Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vestfirsk móðir í stresskasti trompaðist og hjólaði í unga dóttur: „Þetta helvítis fokking dót“

Vestfirsk móðir í stresskasti trompaðist og hjólaði í unga dóttur: „Þetta helvítis fokking dót“

Móðir á Vest­fjörðum var dæmd í lok árs 2019 í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í hér­aðs­dómi Vest­fjarða fyrir barna­vernd­ar­brot sem og brot í nánu sam­bandi. Móðirin var ákærð fyrir að ráð­ast að ungri dóttur sinni með ofbeldi og að hafa hegðað sér rudda­lega. Barnið hlaut ýmis meiðsli og fékk yfir sig hol­skeflu sví­virð­inga.

Barna­vernd barst til­kynn­ing um að ástæða væri til að hafa áhyggjur af vel­ferð barns­ins. Móðir barns­ins var sökuð um að hafa rifið harka­lega í buxur dóttur sinnar þar sem stelpan sat á rúmi í þeim til­gangi að klæða hana úr föt­unum en barnið  hafi dreg­ist með bux­unum, fram úr rúm­inu og fallið á gólfið og lent ofan á leik­föngum. Fann barnið fyrir eymslum í baki, fékk hruflsár við tíunda og ell­efta hryggjar­lið, mar á baki og fékk lítið sár á annað hnéð.

Læstist úti og brjálaðist

Fyrir dómi sagð­ist vest­firska móð­irin vel muna hvað átti sér stað þennan dag. Vinnu­dag­inn hafði verið langur og hún verið úrvinda. Hún sagð­ist hafa komið heim tíl sín milli klukkan fimm og sex. Þá hafi hún áttað sig á að hún var læst úti.

Móðirin kíkti á glugg­ann og tók eftir að allt var á rúi og stúi inni í íbúð­inni. Hún kom hvergi auga á dóttur sína. Konan átti að mæta fljót­lega til vinnu og sagð­ist hafa verið í stresskasti. Hún fékk aðstoð við að finna stelpuna og þegar dóttirin hennar hitti móður sína fyrir utan læst húsið sagði móð­irin að stelpan hefði til­kynnt að hún gæti opnað glugg­ann.

Konan sagð­ist þá hafa sagt við dóttur sína: „Drullaðu þér þá inn um hel­vítis glugg­ann og opn­aðu fyrir mér.“ Stúlkan átti að hafa farið eftir því, sam­kvæmt móð­ur­inni. Þegar inn var komið sagði móð­irin að hún hefði tekið reið­hjóla­hjálm af dóttur sinni og sagt: „Drullaðu þér inn í her­bergi þú átt að fara að sofa.“

Barnið hefði þá háttað sig og við­ur­kenndi móð­irin að hún hefði enn verið reið og pirruð. Hún kvaðst hafa tekið í buxur barns­ins með þeim afleið­ingum að dóttir hennar datt í gólfið. Á gólf­inu hafi verið alls konar dót. Þá hafi hún sagt stelp­unni að fara að sofa en hún hafi þá verið grát­andi. Móðirin lok­aði hurð­inni og sagð­ist hafa viljað jafna sig. Hún hélt svo aftur til vinnu en á meðan var sú yngri í umsjá eldri systur sinnar.

Þegar móð­irin kom heim um klukkan ell­efu um kvöldið ók hún eldri dóttur sinni til síns heima. Í dómnum segir: „… og komið svo heim aftur. Þá hefði hún, í stað þess að slaka á og fara að sofa, horft á sjón­varpið ein­hverja stund en svo vakið barnið og látið það taka til eftir sig. Þá hefði hún ákveðið að senda barnið ekki í skól­ann dag­inn eftir, til að þær gætu jafnað sig á þessu.“

Móðirin sagði einnig aðspurð að barnið hefði verið hrætt allan tím­ann og ótt­inn beinst að henni. Mat hún að það staf­aði af því hversu reið og ólík hún var sjálfri sér. Þá sagði móð­irin að ástæðan fyrir því að hún sendi dóttur sína ekki í skól­ann næstu tvo daga, hafa verið þá að dóttir hennar hafi vitað:  „hvað hún hefði gert af sér“.

Hún sagði stelpuna sína hafa verið við­kvæma og litla í sér dag­inn eftir og hún hafi gert sér grein fyrir að það tæki dag­inn að jafna sig á þessu öllu.

Móðirin við­ur­kenndi að hegðun hennar hefði verið röng og hún hefði hvorki átt að senda hana inn um glugg­ann né vekja hana um nótt­ina, hvað þá að láta skap sitt bitna á henni. Hún tók fyrir að hafa gripið í hnakka­drambið á dóttur sinni. Hún sagð­ist ekki muna til þess að hafa ýtt barn­inu inn um glugg­ann. Þá þvertók hún fyrir að hafa ráð­ist á barnið og kastaði því til.

„Drullaðu þér inn“

Stúlkan sagði í Barna­húsi að móður hennar hefði ýtt sér að glugg­anum og sagt: „Drullaðu þér inn um hel­vítis glugg­ann“. Þá sagði hún móður sína hafa hent sér inn um glugg­ann. Þegar hún hefði verið búin að opna fyrir móður sinni hefði mamman gripið í hnakka­drambið á henni, dregið hana inn í her­bergi og hent henni í rúmið. Hefði barnið við þetta dottið og fengið áverka á baki og fót­legg.

Þá hafi hún farið aftur upp í rúmið og móður hennar sagt: „Drullaðu þér úr hel­vítis föt­unum“. Móðir hennar hafi því næst tosað hana úr bux­unum þannig að hún datt aftur. Eftir þetta hefði hún enn farið upp í rúmið og þá skellt hurð­inni. Sagði stelpan að hún hefði verið hágrát­andi. Hún sagði einnig að hún hefði hvorki fengið mat né að tann­bursta sig.

Stelpan sagð­ist síðan hafa verið vakin af móður sinni um nótt­ina og sagt henni að taka til „þetta hel­vítis fokk­ing dót“. Stelpan lýsti í Barna­húsi mun alvar­legra ofbeldi en fram kemur í dómnum en í dómnum segir að þær ásak­anir ættu sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum eða eins og segir í dómnum:

„Barna­húsi frá ýmsum alvar­legum atvikum, sem gögn máls­ins sýna að eiga sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum, og gegn ein­dreg­inni neitun ákærðu, verður ákærða ekki sak­felld fyrir aðra hátt­semi en þá sem hún hefur sjálf geng­ist við og áður greindi.

Móðirin var því aðeins sak­felld fyrir það ofbeldi sem hún við­ur­kenndi að hafa beitt dóttur sína. Í hér­aðs­dómi var móð­irin dæmd í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og til að greiða 200 þús­und krónur í miska­bætur. Dómarinn leit svo á að móð­irin hefði ekki ætlað sér að skaða barnið lík­am­lega en látið sér það í léttu rúmi liggja hverjar afleið­ingar af hegðun hennar yrðu gagn­vart ungu barni hennar. Þá mátti barnið þola þessa yfir­gengi­legu hegðun mömmu sinnar í margar klukku­stundir og fram á næsta dag.

Móðirin áfrýj­aði mál­inu til Lands­rétttar m.a. til að freista þess að fella niður skaða­bætur til dóttur hennar. Ákæru­vald­inu, sem krafð­ist þyngri refs­ingar, varð ekki að ósk sinni. Móðirin var sýknuð að hafa kastað dóttur sinni nauð­ugri upp í rúm með þeim afleið­ingum að hún hafi slasast og um það segir í dómnum:

„Þegar metið er hvort ákærða hafi haft ásetn­ing til lík­ams­árásar gagn­vart brota­þola verður aftur á móti einnig litið til þess að sú athöfn ákærðu að taka brota­þola úr bux­unum er í eðli sínu hvers­dags­leg auk þess sem brota­þoli var í þröngum „legg­ings“ buxum umrætt sinn.“

Konan braut með fram­komu sinni gegn Barna­vernd­ar­lögum en mat dóm­ur­inn það svo að hátt­semi eða hegðun hennar hafi ekki verið van­virð­andi í skiln­ingi laga.

Þá segir í dómnum að konan hafi ekki áður sætt refs­ingu og hafi sagt að hún sæi eftir hegðun sinni, var ákvörðun um refs­ingu frestað. Einnig var lagt fyrir Lands­rétt bréf Barna­húss 15. jan­úar 2021 þar sem segir að barnið hafi í þrí­gang verið í með­ferð hjá Barna­húsi og að í síð­asta við­tal­inu hafi komið fram að stúlkan væri  „örugg og ánægð í umsjón móður sem og föður“.

Hegðun móð­ur­innar getur einnig, að mati dóms­ins, valdið stúlkunni skaða og þá með þeim hætti að barnið er háð henni um upp­eldi og hús­næði til fram­tíðar. Konan þarf að greiða 100 þús­und í miska­bætur til dóttur sinnar. Konan krafð­ist að mál­inu yrði vísað frá og til vara sýkni af einka­rétta­kröfu dóttur sinnar. Í hér­aðs­dómi var konan dæmd í 2 mán­aða fang­elsi en nið­ur­staða Lands­réttar var eft­ir­far­andi:

Ákvörðun um refs­ingu ákærðu, X, er frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá upp­kvaðn­ingu dóms þessa haldi ákærða almennt skil­orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ