Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Bergur segir fæðingarorlof á Íslandi í anda nasista: „Übermensch-kerfið“

Bergur segir fæðingarorlof á Íslandi í anda nasista: „Übermensch-kerfið“

Bergur Hauksson, lög­maður og afi, segir fæð­ing­ar­or­lof á Íslandi hampa þeim sem hafa háar tekjur umfram þá sem standa höllum fæti. Í aðsendum pistli í Morg­un­blað­inu líkir hann núver­andi kerfi við nas­isma og hug­myndir um Übermensch. Hann furðar sig enn fremur á því að verka­lýðs­hreyf­ingin gagn­rýni ekki núver­andi kerfi.

Bergur segir að í raun megi líta svo á að ríkið styrki börn hinna ríku umfram hinna fátæku. „Samkvæmt stjórn­ar­skránni skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mann­rétt­inda án til­lits til kyn­ferðis, trú­ar­bragða, skoð­ana, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­þáttar, lit­ar­háttar, efna­hags, ætt­ernis og stöðu að öðru leyti. Úthlutum pen­inga úr rík­is­sjóði til nýbak­aðra for­eldra er í sam­ræmi við efna­hag, þ.e. þeir launa­hærri fá meira úr rík­is­sjóði en þeir launa­lægri. Ríkir styrktir umfram þá fátæk­ari. Kerfi sem kalla mætti kap­ít­al­ískt kerfi. Þetta sjón­ar­mið um að það þurfi að styðja við þann sterka frekar en þann sem stendur höllum fæti á sér og hefur átt marga fylg­is­menn, sem er ein­kenni­legt vegna þess að bæði svo­kall­aðir vinstri- og hægri­menn ættu að vera á móti því,“ skrifar Bergur.

Bergur líkir kerf­inu við bónusa­kerfi bank­anna fyrir hrun. „Í árdaga lag­anna um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof voru einnig árdagar launa­hárra stjórn­enda í bönk­unum. Þá fékk kannski stjórn­andi í bönk­unum eina, tvær, þrjár eða fleiri millj­ónir króna í styrk frá rík­inu á mán­uði vegna þess að hann átti nýfætt barn. Stjórn­andi sem var með eina, tvær, þrjár eða fleiri millj­ónir í laun á mán­uði þurfti styrk frá rík­inu upp á margar millj­ónir króna vegna barn­eigna sam­kvæmt alþing­is­fólk­inu. Alþingi og ráð­herra þótti mik­il­vægt að styðja þannig fólk umfram „aum­ingj­ana“. Skapaði þetta fólk ekki svo mik­inn auð fyrir Ísland? Svo var víst ekki og hvað ef svo hefði verið?,“ spyr Bergur.

Bergur lýsir aðstæðum dóttur sinnar sem fékk skert orlof ein­unigs vegna gjald­þrots vinnu­veit­enda hennar. „Dóttir mín, sem nú nýlega átti barn, var að vinna hjá WOW þegar það fór á haus­inn og fæð­ing­ar­lögin miða við laun fólks aftur í tím­ann, þ.e. frá 18-6 mán­uðum fyrir fæð­ingu. Gjald­þrotið leiddi til þess að dóttir mín hafði ekki eins há laun og ella á við­mið­un­ar­tíma og fær þess vegna miklu lægri greiðslur frá rík­inu en þeir hálaun­uðu. Sama á við um aðra sem eru í sömu stöðu og hún. Þetta er þrátt fyrir stjórn­ar­skrána sem segir að ekki megi mis­muna með lögum eftir efna­hag og að sam­kvæmt Hæsta­rétti séu fæð­ingar- og for­eldra­or­lofslögin ætluð til að styðja við þá sem standa höllum fæti fjár­hags­lega og efna­hags­lega. Dóttir mín, og aðrir í svip­aðri stöðu, fær frá rík­inu 45% af launum sem hún hafði fyrir fæð­ingu barns en þeir launa­hærri fá kannski 80% af sínum launum. Þarna getur munað mörg hund­ruð þús­und krónum á mán­uði,“ segir Bergur.

Fyr­ir­sögn pistils­ins er „Kap­ít­alista-, barna“- og félags­mála­ráð­herra en Bergur skýrir hug­mynd­ina þar að baki nánar í meg­in­mál­inu. „Tillaga að fyr­ir­sögn­inni er sett fram hér að framan vegna þess að fyrst það virð­ist vera í lagi, miðað við þá greiðslu­á­ætlun sem dóttir mín hefur fengið frá rík­inu, að mis­muna eftir efna­hag, hvort það sé þá ekki í lagi að mis­muna eftir húð­lit, trú og ætt­erni þótt 65. gr. stjórn­ar­skrár­innar kveði á um að það sé ekki í lagi? Þá gætu lögin verið eitt­hvað á þá leið að fólk fái greiðslur úr rík­is­sjóði vegna nýfædds barns þannig að þeir launa­hærri fái hærri greiðslur en hinir launa­lægri, kristnir fái hærri greiðslur en fólk ann­arrar trúar og sama gildi um þá sem hvítir eru á hör­und og ætt­stórir. Með því væri ráð­herr­ann orð­inn ráð­herra „kap­ít­alista, krist­inna, hvítra og ætt­stórra“ og barna- og félags­mála,“ segir Bergur.

Hann segir að ríkið geti allt eins mis­munað fólki út frá lit­ar­hætti, fyrst þetta stendur óhaggað. „Ef fólki finnst að það að styðja við fólk sem stendur höllum fæti sé gert með því að styrkja þá launa­hærri umfram hina verð ég að við­ur­kenna að það vel­ferð­ar­kerfi er komið langt út fyrir minn skiln­ing. Kannski trúa ein­hverjir á að í raun sé vel­ferð­ar­kerfið til að fá fram „Übermensch“, styðja við þá „dug­legu, kláru“, það sé eina rétta vel­ferðin? Var ekki lýst yfir dauða Guðs þegar Übermensch kom fram? Ef það telst eðli­legt að mis­muna fólki í sam­ræmi við efna­hag þess ætti ekk­ert að koma í veg fyrir það að mis­muna fólki út frá t.d. trú eða lit­ar­hætti,“ segir Bergur.

Bergur segir eina vitið að nýbak­aðir for­eldrar fengu ákveðna upp­hæð og þannig styrkja þá sem standa höllum fæti. „Bálk­ur­inn um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof er því­líkur að það er ekki nema fyrir fólk í mjög góðu and­legu ástandi að lesa hann. Það væri hægt að hafa hann svo miklu ein­fald­ari þannig að þar segði að allir nýbak­aðir for­eldrar fengju ein­hverja ákveðna upp­hæð, t.d. væri hægt að taka með­al­tal af þeirri upp­hæð sem ríkið greiðir nú til allra nýbak­aðra for­eldra. Auðvitað er eðli­legra að ríkið styrki hina sem hall­ari fæti standa, þ.e. þá er átt við þá sem verra hafa það, en það virð­ist alls ekki vera neinn áhugi fyrir slíku á Alþingi eða hjá ráð­herra svo það má að minnsta kosti fara þá milli­leið sem nefnd er hér að framan. Kannski er fólk bara farið að trúa á „Übermensch“ og þá höldum við að sjálf­sögðu áfram með núver­andi kerfi en hættum þá að minnsta kosti að kalla það kerfi fyrir þá sem standa höllum fæti og nefnum það með réttum hætti, t.d. „Übermensch-kerfið“, þar sem ríkið styrkir þá sem betra hafa það umfram hina. Það sem kemur þó á óvart við „Übermensch-kerfið“ er að verka­lýðs­for­ystan styður það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ