing­in um hóg­væra hug­sjóna­konu og við­leitni henn­ar til að bæta heim­inn mun lifa með öll­um þeim sem þekktu hana.“

Rætist óskir hennar heitar, hún það finni sem hún leitar […] Sárt er að missa sína.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ