Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rósa Björk vill engar fréttir af andlátinu – Varaformaður flokksins orðlaus: „Bara ha ?“

Rósa Björk vill engar fréttir af andlátinu – Varaformaður flokksins orðlaus: „Bara ha ?“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, virð­ist ofbjóða vara­for­manni flokks­ins með orðum sínum á Femínista­spjall­inu. Hún var kjörin á þing sem þing­maður VG en gekk til liðs við Sam­fylk­ingu nýverið. Rósa sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum.

Rósa skrifar inn­legg í Femínista­spjallið í gær þar sem hún hvetur alla til að skrifa kvört­un­ar­bréf til þeirra fjöl­miðla sem greina frá and­láti Larry Flynt, stofn­anda klám­blaðs­ins Hustler, en Rósa segir slíka frétt ekki eiga erindi fyrir almenn­ing. RÚV, Vísir og MBL fjöll­uðu allir um and­lát Flynt.

Rósa skrifar: „Hérna, af hverju í ósköp­unum eru íslenskir fjöl­miðlar að flytja fréttir af dauða ein­hvers karls sem hagn­að­ist á lík­ama kvenna og sölu á klámi ?? Hvaða erindi á þetta við okkur nema að upp­hefja klám – og nauðg­un­ar­kúltur ? Hvet öll til að senda kvört­un­ar­bréf á þá íslensku fjöl­miðla sem hafa birt fréttir af dauða þessa manns.“

Ein sú fyrsta til að skrifa athuga­semd við færsl­una er Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem skrifar: „Bara ha ?“. Upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar hefur ekki end­an­lega lokið störfum en Heiða sagði skyndi­lega undir lok þess ferlis að hún hefði áhuga á að fara úr borg­ar­stjórn og leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar. Óljóst er hvort hún fari því fram fyrir Rósu eða bjóði sig fram í Reykja­vík.

Heiða Björg er ekki eina stjórn­mála­konan sem tjáir sig í þræð­inum. Guðrún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir, vara­þing­maður Pírata, skrifar til dæmis: „Það sem þú ert að hvetja til er rit­skoðun. Sem er frekar hlá­legt í ljósi þess að Larry Flynt barð­ist hart fyrir tján­ingar og rit­frelsi. Ég veit heldur ekki hverjir ættu að taka að sér að vega og meta hvaða dán­ar­fréttir eru þókn­an­legar.“

Alex­andra Briem, vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins, skrifar svo: „Ég held ekki að það sé beint línu­legt sam­band milli frétt­næmi dauða ein­hvers og mati á sið­ferði við­kom­andi. Það getur líka verið frétt­næmt ef frægt fólk sem er slæmt, eða mitt á milli, deyr.“

Rósa tók ekki þátt í umræðu við færslunna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ