Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún Helga er látin langt fyrir aldur fram: Í hópi bestu blaðamanna landsins

Guðrún Helga er látin langt fyrir aldur fram: Í hópi bestu blaðamanna landsins

„Hún var algjör keppn­is­mann­eskja, en um leið mjög góður félagi og þol­in­móð gagn­vart erf­ið­leikum mínum að ganga á fjöll, enda hafði ég verið stór­reyk­inga­mann­eskja í 30 ár.“

Þetta segir Anna Krist­jáns­dóttir sem búsett er á Teneriefe. Í fal­legum pistli á sam­fé­lags­síðu sinni minn­ist hún Guðrúnar Helgu Sig­urð­ar­dóttur blaða­manns og öku­leið­sögu­manns. Guðrún Helga naut virð­ingar innan stétt­ar­innar og var um skeið for­maður Félags fjöl­miðla­kvenna. Guðrún lést síð­ast­lið­inn laug­ar­dag eftir erfið veik­indi, aðeins 57 ára að aldri.

Guðrún Helga var vin­sæll leið­sögu­maður og rit­höf­undur og í hópi okkar bestu fjöl­miðla­manna. Þá var hún til­nefnd til blaða­manna­verð­launa árið 2003 í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins. Þá starf­aði Guðrún Helga fyrir Frjáls verslun og kort­lagði við­skipta­veldi Gaums og fékk sér­stakt hrós fyrir að setja það fram á mynd­rænan og skýran hátt. Guðrún Helga kom víða við á sínum ferli, rit­stýrði Neist­anum, skrif­aði fyrir SÁÁ blaðið, rit­stýrði Viku­blað­inu Reykja­vík, var blaða­maður á Frétta­blað­inu og Frétta­tím­anum. Þá sendi Guðrún frá sér vin­sæla bók fyrir erlenda ferða­menn um hefð­bundna íslenska mat­ar­gerð.

Guðrún Helga var vel menntuð og lærði blaða­mennsku í Svíþjóð og alþjóða­stjórn­mál í Helsinki. Guðrún var einnig mikil úti­vist­ar­mann­eskja og þótti frá­bær leið­sögu­maður. Í sam­tali við Frétta­blaðið í júlí 2004, beðin um að lýsa sínum lífstíl, sagði Guðrún:

„Ég er með lík­ams­rækt á heil­anum, hvorki meira né minna. Það finnst að minnsta kosti sumum í kring um mig. Ég fer að jafn­aði þrisvar í viku í rækt­ina, hef gert það síð­ustu fimm árin. Svo stefni ég á að taka þátt í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í ágúst eins og ég hef gert síð­ustu þrjú árin.“

Anna Krist­jáns­dóttir minn­ist vin­konu sinnar í fal­legum pistli á Facebook-síðu sinni. Við gefum Önnu orðið:

„Það var vorið 2006 að mig minnir sem ég var stödd í kaffi hjá Guðrúnu Helgu Sig­urð­ar­dóttur blaða­manni og síðar leið­sögu­manni í Hafn­ar­firði og hún vildi fá mig út í labbitúr í kringum Ástjörn. Stuttur labbitúr getur ekki gert neinum neitt nema gott og áður en varði var hún búin að draga mig með upp á topp­inn á Ásfjalli.

Það var erfið ganga og ég stóð á önd­inni af mæði er upp var komið þótt fjallið væri ein­ungis 127 metra hátt, enda hafði ég ekki farið á fjall í fjölda ára eða frá ung­lings­aldri. Eitthvað gerð­ist samt innra með mér, því áður en sum­arið var liðið hafði henni tek­ist að fá mig á flest fjöll í nágrenni Reykja­víkur, tvö Helga­fell, Grímmanns­fell, Esjuna, Víf­ils­fell, Keili og fleiri.

Ekki var stað­næmst með þessu heldur voru fleiri fjöll farin á næstu árum, meðal ann­ars Fimm­vörðu­háls frá Básum. Þarna má segja að áhugi minn á göngum í hálendi hafi verið vak­inn þökk sé Guðrúnu Helgu.

Hún var algjör keppn­is­mann­eskja, en um leið mjög góður félagi og þol­in­móð gagn­vart erf­ið­leikum mínum að ganga á fjöll, enda hafði ég verið stór­reyk­inga­mann­eskja í 30 ár. Það var auð­vitað margt annað brallað saman, meðal ann­ars mæt­ing í Bjór­skól­ann og þau voru ófá skiptin sem við hitt­umst niðri í bæ, á kaffi­húsi, eða bara heima hjá hvorri annarri, enda var hún ein af mínum upp­á­halds­vin­konum.

Í dag mun ég ganga á hið 429 metra háa Montana Guaza til heið­urs og í minn­ingu Guðrúnar Helgu Sig­urð­ar­dóttur, en hún lést síð­ast­lið­inn laug­ar­dag af völdum krabba­meins, ein­ungis 57 ára að aldri.

Ég vil votta eig­in­manni hennar, Friðrik Frið­riks­syni og börnum, þeim Aldísi Evu og Degi Páli, upp­á­hald­inu hennar og barna­barni, Emelíu Rut, sem og öðrum ætt­ingjum mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ