Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dísa safnar líkamsleifum dýra -Býr til skartgripi úr morknuðum refabeinum

Dísa safnar líkamsleifum dýra -Býr til skartgripi úr morknuðum refabeinum

Alveg frá því Dísa man eftir sér hafði hún áhuga­mál sem hún deildi ekki með mörgum öðrum börnum. Hún hafði mik­inn áhuga á beinum og haus­kúpum og byrj­aði snemma að safna alls kyns lík­ams­leifum dýra, til að mynda beina­grindum fugla eða ann­arra dýra sem hún rakst á og voru látin. „Þetta var nú í óþökk for­eldra minna” segir Dísa og hlær og minn­ist þess að safnið hafi verið látið hverfa þegar fjöl­skyldan flutti.

Hauskúpurnar heilla

,,Ég hef alltaf haft sér­stakan áhuga á haus­kúpum og komst að því með árunum að ég er engan vegin ein um þetta áhuga­mál. Þá kom upp sú  hug­mynd að stofna Facebook síðu um þetta áhuga­mál okkar og síðar bætt­ust við aðilar sem stoppa upp dýr, og þá helst veiði­menn. Í dag erum við ríf­lega 600 í grúpp­unni.”

Í lýs­ingu á hópnum segir: Hópur fyrir fólk sem vill versla með haus­kúpur, bein og horn og ýmis­legt því tengt. Nú eða bara sýna öðrum myndir af safn­inu sínu”.

Mörgum gæti þótt áhuga­mál Dísu sér­kenni­legt en hún hefur áhuga á nátt­ur­unni, og hvernig megi nýta lík­ams­leifar dýra til ann­ars en átu. Má því segja að Dísa sé meiri dýra­vinur en margir.

Engin norn,

Dísa kemur ekki fram undir fullu nafni því hún hefur orðið fyrir áreiti og vill fá að sinna sínum áhuga­málum í friði.

„Þrátt fyrir að sumum kunni að finna áhuga­mál mitt sér­kenni­legt er ég engin norn, heldur ótta­leg mús. En ég hef alltaf haft gaman af að vinna í hönd­unum og hef haft áhuga á list­málun en skart­gripa­gerðin hefur ávallt heillað mig. Áður not­aði ég hefð­bundn­ari efni á við perlur en nú ein­beiti ég mér að skarti úr beinum.”

Möðkuð refabein

Í fyrra áskotn­að­ist Dísu full fata af veðruðum refa­beinum.

„Það var heljar vinna en það er bara eitt­hvað sem fylgir þessu. Beinin voru skítug og möðkuð en ég hreins­aði þau og nýtti þau öll í skart­gripi, eyrna­lokka og annað slíkt. Fyrir mörgum árum var unnt að fara í gælu­dýra­versl­anir og fá afganga af snákafóðri, haus­kúpur af músum og slíku en ég held að það sé ekki hægt í dag og leita ekki eftir því.”

„Það má búa til alls konar hluti úr beinum. Ég sker út í haus­kúpur, sker þá út nega­tív­una og þá má setja ljós inn sem skýn í gegnum þynnri part­inn. Ég hef skorið út galdra­stafii og nýlega var ég beðin um að skera út kelt­neskan kross sem kom afar vel út. Ég hef einnig skipt við konu sem sér mér fyrir geita­hausum gegn því að skera út vernd­ar­stafi”.

Aldrei aftur hrosshausa

Aðspurt að því hvort hún fái haus­kúp­urnar hreins­aðar eða hrein­lega eins og þau komi af dýr­inu segir hún að það sé hið síð­ar­nefnda. ,,Þetta venst. Ég hreinsa stærsta hlut­ann og sýð síðan rest­ina í stórum brugg­potti. Þá tekur við aðal­vinnan við að hreinsa beinin vel og vand­lega.”

Aðspurð að því hvort það séu hausar sem hún muni ekki koma nálægt segir hún svo vera og hlær inni­lega.

„Ég fékk tvo hross­hausa síð­ast­lið­inn mánu­dag og þeir eru búnir að valda mér gríð­ar­legri vinnu, ég snerti þá ekki aftur enda er búin að vera að far­ast í bak­inu alla vik­una.”

Dísu finnst gaman að skreyta híbýli sín með lista­verk­unum úr bein­unum og svo sé að segja um mun fleiri.

,,En því má aldrei gleyma að þetta voru lif­andi og oft elskuð hús­dýr fyrir and­látið og mér líður alltaf betur að vita nöfn dýr­anna sem ég er að vinna með. Með því er ég að sýna þeim þá virð­ingu sem þau eiga skilið, það er mun hlý­legra og ég læt fólk vita nöfnin þegar þau eign­ast ný heim­ili.”

Hér má sjá Facebook síðu haus­kúpusafn­ara og hér má finna Facebook síðu Dísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ